Fréttablaðið - 07.07.2011, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR 7. júlí 2011 23
Reglulega berast fréttir af mikilli ávísun lækna á til-
tekna lyfjaflokka hér á landi.
Umræðan sem þessu fylgir rist-
ir hins vegar oftast svo grunnt
að hinn almenni borgari stendur
lítt upplýstur eftir. Því er nauð-
synlegt að opna lyfjaumræðuna
enn frekar. Ekki síst þegar haft
er í huga að í opnu bréfi 19 lækna
og vísindamanna til breskra
stjórnvalda, sem birtist 4. júní
sl. í breska læknablaðinu Lancet,
kemur fram að nú geisi faraldur
alvarlegra lyfjaaukaverkana. Til
marks um það tífaldaðist tíðni
þeirra í Bandaríkjunum á ára-
bilinu 1985-2005. Það hlýtur því
að sæta tíðindum þegar heims-
þekkt læknatímarit birtir grein
þar sem læknar eru hvattir til
aðhaldssemi í lyfjaávísunum.
Umrædd grein, „Principles of
Conservative Prescribing“, birtist
13. júní sl. á heimasíðu Archives
of Internal Medicine. Hún virð-
ist vera viðbragð við þeirri miklu
umræðu sem átt hefur sér stað á
undanförnum árum um óæski-
leg áhrif lyfjaiðnaðarins á ávís-
anir lækna. Greinarhöfundar
benda á að ólíkt annarri færni
sem læknar þurfa að tileinka sér
séu lyfjaávísanir oft drifnar af
markaðsstarfi iðnaðarins. Hér
er um grundvallaratriði að ræða
enda hafa endurteknar rann-
sóknir sýnt fram á að markaðs-
starf getur haft óæskileg áhrif á
lækna. Það þarf því ekki að koma
á óvart að í greininni eru læknar
varaðir við upplýsingum sem full-
trúar lyfjaiðnaðarins láta þeim í
té, enda eigi að gera ráð fyrir að
þær leggi áherslu á ávinning lyfja
en gerir lítið úr áhættunni sem
þeim kann að fylgja. Eru læknar
hvattir til þess að leita sér óháðra
upplýsinga um lyf, s.s. hjá Medi-
cal Letter, Prescrire og Worst
Pills, Best Pills.
Í greininni eru talin upp sex
atriði sem liggja til grund vallar
aðhaldssamri ávísun lyfja: 1)
Hugsa um aðrar leiðir en lyf, 2)
beita meiri herkænsku við lyfja-
ávísanir, 3) vera stöðugt á varð-
bergi gagnvart alvarlegum auka-
verkunum, 4) vera gagnrýnin
og á varðbergi gagnvart nýjum
lyfjum, 5) vinna með sjúklingum
að sameiginlegu markmiði og
6) vera vakandi fyrir langtíma-
áhrifum lyfja.
Ein og sér fela atriðin ekki í
sér neitt nýtt en eins og grein-
arhöfundar benda á mynda þau
saman grundvallaráherslubreyt-
ingu í lyfjaávísunum, frá „nýrri
og fleiri [lyf] er betra“ að „færri
og betur þekkt er best“. Til þess
að undirstrika mikilvægi tillagn-
anna er bent á að „hið nýlega
flóð uppljóstrana um huldar eða
óvæntar alvarlegar aukaverkan-
ir í mörgum lyfjaflokkum ætti að
vera áminning til stéttarinnar um
að tileinka sér hófsamari og var-
kárari lyfjaávísanir“.
Í marshefti American Journ-
al of Public Health birtist grein
þar sem prófessorarnir Howard
Brody og Donald Light varpa ljósi
á rót vandans. Í greininni sýna
þeir fram á að beint samband er á
milli aukins markaðsstarfs fyrir
ákveðið lyf og versnandi hlutfalls
milli ávinnings og áhættu sem
lyfinu fylgir. Þeir leggja áherslu
á að vísindamenn lyfjafyrirtækj-
anna vinni auð vitað að því hörð-
um höndum að búa til lyf sem
séu örugg og hafi góða virkni.
