Fréttablaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 07.07.2011, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 7. júlí 2011 23 Reglulega berast fréttir af mikilli ávísun lækna á til- tekna lyfjaflokka hér á landi. Umræðan sem þessu fylgir rist- ir hins vegar oftast svo grunnt að hinn almenni borgari stendur lítt upplýstur eftir. Því er nauð- synlegt að opna lyfjaumræðuna enn frekar. Ekki síst þegar haft er í huga að í opnu bréfi 19 lækna og vísindamanna til breskra stjórnvalda, sem birtist 4. júní sl. í breska læknablaðinu Lancet, kemur fram að nú geisi faraldur alvarlegra lyfjaaukaverkana. Til marks um það tífaldaðist tíðni þeirra í Bandaríkjunum á ára- bilinu 1985-2005. Það hlýtur því að sæta tíðindum þegar heims- þekkt læknatímarit birtir grein þar sem læknar eru hvattir til aðhaldssemi í lyfjaávísunum. Umrædd grein, „Principles of Conservative Prescribing“, birtist 13. júní sl. á heimasíðu Archives of Internal Medicine. Hún virð- ist vera viðbragð við þeirri miklu umræðu sem átt hefur sér stað á undanförnum árum um óæski- leg áhrif lyfjaiðnaðarins á ávís- anir lækna. Greinarhöfundar benda á að ólíkt annarri færni sem læknar þurfa að tileinka sér séu lyfjaávísanir oft drifnar af markaðsstarfi iðnaðarins. Hér er um grundvallaratriði að ræða enda hafa endurteknar rann- sóknir sýnt fram á að markaðs- starf getur haft óæskileg áhrif á lækna. Það þarf því ekki að koma á óvart að í greininni eru læknar varaðir við upplýsingum sem full- trúar lyfjaiðnaðarins láta þeim í té, enda eigi að gera ráð fyrir að þær leggi áherslu á ávinning lyfja en gerir lítið úr áhættunni sem þeim kann að fylgja. Eru læknar hvattir til þess að leita sér óháðra upplýsinga um lyf, s.s. hjá Medi- cal Letter, Prescrire og Worst Pills, Best Pills. Í greininni eru talin upp sex atriði sem liggja til grund vallar aðhaldssamri ávísun lyfja: 1) Hugsa um aðrar leiðir en lyf, 2) beita meiri herkænsku við lyfja- ávísanir, 3) vera stöðugt á varð- bergi gagnvart alvarlegum auka- verkunum, 4) vera gagnrýnin og á varðbergi gagnvart nýjum lyfjum, 5) vinna með sjúklingum að sameiginlegu markmiði og 6) vera vakandi fyrir langtíma- áhrifum lyfja. Ein og sér fela atriðin ekki í sér neitt nýtt en eins og grein- arhöfundar benda á mynda þau saman grundvallaráherslubreyt- ingu í lyfjaávísunum, frá „nýrri og fleiri [lyf] er betra“ að „færri og betur þekkt er best“. Til þess að undirstrika mikilvægi tillagn- anna er bent á að „hið nýlega flóð uppljóstrana um huldar eða óvæntar alvarlegar aukaverkan- ir í mörgum lyfjaflokkum ætti að vera áminning til stéttarinnar um að tileinka sér hófsamari og var- kárari lyfjaávísanir“. Í marshefti American Journ- al of Public Health birtist grein þar sem prófessorarnir Howard Brody og Donald Light varpa ljósi á rót vandans. Í greininni sýna þeir fram á að beint samband er á milli aukins markaðsstarfs fyrir ákveðið lyf og versnandi hlutfalls milli ávinnings og áhættu sem lyfinu fylgir. Þeir leggja áherslu á að vísindamenn lyfjafyrirtækj- anna vinni auð vitað að því