Fréttablaðið - 07.07.2011, Qupperneq 8
7. júlí 2011 FIMMTUDAGUR8
FRÉTTASKÝRING
Er netbóla að blása út í annað skipti?
Þegar netbólan svokallaða sprakk
árið 2000 hrundi hlutabréfaverð
þúsunda nýsköpunar- og tækni-
fyrirtækja um allan heim eins og
um spilaborg hefði verið að ræða.
Óhófleg bjartsýni um vaxtar-
möguleika internetfyrirtækja og
breyttar forsendur í viðskiptum á
21. öldinni, hafði þrýst virði net-
fyrirtækja langt upp fyrir það
sem eðlilegt gat talist. En í mörg-
um tilvikum voru fyrirtæki metin
á hundruð milljóna Bandaríkja-
dala þrátt fyrir nær ekkert tekju-
streymi og í besta falli hugmynd
sem hafði ekki sannað gildi sitt.
Í áratug síðan hefur netbólunni
verið stillt upp sem kennslubókar-
dæmi um það hvernig hlutabréfa-
markaðurinn getur villst af leið.
Það kann því að koma mörgum
á óvart að undanfarna mánuði
hefur nokkur fjöldi sérfræðinga
lýst því yfir að ný netbóla sé að
blása út. The Economist fjallaði
fyrir stuttu um málið og sagði
kveikjuna að þessum áhyggjum
vera skyndilega endurvakningu
markaðarins fyrir hlutafjárútboð
internetfyrirtækja en hann hefur
því sem næst legið niðri í áratug.
Nýlegt hlutafjárútboð við-
skiptatengslasíðunnar LinkedIn,
sem tvöfaldaðist í verði á fyrsta
degi viðskipta, og skráning fjölda
kínverskra og rússneskra net-
fyrirtækja á markað í Banda-
ríkjunum hefur vakið upp minnn-
ingar um ofurbjartsýnina sem
ríkti í kringum netfyrirtæki í lok
tíunda áratugarins. Þetta er þó
bara byrjunin, segja menn, bólan
fer virkilega að blása út þegar
Facebook fer á markað, sem talið
er að gerist á næsta ári.
Því verður í það minnsta ekki
haldið fram að markaðurinn sé
svartsýnn á vaxtarmöguleika
„heitustu“ netfyrirtækjanna.
Hópkaupasíðan Groupon hefur
tilkynnt um hlutafjárútboð og er
búist við því að hlutir í henni selj-
ist á 15 milljarða dala, eða jafn-
gildi 1.727 milljarða íslenskra
króna. Þá er Facebook metið á
70 milljarða dala og Twitter, sem
enn hefur ekki skilað hagnaði, á
10 milljarða dala.
Fyrir þeim sem telja nýja bólu
orðna til eru þetta upphæðir sem
einfaldlega geta ekki staðist. Efa-
semdamenn segja að þótt örfá
netfyrirtæki hafi kannski inni-
stæðu fyrir slíku verðmati þá
virðist fjárfestar nú telja að allar
nýjar vefsíður muni slá í gegn.
Í Kísildal eru þó fæstir sam-
mála þessu mati. Þar er bent á að
enn hafi fá stór netfyrirtæki farið
í hlutafjárútboð auk þess sem
engar vísbendingar séu til stað-
ar um að fjárfestar séu að missa
sig, en til að mynda er NASDAQ-
hlutabréfavísitalan enn langt
undir því sem var þegar hún stóð
hæst í mars árið 2000. Þá hefur
fjöldi nettengdra vaxið gríðar-
lega undanfarin tíu ár auk þess
sem háhraðanettengingar hafa
víða tekið við af þeim hægari sem
eykur möguleika netfyrirtækja.
Hvort um bólu sé að ræða eða
einfaldlega eðlilega þróun í sí-
vaxandi geira skal ósagt látið.
Það verður hins vegar spenn-
andi að sjá hvernig næstu hluta-
fjárútboð netfyrirtækja ganga.