Vandamálið liggi hins vegar hjá
markaðsdeildum fyrirtækjanna
sem geti breytt góðum lyfjum í
slæm með því að stuðla að notk-
un þeirra langt umfram það sem
er vísindalega staðfest. Þessu er
m.a. náð fram með því að lækka
greiningarþröskulda sjúkdóma,
ýkja öryggi og virkni lyfja og
hvetja lækna til þess að ávísa lyfj-
um á einkenni og sjúkdóma sem
ekki liggur opinbert samþykki
fyrir (off-label marketing).
„Með því að leyfa gróða-
drifnum iðnaði að hafa svo mikil
áhrif á starf sitt, menntun og
rannsóknir“ segja Brody og Light
„læknastéttina hafa stofnað í
hættu trúverðugleika læknavís-
inda og getu sjúklinga og almenn-
ings til þess að treysta ráðlegg-
ingum lækna“.
Kominn er tími til þess að grípa
í taumana, enda virðast hvorki
siðareglur lækna né reglur sem
einstakar stofnanir setja sér hafa
dugað til þess að stemma stigu
við óæskilegu áhrifum lyfja-
iðnarins á lyfjaávísanir lækna.
Til marks um þetta samþykkti
Bandaríkjaþing í fyrra Lækna-
greiðsluupplýsingalögin (The
Physician Payment Sunshine Act)
sem skylda lyfjaframleiðendur og
framleiðendur lækningatækja til
að birta opinberlega frá og með
2013 upplýsingar um allar gjafir
og greiðslur sem kennslusjúkra-
hús og einstakir læknar fá. Nú
þegar eru nokkur fyrirtæki farin
að birta upplýsingarnar og hefur
Pro Publica safnað þeim saman í
opinn og leitanlegan gagnagrunn
(http://projects.propublica.org/
docdollars/). Bandaríska geð-
læknafélagið hefur einnig brugð-
ist við þessari umræða með því
að banna smátt og smátt á næstu
árum fyrirlestra og málsverði
sem lyfjafyrirtækin kosta á
árlegri ráðstefnu félagsins. Ég tel
nauðsynlegt að fá sam svarandi
lög sett hér á landi sem og regl-
ur sem skylda Læknafélagið og
einstök sérgreinafélög þess til
að fara að fordæmi bandarískra
geðlækna.
Um aðhaldssamar lyfjaávísanir
Heilbrigðismál
Steindór J.
Erlingsson
vísindasagnfræðingur
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010 Meira í leiðinni
N1 VERSLANIR: REYKJAVÍK BÍLDSHÖFÐA 9, KÓPAVOGI, HAFNARFIRÐI, AKUREYRI,
AKRANESI, ÓLAFSVÍK, ÍSAFIRÐI, EGILSSTÖÐUM, VESTMANNAEYJUM,
GRINDAVÍK, KEFLAVÍK, SELFOSSI, REYÐARFIRÐI OG HÖFN
vr. 1244 201930
Bushell golf
fjarlægðarmælir,
YP Tour V2.
58.950 kr.
vr. 909 33560
Geislahitari,
4300w.
17.900 kr.
BYRJAÐU FERÐINA
Á GÓÐU VERÐI
N1 STÓRVERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9
vr. 076 900653
Ferðagrill
Porta Chef Pro
29.900 kr.
vr. 1244 CS04B LE
vr. 1244 CS04B
Golfsett fyrir karla
og konur.
Verð áður: 39.900 kr.
34.900 kr.
vr. 909 79841
Nefhjól,gegnheilt
gúmmí/200x50mm,
ber 150kg
5.900 kr.
vr. 909 82100
Speglar.
Framlengingar-
sett
12.900 kr.
vr. 909 50831
25 ltr.
12/230V ca.
48w.
Verð áður 24.900 kr.
19.900 kr.
vr. 909 78360
Þjófavörn fyrir
tengivagn.
Læsing á kúlu.
4.980 kr.
vr. 1207 2
Golfregnhlíf.
Svört Mundo.
3.286 kr.
20%
afsláttur
vr. 1254 2 layer
Golfboltar
25 stk. í poka.
4.690 kr.
vr. 838 67828100
Framlenging í
vindlakveikjara,
0,6 - 3 mtr.
2.890 kr.