Fréttablaðið - 25.06.2011, Side 50

Fréttablaðið - 25.06.2011, Side 50
heimili&hönnun6 Vitra er húsgagnafyrirtæki sem stofnað var árið 1950 af hjónunum Willi og Eriku Fehlbaum. Þau byrjuðu með húsgagnaverslun í Basel sem síðan óx með árunum. Synir þeirra tóku við fyrirtækinu á níunda áratugnum og stýra því í dag. Vitra hefur einkarétt á framleiðslu margra helstu gullmola hönnunarsögunnar. Sem dæmi má nefna að þeir framleiða alla hönnun hjónanna Charles og Ray Eames fyrir utan Bandaríkjamarkað. Vitra á einnig framleiðslurétt á hönnun hins franska Jean Prouvé sem var helsti hönnuður Frakklands á árum áður. Einnig má geta farsæls samtarfs Vitra við alla helstu hönnuði í húsgagnaiðnaðinum í dag og kemur árlega röð nýjunga frá þessu öfluga fyrirtæki. HVAÐ ER VITRA? Á landamærum þriggja landa, Sviss, Þýskalands og Frakklands, eru höfuðstöðvar Vitra húsgagna- framleiðandans. Þar eru verksmiðj- ur og skrifstofur sem þætti almennt ekki í frásögu færandi. Það sem gerir þessa verksmiðjuþyrpingu einstaka er arkitektúrinn sem hefur verið unninn gaumgæfi- lega og af einstakri natni. Í kjöl- far mikils bruna sem átti sér stað hjá Vitra árið 1981 var ákveðið að end- urbyggja verk- smiðjusvæðið. Í stað þess að endurreisa hefðbundn- ar verksmiðjubyggingar var ákveð- ið að bjóða þekktum arkitektum til verksins til að byggja upp menn- ingar- og arkitektúrsvæði. Sérstök áhersla var lögð á að velja erlenda arkitekta enda áttu byggingarn- ar ekki að vera einkennandi fyrir staðsetninguna á nokkurn hátt held- ur frekar að sýna margbreytileika í hönnun og sköpunargleði. Niðurstöðurnar komu skemmti- lega á óvart og sá Nicholas Grims- haw um aðalskipulag svæðisins. Önnur kynslóð tók við fyrirtækinu og árið 1984 var reistur skúlptúr eftir Claes Oldenburg sem leiddi til samstarfs Vitra við Frank Gehry. Hann teiknaði hönnunarsafn Vitra og þótti það tímamótaverk enda fyrsta bygging Gehrys í Evrópu. Hönnunarsafnið er hið fyrsta sinn- ar tegundar í heiminum og er orðið rúmlega tvítugt í dag. Í kjölfar safnins bættust við slökkvistöð hönn- uð af Zaha Hadid, ráðstefnusalur ef t i r smek k Tadao Ando, bensínstöð Jean Prouvé, kúlu- hús Buck- minster Full- er, strætó- stoppistöð Jespers Morrison og svona má lengi telja. Lengi vel bættist svo ekki neitt hús í safnið en í fyrra kom Vitra enn og aftur á óvart með frábæru sýningarsvæði fyrir heimilislínuna þeirra Vitra Home í húsi sem nefn- ist VitraHaus. Í þetta skiptið var leitað til heimamanna, arkitekta- stofunnar Herzog & DeMeuron í Basel og tókst frábærlega vel til. Árlega heimsækja rúmlega 100,000 manns Vitra Campus svæðið og hægt er að fá leiðsögn á ýmsum tungumálum. Heillandi heimur Vitra ● Vitra hönnunarfyrirtækið er langt frá því að teljast hefð- bundið hönnunarfyrirtæki. Barnaleikfang Eames hjónanna í nýstárlegri útfærslu. Útsýnið úr húsi Herzogs & De Meurons er ein- stakt. Sigga Heimis iðnhönnuður skrifar í Heimili&hönnun sigga@siggaheimis.is Hús Herzogs & DeMeurons byggir á hefð- bundinni húsagerð sem einkennir Basel, en hér er nokkrum húsum staflað upp. Húsgögn og klukkur Georgs Nelson njóta sín vel í VitraHaus. Allt sem þú þarft *Meðan birgðir endast Þú færð Fréttablaðið á 29 stöðum á Vesturlandi. Það er engin ástæða til að missa af neinu í sumar. Fréttablaðið er aðgengilegt um land allt. Því er dreift ókeypis í lúgur og kassa á kjarnadreifingarsvæði okkar. Auk þess er það selt í lausasölu á kostnaðarverði á 120 sölustöðum um land allt. Þú getur alltaf fengið Fréttablaðið beint í símann, fartölvuna eða spjaldtölvuna hvar sem er og hvenær sem er á Vísi.is eða fengið það sent með tölvupósti daglega. Nánar um dreifinguna má lesa á visir.is/dreifing. Það fá allir afmælisblöðru* á sölustöðum Fréttablaðsins um land allt. Fjöldi lausasölustaða á Vesturlandi Jákvæðar fréttir fyrir sumarið Bónus, Ísafirði Samkaup Úrval, Ísafirði Olís, Bolungarvík Samkaup Úrval, Bolungarvík N1, Hamona, Þingeyri N1 verslun, Akranesi Bónus, Akranesi Olís, Akranesi Krónan, Akranesi Samkaup Strax, Akranesi Bónus, Borgarnesi Olís, Borgarnesi Samkaup Úrval, Borgarnesi Samkaup Hyrnan, Borgarnesi Verslunin Baulan, Borgarnesi Háskólinn Bifröst, Borgarfirði Samkaup Strax, Bifröst, Borgarnesi Þjónustumiðstöð Vegamót Hönnubúð, Reykholti, Borgarfirði Bónus, Stykkishólmi Olís, Stykkishólmi Hrannarbúðin, Grundarfirði Samkaup Úrval, Grundarfirði N1, Ólafsvík Olís, Ólafsvík N1, Hraðbúðin Hellissandi Samkaup Strax, Búðardal N1, þjónustustöð, Ísafirði Hamraborg, Ísafirði

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.