Fréttablaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 52
40 7. júlí 2011 FIMMTUDAGUR Þrátt fyrir að hafa verið að og notið vinsælda í tæp 30 ár á tónlistarmaðurinn Morrissey í vandræðum með að finna útgáfufyrir- tæki sem vill gefa út nýju plötuna hans. Hann segir útgáfurnar spenntari fyrir nýjum hljómsveitum. „Ég er ekki með útgáfusamning og gerði ráð fyrir því að ef plötu- útgáfurnar vildu mig myndu þær sækja mig. Ég get ekki gert mikið í þessu,“ segir söngvarinn Morrissey í viðtali við vefmiðil- inn Pitchfork. Síðasta plata Morrissey, Years of Refusal, markaði endalok sam- starfs hans við útgáfurnar Decca og Attack. Hann er tilbúinn með efni á nýja plötu, en ætlar ekki að taka hana upp fyrr en hann skrif- ar undir hjá nýju útgáfufyrir- tæki. Hann virðist óttast að áhugi útgáfufyrirtækjanna sé ekki til staðar, þar sem honum hefur ekki verið boðinn samningur. „Ég held að útgáfufyrirtæki vilji frekar lokka til sín nýjar hljóm- sveitir svo þau geti eignað sér uppgang þeirra,“ segir Morrissey, spurður hvað valdi vandræðum hans. „Flestir muna eftir plötunum sem komu listamönnunum á kortið. Þess vegna skrifa fjölmiðlar bara um mig í samhengi við sögu The Smiths. Það er hvergi minnst á þá staðreynd að ég hef komið þremur sólóplötum á toppinn og verið einn að í 25 ár. Furðulegt.“ Morrissey og hljómsveit hans fluttu nýlega þrjú ný lög í útvarps- þætti á BBC. Lítið fór fyrir þætt- inum og spurður hvort honum hafi fundist spennandi að kynna ný lög án risavaxinnar kynningarherferð- ar segir hann að það hafi verið frá- bært. „Engin læti, bara ganga inn og spila tónlistina,“ segir hann. „Ég þrái samt það sem þú kallar „risavaxna kynningarherferð“. Það gerist aldrei.“ Morrissey er augljóslega bitur, eins og hann hefur reyndar verið síðustu þrjátíu ár. Hann er þó ánægður með nýju lögin og segir að þau séu öll mjög sterk. „Ég vil ekki flytja fleiri ný lög opinberlega því áður en maður veit af verður platan aðgengileg í ýmsum mynd- um fyrir utan tilbúna upptöku úr hljóðveri.“ Morrissey kom fram á Glastonbury-tónlistarhátíðinni í júní. Hann hitaði upp fyrir U2, en mikil rigning var á meðan á tón- leikunum stóð. „Í þannig aðstæðum getur maður ekki búist við miklu frá áhorfendum, ég held að þeir hafi líka komið til að sjá U2 — sem er skiljanlegt,“ segir Morrissey. „U2 er með risavaxna Star Wars- sviðsmynd og trommukjuða sem lýsa upp Norður-Afríku. Ég get ekki keppt við það. Það eina sem ég get boðið heiminum er lögin mín.“ atlifannar@frettabladid.is Enginn vill gefa út Morrissey BITUR Útgáfufyrirtæki hafa ekki stokkið til og samið við Morrissey, þrátt fyrir að hann hafi verið án samnings í tvö ár. NORDICPHOTOS/GETTY Tónlist ★★★ GAS Lögreglukórinn Plata sem byggir brú Það hefði sennilega fáum dottið það í hug þegar búsáhaldabyltingin stóð sem hæst að Lögreglukórinn ætti eftir að syngja lög eftir Hörð Torfason inn á plötu. En það er nú samt staðreynd. Á plötunni GAS (Góðir alþýðusöngvar) eru ellefu lög eftir nokkra af þeim íslensku trúbadorum sem hafa verið hvað duglegastir að gagnrýna valdhafana og berjast gegn óréttlæti. Höfundarnir eru, auk Harðar: Bergþóra Árnadóttir, Bubbi, KK, Megas og Magnús Þór Sigmundsson og svo eru líka textar eftir Stein Steinar, Sigurð Nordal og Laufeyju Jakobsdóttur. Nafn plötunnar (og umslag) sýnir líka að löggur geta vel haft húmor fyrir sjálfum sér. GAS er auðvitað bein tilvísun í ákveðið atvik í nýlegri mótmælaöldu. En það er ekki bara nafnið og lagavalið sem er ferskt á plötunni. Útsetningarnar eru líka óvenjulegar fyrir kóraplötu. Þetta er poppplata. Lögin eru flutt af einvala liði hljóðfæraleikara (Ómari Guðjóns, Samma, Steingrími Teague, Helga Svavari og Kjartani Hákonar ...) og gesta- söngvarar syngja forsöng í flestum lögunum, þar á meðal Sigríður Thorlacius, Jónas Sigurðsson, Sigtryggur Baldursson og Sigurður