Fréttablaðið - 07.07.2011, Page 4

Fréttablaðið - 07.07.2011, Page 4
7. júlí 2011 FIMMTUDAGUR4 SÓMALÍA Öflugustu samtök her- skárra íslamista í Sómalíu hafa aflétt banni við starfsemi erlendra hjálparstofnana, nú þegar verstu þurrkar til margra áratuga hrjá landsmenn. Bannið var lagt á árið 2009 með þeim rökum að hjálpar- stofnanirnar væru andsnúnar ísl- amstrú. Þurrkarnir í Sómalíu og nágranna löndunum á Horni Afríku, skaganum sem teygir sig út í Indlandshaf, eru þeir verstu sem komið hafa í sextíu ár. Í Sómalíu hafa langvinn borgara- stríðsátök gert illt verra og van- burða stjórnvöld ráða ekkert við vandann. Milljónir manna hafa orðið illa úti og streyma nú flóttamenn þús- undum saman frá Sómalíu á hverj- um einasta degi, flestir til Kenía sem þó hefur einnig orðið illa úti vegna þurrkanna. Starfsmenn Sameinuðu þjóð- anna segja að helmingur barna í Sómalíu þjáist nú af vannæringu. Óttast er að hungursneyðin, sem nú þegar hrjáir fjölda fólks, verði óviðráðanleg. Alþjóðlegar hjálparstofnanir hafa nú efnt til fjársöfnunar. Fjár- þörfin nemur hundruðum milljóna króna. Vonir standa þó til þess að viðbragðskerfi, sem komið hefur verið upp vegna reynslunnar af fyrri hungursneyðum á þessum slóðum, muni virka eins og til er ætlast og voðinn verði því ekki jafn mikill og stundum áður. Fyrir utan Sómalíu er mikil þörf fyrir aðstoð í Eþíópíu og Kenía. Árum saman hefur úrkoma í þessum heimshluta verið óvenju lítil. Þúsundir manna eru á far- aldsfæti að leita sér matar og nú þegar hafa hundruð manna dáið úr næringarskorti. Búfénaður er tek- inn að falla úr hor. Ofan á allt þetta hefur matvæla- verð hækkað upp úr öllu valdi svo jafnvel þegar fólki stendur mat- vara til boða þá hefur það ekki efni á henni. gudsteinn@frettabladid.is Verstu þurrkar í sextíu ár Óttast er að alvarleg hungursneyð sé yfirvofandi í austanverðri Afríku. Hjálparstofnanir þurfa hundruð milljóna króna til að geta veitt nauðsynlega aðstoð. Flóttafólk streymir frá Sómalíu til nágrannaríkjanna. Dadaab Addis Ababa Djibouti Naíróbí Kampala Mogadisjú 200 km Tíu milljónir manna í hættu Hjálparstofnanir hefja fjársöfnun til að geta brugðist við neyðarástandi í norðaustur hluta Afríku, þar sem verstu þurrkar í 60 ár og hátt mat- vælaverð hafa stefnt lífi milljóna manna í voða. sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí Styttri regntíð Langa þurrkatíðin Aðalregntíðin Styttri þurrkatíð Dæmigerðar árstíðir Þurrkarnir 2010-11 Regn í sveitahéruð- um Sómalíu, Keníu og Eþíópíu og uppskerusvæðum í suðaustanverðu Kenía. Þrengingatíð í sveita- héruðum. Aðal- uppskera ársins í suðaustanverðu Kenía. Minni uppskerutíð ársins í Sómalíu. Aðalregntíminn í Eþíópíu, Sómalíu og sveitahéruðum Kenía. Minni regntíð í suð- austanverðu Kenía. Aðalupp- skera ársins í Sómalíu. Minni uppskerutíð í suðaustanverðu Kenía. Með mestu þurrkum sögunnar. Annað eða þriðja harðinda- árið í röð á sumum svæðum. Mjög léleg afurðaframleiðsla. Ástand búfénaðar versnar. Uppskeru- brestur á austur- hluta svæðisins. Aukinn skortur í þrengingatíð. Úrkoma innan við 30 prósent á sumum svæðum. Dánartíðni búfénaðar 15-30% í sveitahéruðum – allt að 40-60% sums staðar. Búist við lélegri uppskeru en venju- lega og hún verði síðar á ferðinni. Uppskerubrestur líklega sums staðar á jaðarsvæðum. Kornverð nálgast eða fer yfir öll met.Heimildir: S.