Fréttablaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 31
Veitingastaðurinn Nings
fagnar tuttugu ára afmæli
sínu um þessar mundir. Í
tilefni afmælisins hefur
veitingastaðurinn að
Suðurlandsbraut 6 verið
gerður upp og tekinn í gegn
með skemmtilegri útkomu.
„Við vorum að breyta staðnum
okkar á Suðurlandsbraut og gerð-
um eiginlega alveg nýjan stað,“
segir Hilmar Sigurjónsson, fram-
kvæmdastjóri Nings, og bætir við
að breytingarnar hafi verið gerð-
ar í tilefni tuttugu ára afmælis
Nings. „Við breyttum öllu, gólf-
efnum, salernum, loftum, lýs-
ingu og húsgögnum. Breyting-
arnar hafa tekist mjög vel og fólk
tekur þeim mjög vel.“
Hilmar tekur fram að veitinga-
staðir Nings séu þrír í Reykjavík,
á Suðurlandsbraut, Stórhöfða
við Gullinbrú og í Hlíðarsmára.
„Á veitingahúsum Nings er lögð
áhersla á að allt hráefni, kjöt, fisk-
ur, krydd og grænmeti sé ferskt
og eldað við mikinn hita á stutt-
um tíma sem tryggir ferskleika og
gæði,“ segir Hilmar og bætir við
að við eldun séu eingöngu not-
aðar kólesteróllausar hágæða
matar olíur.
Að sögn Hilmars hefur heilsu-
matseðillinn breytt stefnu fyrir-
tækisins mikið. „Í dag eyðum
við mun meiri tíma í að þróa og
bjóða heilsusamlegan mat sem
er sniðinn fyrir fólk í aðhaldi, en
þrátt fyrir það gleymum við aldrei
þeim sem elska djúpsteiktar
rækjur.“ Hilmar segir að stefnan
í skyndibitamat í dag snúist mikið
um heilsu og ferskleika. „Og það
er einmitt grunnurinn í stefnunni
hjá Nings, ferskur heilsusamleg-
ur matur sniðinn að þörfum hvers
og eins.“
Hilmar segir að sumarstemn-
ing sé á Nings og meðal annars
séu í boði sumartilboð. Hilm-
ar upplýsir brosandi að Nings
hafi alltaf lagt upp með að bjóða
vöru sem endurspeglar markað-
inn hverju sinni, auk þess að vera
fyrstir með nýjungarnar. „Þessi
markmið hafa gert Nings að því
sem það er í dag.“
Hilmar tekur fram að verðlagn-
ing á réttum Nings sé mitt á milli
skyndibitastaðar og betri veit-
ingastaðar. „Þetta verðbil endur-
speglast í betri þjónustu og vöru-
úrvali. Á Nings er keppst við að
allir geti fengið eitthvað við sitt
hæfi, til að mynda má nefna að
ódýrasti rétturinn á matseðli
Nings er þrisvar sinnum ódýr-
ari en sá dýrasti, þessi verðmun-
ur sýnir hvernig við lítum á okkar
kúnnahóp, eins breiðan og mögu-
legt er,“ segir Hilmar og býður
alla hjartanlega velkomna.
„Núna er hægt að fá rétti af
matseðli í tveimur stærðum,“
segir Hilmar Sigurjónsson, fram-
kvæmdastjóri Nings. „Hingað til
hefur ekki verið hægt að fá réttina
af matseðli nema í einni stærð.“
Hilmar lýsir hugmyndinni að
baki þessari nýjung á þá leið:
„Viðskiptavinirnir geta nú valið sér
nokkra rétti af matseðli og deilt
þeim á milli sín og með því getur
fólk smakkað fleiri rétti hjá okkur,“
útskýrir Hilmar og bætir við að
þetta form sé þekkt erlendis. „Nú
þarf fólk ekki lengur að panta sér
einn rétt heldur getur það fengið
að smakka fleiri rétti af matseðl-
inum.“
NÝJUNG Á NINGS
Veitingastaðnum Nings var breytt á dögunum í tilefni tuttugu ára afmælis staðarins. MYND/HAG
Að sögn Hilmars er stefna Nings að
bjóða upp á ferskan og heilsusamlegan
mat sem sniðinn er að þörfum hvers og
eins. MYND/HAG
20 ára og aldrei ferskari
„Fyrir stuttu byrjuðum við með
tvo nýja rétti,“ segir Hilmar Sigur-
jónsson, framkvæmdastjóri Nings,
og telur upp: „Það er orange-kjúk-
lingur sem er vinsæll kjúklinga-
réttur, sérstaklega í Ameríku. Svo
vorum við líka að bæta réttinum
kung pao við matseðilinn hjá
okkur.“
Hilmar segir að réttirnir hafi
mælst vel fyrir meðal viðskipta-
vina Nings. „Það er líka af nægu
að taka vegna þess að við erum
með áttatíu rétti á matseðlinum
okkar.“
NÝIR RÉTTIR Á
MATSEÐLI NINGS
Að sögn Hilmars var verið að bæta
orange-kjúklingi á matseðil Nings.
MYND/HAG
Nú er hægt að fá rétti af matseðli í
tveimur stærðum á Nings.
HOLLT & GOTT
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 2011 Kynningarblað hollráð, grænmetisbændur, veitingahús, hráfæði, skyndibiti, sushi