Fréttablaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 26
7. júlí 2011 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
„Á þessum tónleikum okkar Gunn-
steins Ólafssonar mun ég syngja og
sextán manna hljómsveit leika þrettán
lög sem ég söng inn á „long-play“ plötu
árið 1978,“ segir söngkonan Kristín Á.
Ólafsdóttir um tónleika sem haldnir
verða í Siglufjarðarkirkju á morgun
klukkan átta á Þjóðlagahátíð á Siglu-
firði. „Ég hef aldrei sungið öll þessi
lög í heild á tónleikum áður.“
Kristín safnaði saman lögunum
þrettán á plötunni, sem ber heit-
ið Íslensk þjóðlög. „Ég hafði mikinn
áhuga á þjóðlögum eftir söngnám hjá
Engel Lund, eða Göggu Lund eins og
hún var kölluð. Þessi danska kona
kenndi mér að meta íslensk þjóðlög,“
upplýsir Kristín sem fann þjóðlög-
in í bók séra Bjarna Þorsteinssonar,
Íslensk þjóðlög, og segulbandasafni
Ríkisútvarpsins.
Eftir að Kristín hafði safnað lög-
unum saman hafði hún samband við
Svavar Gests, plötuútgefanda „Ég
stakk upp á að við myndum biðja Atla
Heimi Sveinsson um að útsetja lögin,“
segir Kristín og heldur áfram: „Þegar
Atli var að útsetja hittumst við stund-
um og hann spilaði eiginlega alla
hljómsveitina á píanóið heima hjá sér.“
Kristín segir að Gunnsteinn Ólafs-
son, listrænn stjórnandi, hafi haft
samband við hana eftir áramótin og
beðið hana að syngja lögin af plötunni
á Þjóðlagahátíð, sem hefst í dag og
stendur fram á sunnudag. „Félagar úr
Caput hópnum og Sinfóníuhljómsveit
unga fólksins spila með mér. Flautu-
snillingurinn okkar Kolbeinn Bjarna-
son verður í þessum hópi,“ útskýrir
Kristín og nefnir að gítarleikarinn
Kristján Edelstein verði einnig með.
„Mér finnst skemmtilegt að hann er
sonur fyrsta tónlistarkennarans míns,
Stefáns Edelstein.“
Ætlarðu sjálf á tónleika á Þjóð-
lagahátíð? „Já, ég ætla endilega að
komast á tónleika og njóta þess sem
er í boði. Mig langar meðal annars
að lauma mér inn á fyrirlestra sem
haldnir eru í Þjóðlagaakademíunni en
þar er hægt að fræðast heilmikið um
íslensku þjóðlögin.“ martaf@frettabladid.is
KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR: FLYTUR ÞJÓÐLÖG SEM EKKI HAFA HEYRST Á TÓNLEIKUM
Þjóðlögin vöktu mikinn áhuga
SYNGUR ÞJÓÐLÖG Kristín hefur ekki sungið plötuna Íslensk þjóðlög í heild á tónleikum áður.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
MOSAIK
Elskulegur faðir minn og afi,
Pétur Bárðarson
fyrrverandi vélstjóri,
Fellaskjóli, Grundarfirði,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju í dag,
fimmtudaginn 7. júlí kl. 13.00.
Ólafur Pétur Pétursson
Kristín Eva Ólafsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu samhug og hlýhug við andlát
og útför eiginkonu minnar, móður,
dóttur og systur,
Brynhildar Ingadóttur
Fjallalind 88, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dagdeildar krabba-
meinslækninga, Heimahlynningar og líknardeildar
Landspítalans.
Þorkell L. Magnússon
Margrét Stefanía Þorkelsdóttir
Guðrún Þorkelsdóttir
Friðrik Ó. Þorkelsson
Ingi Kristinsson Hildur Þórisdóttir
Þórir Ingason Þorbjörg Karlsdóttir
Kristinn Ingason Bergdís H. Jónsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, sonur,
afi, langafi og bróðir,
Arnór Pétursson
Eskivöllum 3, Hafnarfirði,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi,
28. júní sl. verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
föstudaginn 8. júlí kl. 13.00.
Magný Ósk Arnórsdóttir Þór Kristjánsson
Sigrún Clausen Hreinn Sumarliðasson
barnabörn, barnabarnabörn og systkini.
80 ára afmæli
Sigríður Theodóra
Sæmundsdóttir,
Skarði, áttræð.
Sigríður Theodóra Sæmundsdóttir
húsfreyja í Skarði, Landsveit verður
áttræð sunnudaginn 10. júlí nk.
Þann dag langar hana að samfagna
með fjölskyldu, sveitungum og vinum
heima að Skarði.
Það verður guðsþjónusta í Skarðskirkju kl. 14.00 og
afmæliskaffi að henni lokinni. Skarðskirkja er afmælis-
barninu afar kær og því biður hún gesti að hugsa til hennar
og láta andvirði g jafa renna til kirkjunnar.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma, systir og frænka,
Antonía Marsibil
Lýðsdóttir
Skálateigi 7, Akureyri,
lést á Lyflækningadeild Sjúkrahúss Akureyrar fimmtu-
daginn 30. júní. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 8. júlí kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Sjúkrahús Akureyrar.
Sigurður Hermannsson
Kristín Sigurðardóttir
Erla G. Sigurðardóttir Jakob Yngvason
Sigurður Yngvi Jakobsson Kristófer Anton Jakobsson
Elín M. Lýðsdóttir Atli Sturluson
Steinunn Atladóttir Arndís Atladóttir Elskuleg eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
Jytte Lund Helgason
er látin. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 8. júlí kl. 11.00.
Birgir V. Helgason
Kristín Inga Birgisdóttir Erik Ingemann Jensen
Helgi Birgisson Gitte Dolberg
og barnabörn.
Okkar ástkæri,
Ragnar Hansen
múrarameistari,
lést á Landspítalanum þann 1. júlí. Útförin fer fram frá
Háteigskirkju föstudaginn 8. júlí kl. 13.00.
Jósefína Ragnarsdóttir Hansen
Helga Ragnarsdóttir Hansen Guðmundur Thor Guðmundsson
Friðrik Ragnarsson Hansen Katrín Ingadóttir
Hulda Ragnarsdóttir Hansen
Kristín Edda Ragnarsdóttir Hansen Hermann Guðmundsson
Kristófer Ragnarsson Hansen Ruth Elfarsdóttir
Sólveig Björg Ragnarsdóttir Hansen
Ragnar Stefán Ragnarsson Hansen Anna Gunnarsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Margrét Helgadóttir
frá Fossi á Síðu,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Klausturhólum 28. júní,
verður jarðsungin frá Prestsbakkakirkju á Síðu laugar-
daginn 9. júlí kl. 14.00.
Páll Helgason Ólafía Davíðsdóttir
Fanney Helgadóttir
Hjördís Helgadóttir Hreggviður Hermannsson
Helga Helgadóttir Gunnar B. Þórisson
Þórhallur Helgason
og ömmubörn.
MARGRÉT GUÐNADÓTTIR prófessor er 82 ára í dag.
„Í mínum augum er jörðin sameign allra lífvera, hún er
ekki einu sinni séreign manna, hvað þá séreign örfárra
ríkra manna.“
82