Sé bóla að blása út eru án efa til
staðar fjárfestingartækifæri til
skemmri tíma í umtöluðustu net-
fyrirtækjunum þótt hættan á því
að brenna inni sé vitaskuld alltaf
til staðar. magnusl@frettabladid.is
milljarðar dala er
andvirði Twitter,
sem þó hefur
enn ekki skilað hagnaði.
10
ÞÓR HF
REYKJAVÍK - AKUREYRI
Sláttutraktorar
Reyk j av í k :
K r ó k h á l s 1 6
Á r m ú l a 1 1
S í m i 5 6 8 - 1 5 0 0
Aku r ey r i :
L ó n s b a k k a
S í m i 5 6 8 - 1 5 5 5
w w w. t h o r. i s
1. Hvar er nú unnið að gerð
sjóvarnargarðs?
2. Hvað verður heildarþorskkvót-
inn mikill á næsta ári?
3. Hvor handboltakappanna á
bak við hárgelsfyrirtækið Silver er
hættur?
SVÖR:
Sjá ýmsar vísbendingar um
aðra bólu í tæknigeiranum
Rúmum áratug eftir að netbólan sprakk óttast margir að sagan sé að endurtaka sig. Virði tengslasíðunnar
LinkedIn tvöfaldaðist nýverið á fyrsta degi viðskipta eftir hlutafjárútboð og Facebook er á leið á markað.
KÍSILDALUR Þótt efnahagslífið í Bandaríkjunum sé ekki eins og best verður á kosið
ríkir bjartsýni hjá netfyrirtækjum. NORDICPHOTOS/AFP
BANDARÍKIN, AP Allar bendir nú
til þess að Casey Anthony, sem
setið hefur í gæsluvarðhaldi í tæp
þrjú ár grunuð um að hafa myrt
tveggja ára dóttur sína, verði látin
laus í dag þegar kveðinn verður
upp dómur í máli hennar.
Á þriðjudag sýknaði kviðdómur
hana af morðákærunni en dæmdi
hana seka um að hafa logið að lög-
reglu um tildrög hvarfs dótturinn-
ar. Líklegt er talið að Anthony fái
fjögurra ára fangelsisdóm fyrir
þau brot, en þar sem hún hefur
þegar setið nærri þrjú ár í gæslu-
varðhaldi er talið líklegt að sú
refsing verði látin duga og hún því
látin laus.
Casey Anthony yfirgaf heim-
ili sitt um leið og dóttirin hvarf.
Næsta mánuðinn stundaði hún
skemmtanalífið grimmt og lét
engan vita af hvarfi dótturinnar.
Hún var síðar þá handtekin og
ákærð fyrir að hafa myrt barnið.
Líkið fannst skammt frá heimili
foreldra hennar í desember 2008.
Anthony héldu því fram að dóttir
henna hafi drukknað af slysförum
í sundlaug foreldra hennar. Hún
hafi þá fyllst örvilnan, falið líkið
og forðað sér. - gb
Kviðdómur sýknar bandaríska móður af ákæru um að hafa drepið dóttur sína:
Bíður dóms fyrir minni glæpi
CASEY ANTHONY EFTIR SÝKNUÚRSKURÐ
KVIÐDÓMS Foreldrar hennar hafa ekkert
talað við hana síðan hún var handtekin.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMGÖNGUMÁL „Ég skil mjög vel þá kröfu sem Vest-
firðingar setja fram um Dýrafjarðargöng og vega-
bætur á Dynjandisheiði, að ógleymdum vegabótum
á Suðurströndunum,“ sagði Ögmundur Jónasson,
innanríkisráðherra og ráðherra vegamála. Hann
var einmitt á ferðinni yfir Dynjandisheiði þegar
Fréttablaðið sló á þráðinn.