hörð- um höndum að búa til lyf sem séu örugg og hafi góða virkni. Vandamálið liggi hins vegar hjá markaðsdeildum fyrirtækjanna sem geti breytt góðum lyfjum í slæm með því að stuðla að notk- un þeirra langt umfram það sem er vísindalega staðfest. Þessu er m.a. náð fram með því að lækka greiningarþröskulda sjúkdóma, ýkja öryggi og virkni lyfja og hvetja lækna til þess að ávísa lyfj- um á einkenni og sjúkdóma sem ekki liggur opinbert samþykki fyrir (off-label marketing). „Með því að leyfa gróða- drifnum iðnaði að hafa svo mikil áhrif á starf sitt, menntun og rannsóknir“ segja Brody og Light „læknastéttina hafa stofnað í hættu trúverðugleika læknavís- inda og getu sjúklinga og almenn- ings til þess að treysta ráðlegg- ingum lækna“. Kominn er tími til þess að grípa í taumana, enda virðast hvorki siðareglur lækna né reglur sem einstakar stofnanir setja sér hafa dugað til þess að stemma stigu við óæskilegu áhrifum lyfja- iðnarins á lyfjaávísanir lækna. Til marks um þetta samþykkti Bandaríkjaþing í fyrra Lækna- greiðsluupplýsingalögin (The Physician Payment Sunshine Act) sem skylda lyfjaframleiðendur og framleiðendur lækningatækja til að birta opinberlega frá og með 2013 upplýsingar um allar gjafir og greiðslur sem kennslusjúkra- hús og einstakir læknar fá. Nú þegar eru nokkur fyrirtæki farin að birta upplýsingarnar og hefur Pro Publica safnað þeim saman í opinn og leitanlegan gagnagrunn (http://projects.propublica.org/ docdollars/). Bandaríska geð- læknafélagið hefur einnig brugð- ist við þessari umræða með því að banna smátt og smátt á næstu árum fyrirlestra og málsverði sem lyfjafyrirtækin kosta á árlegri ráðstefnu félagsins. Ég tel nauðsynlegt að fá sam svarandi lög sett hér á landi sem og regl- ur sem skylda Læknafélagið og einstök sérgreinafélög þess til að fara að fordæmi bandarískra geðlækna. Um aðhaldssamar lyfjaávísanir Heilbrigðismál Steindór J. Erlingsson vísindasagnfræðingur Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010 Meira í leiðinni N1 VERSLANIR: REYKJAVÍK BÍLDSHÖFÐA 9, KÓPAVOGI, HAFNARFIRÐI, AKUREYRI, AKRANESI, ÓLAFSVÍK, ÍSAFIRÐI, EGILSSTÖÐUM, VESTMANNAEYJUM, GRINDAVÍK, KEFLAVÍK, SELFOSSI, REYÐARFIRÐI OG HÖFN vr. 1244 201930 Bushell golf fjarlægðarmælir, YP Tour V2. 58.950 kr. vr. 909 33560 Geislahitari, 4300w. 17.900 kr. BYRJAÐU FERÐINA Á GÓÐU VERÐI N1 STÓRVERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9 vr. 076 900653 Ferðagrill Porta Chef Pro 29.900 kr. vr. 1244 CS04B LE vr. 1244 CS04B Golfsett fyrir karla og konur. Verð áður: 39.900 kr. 34.900 kr. vr. 909 79841 Nefhjól,gegnheilt gúmmí/200x50mm, ber 150kg 5.900 kr. vr. 909 82100 Speglar. Framlengingar- sett 12.900 kr. vr. 909 50831 25 ltr. 12/230V ca. 48w. Verð áður 24.900 kr. 19.900 kr. vr. 909 78360 Þjófavörn fyrir tengivagn. Læsing á kúlu. 4.980 kr. vr. 1207 2 Golfregnhlíf. Svört Mundo. 3.286 kr. 20% afsláttur vr. 1254 2 layer Golfboltar 25 stk. í poka. 4.690 kr. vr. 838 67828100 Framlenging í vindlakveikjara, 0,6 - 3 mtr. 2.890 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.