Guðmundsson. Kórinn raddar svo og sér alfarið um sönginn í lögunum Ást, Heiður bæjarins, Kveðja og Tvær stjörnur. Þetta er mjög vel heppuð plata. Lagavalið er frábært. Hver perlan rekur aðra. Auk fyrrnefndra laga eru m.a. á plötunni Verkamaðurinn, Hver hefur rétt, Englar himins, Um siðgæði, Þingmannagæla og Lífsbókin sem Steingrímur Teague syngur einstaklega vel. Á heildina litið er GAS skemmtileg og óvænt plata sem byggir brú á milli lögreglunnar og lýðsins. Það ætti kannski ekki að þurfa þar sem löggur eru jú hluti alþýðunnar, en GAS er góð leið til að minna á það! Trausti Júlíusson Niðurstaða: Lögreglukórinn og góðir gestir úr röðum poppara syngja lög eftir Hörð Torfa, KK, Bergþóru Árna, Bubba og Megas. ZOOKEEPER 4, 6 og 8 TRANSFORMERS: DARK OF THE MOON 4, 7 og 10 BRIDESMAIDS 4, 6.30, 9 og 10.10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar T.V. - kvikmyndir.is www.laugarasbio.is -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar ÁLFABAKKA EGILSHÖLL 12 12 12 12 12 12 12 12 12 12 10 10 10 10 10 L L L L L V I P AKUREYRI 12 12 KRINGLUNNI SELFOSS TRANSFORMERS 3 í 3D kl. 5 - 8 - 10 TRANSFORMERS 3 í 2D kl. 5 - 8 BEASTLY kl. 8 SUPER 8 kl. 5:40 - 8 - 10:20 THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:20 KUNG FU PANDA 2 M/ ísl. Tali Sýnd í 3D kl. 6 KUNG FU PANDA 2 M/ ísl. Tali Sýnd í 2D kl. 6 PIRATES OF THE CARRIBEAN 4 í 2D kl. 5 - 8 - 10:40 TRANSFORMERS 3 kl. 6 - 9 SUPER 8 kl. 6 - 8 - 10:20 TRANSFORMERS 3 3D kl. 4.45 - 6.45 - 8 - 10 SUPER 8 kl. 8 - 10.30 MR. POPPER’S PENGUINS kl. 5.30 - 8 HANGOVER PART II kl. 10.20 KUNG FU PANDA 2 3D ísl tal kl. 4.45 PIRATES OF THE CARIBBEAN 3D kl. 5  E.T WEEKLY HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI FLOTTASTA HASARMYND SUMARSINS Jaw“ dro- ppingly Amazing 3D!!!” Harry Knowles, A ntItCool.comi T“ he b st 3D s ‘ A ar’e ince vat ” Sc ott Ma tz, A ywl d n ccess Hol oo isoibMSA . t þér miða á gðu gyr TRANSFORMERS 3 í 3D kl. 6 - 8 - 9 (Power kl.11:10) BEASTLY kl. 6 - 10:20 SUPER 8 kl. 8 KUNG FU PANDA 2 M/ ísl. Tali Sýnd í 3D kl. 6 TRANSFORMERS 3 kl. 8 - 10:30 (Power kl.11:10) BRIDESMAIDS kl. 8 EKKI TALA VIÐ DÝRIN...NEMA ÞAU TALI VIÐ ÞIG FYRST! SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR -.T.V., SÉÐ & HEYRT „FRÁBÆR!“ B.G. - MBL. NÁNARI UPPLÝSINGAR OG MIÐASALA Á T.V. - KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ & HEYRT FLOTTASTA HASARMYND SUMARSINS ZOOKEEPER KL. 6 - 8 L BAD TEACHER KL. 6 - 8 - 10 14 BRIDESMAIDS KL. 10 12 ZOOKEEPER KL. 5.45 - 8 - 10.15 L BAD TEACHER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14 MR. POPPER´S PENGUINS KL. 5.50 - 8 - 10.10 L X-MEN: FIRST CLASS KL. 5.20 - 8 - 10.40 12 ZOOKEEPER KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15 L ZOOKEEPER Í LÚXUS KL. 3.30 - 5.45 L TRANSFORMERS 3 3D KL. 5 - 8 - 11 12 TRANSFORMERS 3 3D Í LÚXUS KL. 8 - 11 12 BAD TEACHER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14 MR. POPPER´S PENGUINS KL. 3.40 - 5.50 L BRIDESMAIDS KL. 8 - 10.40 12 KUNG FU PANDA 2 ÍSL TAL 3D KL. 3.40 L 5% „...MIKIL ÁGÆTIS SKEMMTUN FYRIR FJÖLSKYLDUNA“ B.B. - MBL. Lindsay Lohan lætur vaða á súðum í viðtali við Vanity Fair og segir að réttarkerfið í Bandaríkjunum hafi komið illa fram við sig. Hún hefði til að mynda aldrei átt að fara í fangelsi. Lohan komst margoft í kast við lögin, keyrði full og stal hálsmenni en þykir samt eins og hún hafi ekki notið sannmælis. Hún var nýlega dæmd í stofufangelsi fyrir að hafa rofið skilorð en hún var síðast á bakvið lás og slá 2010. Leikkonan segist ekki sjá tilganginn í því að fangelsa manneskjur sem beiti ekki ofbeldi. „Ég er ekki morð- ingi og ég hef ekki skaðað neinn annan en sjálfa mig.“ Átti ekki að fara í fangelsi EKKI OFBELD- ISMANN- ESKJA Lindsay Lohan segist ekki hafa átt heima í fangelsi, hún hafi ekki beitt neinn ofbeldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.