Hann sagði að ekki mætti þó gleyma þeim úr-
bótum sem gerðar hefðu verið á Vestfjörðum undan-
farin ár. „Við fórum í gær frá Hólmavík, yfir Stein-
grímsfjarðarheiði og síðan allt Djúpið til Ísafjarðar
og þar er vegur mjög góður enda slitlag alls staðar.
Öðru máli gegnir um leiðina frá Ísafirði og suður
fyrir í Dýrafjörð og Arnarfjörð,“ segir hann.
Hann segir að þótt Vestfirðingar hafi sterkar
skoðanir á vegakerfinu sé gott að ræða við þá um
þessi mál þar sem þeir séu lausnamiðaðir. „Ann-
ars fannst mér heimamenn hafa mestar áhyggjur
af því að vegurinn yfir Dynjandisheiði væri með
besta móti núna þegar við eigum leið um hann með
rannsóknargleraugun á nefinu,“ sagði ráðherrann
og játti því svo að augljóslega væri nýbúið að hefla
veginn.
Við svo kveðið slitnaði GSM-sambandið, sem er
býsna skrykkjótt uppi á Dynjandisheiði. - jse
Ráðherra vegamála kynnist vestfirskum malarvegum af eigin raun:
Skilur vel kröfur Vestfirðinga
FRÁ DYNJANDISHEIÐI Ráðherrann kvartaði ekki yfir útsýninu
á Dynjandisheiði en vegirnir þar eru ekki jafn indælir þótt
nýheflaðir séu. Þessi mynd er tekin af veginum þar.
SAMGÖNGUR Fjölmiðlar og aðrir
eru beðnir um að láta af óvæg-
inni gagnrýni á ferðir Herjólfs í
Landeyjahöfn í yfirlýsingu sem
Eimskip sendi frá sér í gær.
Þar segir að að allt tal um að
Eimskipafélagið leggist gegn
siglingum til Landeyjahafnar
sé alrangt. Fréttablaðið hafði
það eftir heimildum í vikunni að
vilji væri fyrir því hjá Eimskipi
að loka höfninni tímabundið í
nokkra mánuði næsta vetur.
Í yfirlýsingunni segir jafn-
framt að aðeins fimm ferðir af
266 hafi fallið niður frá því höfn-
in opnaði eftir nokkurt hlé þann
4. maí síðastliðinn. - sv
Eimskip um ferðir Herjólfs:
Fjölmiðlar láti
af gagnrýninni
HERJÓLFUR Herjólfur hefur aflýst fimm
ferðum af 266 síðan Landeyjahöfn var
opnuð í maí. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
DÓMSMÁL Átján ára piltur hefur
verið dæmdur í Héraðsdómi
Austurlands í tveggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir
þjófnaði og fleiri afbrot.
Ungi maðurinn braust, ásamt
öðrum, inn í sumarbústaði, fyrir-
tæki, geymslugám og hafnsögu-
bátinn Vött. Þeir stálu fyrir á
þriðju milljón króna.
Við ákvörðun refsingar leit
dómurinn til þess að maðurinn
játaði greiðlega og flestir mun-
anna sem hann stal komust til
skila. - jss
Fjölmörg þjófnaðarbrot:
18 ára dæmdur
fyrir þjófnað
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu upprætti kanna-
bisræktun í einbýlishúsi í austur-
borginni í fyrrakvöld og handtók
ræktandann.
Lögreglu barst ábending um sér-
kennilega lykt frá húsinu og við
rannsókn fundust áttatíu kannabis-
plöntur í kjallara þess auk tveggja
kílóa af tilbúnu kannabis.
Hald var lagt á efnið og plönt-
urnar, en manninum var sleppt að
loknum yfirheyrslum. Hann mun
áður hafa verið staðinn að kanna-
bisræktun, enda var faglega staðið
að ræktuninni, sem fannst í fyrra-
kvöld, að sögn lögreglu. - jss
Lykt kom upp um ræktun:
Var tekinn með
efni og plöntur
1. við vík í mýrdal 2. 177 þúsund tonn 3.
Logi Geirsson.
VEISTU SVARIÐ?