Þ., OCHA Ljósmynd: Getty ©Graphic News Fjöldi í hættu Djíbútí 120.000Matvælaöryggi júlí-sept. 2011 Viðkvæmt ástand Erfitt ástand Neyðarástand Sómalía 2,5 milljónir Eþíóþía 3,2 milljónir Kenía 3,5 milljónir Úganda 600.000 Flótta- mannabúðir Suður-Súdan Sjálfstæði 9. júlí Eystra- Kongó Rúanda Búrúndí Tansanía Erítrea Súdan KOMIN Í FLÓTTAMANNABÚÐIR Hópur flóttamanna kominn til flóttamannabúða í Kenía eftir margra daga göngu frá Sómalíu. NORDICPHOTOS/AFP NÁTTÚRA „Við ráðleggjum fólki að ganga ekki upp á Heklu eins og stend- ur,“ segir Valgerður Brynjólfsdóttir, sem rekur Heklusetrið á Leirubakka. „En það eru þó ekki nema tveir, þrír dagar síðan fólk var uppi á henni,“ bætir hún við. Hreyfingar mældust við Heklu um og fyrir síðustu helgi en þær hafa nú að mestu gengið til baka. Gunnar B. Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að hreyfing- arnar hafi verið um 10 til 20 millimetr- ar, sem getur ekki talist mikið. „En það er einhver hreyfing þarna djúpt undir,“ segir hann. „Það má samt segja að hún sé tilbúin að gjósa en hvort hún gerir það á morgun eða eftir tuttugu ár, það vitum við ekki,“ bætir hann við. Hekla hefur venjulega gosið á tíu ára fresti en síðast gaus hún árið 2000. Gunnar segir að venjulega verði jarð- skjálftar um einni eða tveimur klukku- stundum áður en hún gýs, það væru þá mun stærri skjálftar en mældust nú. Valgerður segir afar varhugavert að vera á fjallinu þegar það er að minna á sig með þessum hætti, bæði vegna þess að fyrirvarinn getur verið afar stuttur og eins eru margir gígar á fjallinu og óvíst úr hverjum þeirra eldhafið hæfist á loft. - jse Hekla tilbúin að gjósa en hreyfingar sem mældust við fjallið fyrir nokkru hafa að mestu gengið til baka: Ferðafólki ráðið frá því að ganga á Heklu HEKLUGOS Valgerður Brynjólfsdóttir segir alls óvíst úr hvaða gíg gos í Heklu myndi koma. VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 32° 28° 26° 23° 26° 28° 22° 22° 26° 18° 32° 30° 30° 23° 22° 22° 24°Á MORGUN víða 3-8 m/s, hvassara NV-til. LAUGARDAGUR víða 3-8 m/s, hvassara NV-til. 11 10 16 11 12 13 10 7 99 3 4 2 2 7 3 3 45 9 2 13 10 9 9 10 14 11 8 8 10 2 KÓLNAR NA-TIL Bjart að mestu S- og V-til í dag en þykknar svo upp og verður skýjað með köfl um næstu daga. Stöku skúrir S- og V-til. Kólnar og verður dálítið svalt NA-til á morg- un og laugardag en ætti að batna aftur á sunnudag. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja Exeter-máli sér- staks saksóknara til Hæstaréttar. Allir sakborningarnir þrír í mál- inu voru sýknaðir í síðustu viku. Þeir Ragnar Zophonías Guð- jónsson, fyrrverandi sparisjóðs- stjóri Byrs, og Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnar- formaður Byrs, voru sýknaðir af ákæru um umboðssvik vegna eins milljarðs láns til félagsins Exeter Holding til að kaupa stofnfjárbréf af þeim og öðrum starfsmönnum Byrs. Styrmir Þór Bragason, fyrr- verandi forstjóri MP banka, var sýknaður af hlutdeild í brotinu og peningaþvætti. - sh Ríkissaksóknari áfrýjar: Exeter-málið til Hæstaréttar REYKJAVÍK Nokkuð hefur borið á því að umgengni við svæði Ylstrandarinnar í Nauthólsvík að kvöld- og næturlagi sé slæm. Bálkestir hafa verið kveikt- ir með naglaspýtum, sem þýðir að eftir situr aska og ryðgaðir naglar í sandinum. Þá hafa bjór- og vodkaflöskur verið brotnar á gangstéttum og í sandinum. Í tilkynningu frá starfsfólki er því þess vegna beint til kvöld- og næturgesta að ganga vel um svæðið. - mþl Ylströndin í Nauthólsvík: Umgengni við Ylströnd slæm NAUTHÓLSVÍK Ryðgaðir naglar og brotnar bjórflöskur hafa tekið á móti sumum gestum Ylstrandarinnar í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN GENGIÐ 06.07.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 220,3006 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 115,01 115,55 184,10 185,00 164,89 165,81 22,103 22,233 21,217 21,341 18,117 18,223 1,4178 1,4260 183,17 184,27 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.