Fréttablaðið - 07.07.2011, Page 48
7. júlí 2011 FIMMTUDAGUR36
bio@frettabladid.is
> ÁHÆTTULEIKARI SLASAST
Tökum á Batman-myndinni The
Dark Knight Rises var frestað eftir
að áhættuleikari slasaðist alvarlega
við tökur á fallhlífaratriði yfir Skot-
landi. Leikarinn hrapaði til jarðar í
sumar bústaðabyggð en hann ku
ekki vera í lífshættu. Christian Bale
leikur sem fyrr Bruce Wayne eða
Leðurblökumanninn.
Johnny Depp hefur augljóslega
ekki fengið nóg af því að vera
þvoglumæltur á hvíta tjaldinu.
Samkvæmt bandarískum kvik-
myndavefjum er leikarinn á góðri
leið með að ná samkomulagi um að
leika í fimmtu myndinni um Jack
Sparrow og sjóræningja Karíba-
hafsins.
Hinar myndirnar fjórar hafa
allar malað gull og On Stranger
Tides fékk prýðilegar viðtökur hjá
áhorfendum og gagnrýnendum.
Jerry Bruckheimer, stórmynda-
framleiðandinn, tjáði LA Times
að hann langaði virkilega til að
gera fimmtu myndina. „En það
veltur auðvitað allt á handritinu.
Það er verið að vinna í því núna
og svo sjáum við til hvað Depp
segir. Ég geri ekki aðra sjóræn-
ingjamynd án hans og hann mun
ekki gera myndina ef hann er ekki
ánægður með handritið. Hann vill
alls ekki valda aðdáendum sínum
vonbrigðum,“ sagði Bruckheimer
skömmu eftir frumsýninguna á On
Stranger Tides í fyrra.
Bruckheimer bætti því við að
velgengni fjórðu myndarinnar
hefði mikið um málið að segja en
hún náði því um helgina að hafa
þénað einn milljarð Bandaríkja-
dala í miðasölu á heimsvísu. - fgg
Johnny Depp gerir
númer fimm
Í SJÓRÆNINGJAGALLANN Johnny Depp gæti leikið Jack Sparrow í fimmtu myndinni.
Leikkonurnar Angelina Jolie og Sarah Jessica
Parker eru launahæstu leikkonurnar í Holly-
wood samkvæmt útreikningum Forbes-tímarits-
ins. Jolie hefur átt ágætu gengi að fagna á hvíta
tjaldinu en kvikmyndirnar Salt og The Tourist
nutu báðar mikillar hylli í miðasölu. Forbes
heldur því fram að Jolie hafi þénað 30 milljón-
ir dollara eða tæplega þrjá og hálfan milljarð
íslenskra króna frá því í maí á síðasta ári til maí
á þessu ári.
Sara Jessica Parker var með svipað í laun en
hún græðir mest á því að þættirnir um Car-
rie og vinkonur hennar í Beðmálum í borginni
eru sýndir aftur og aftur og aftur í sjónvarpi
út um allan heim. Þá komu ófáar krónur í kass-
ann fyrir mynd númer tvö í Sex and the City-
flokknum og leikkonan fékk dágóða summu
fyrir samstarf sitt við tískuhúsið Halston.
Í þriðja til fjórða sæti eru síðan Jenni-
fer Aniston og Reese Witherspoon. Þær
tvær voru með 28 milljónir dollara í laun á
umræddu tímabili eða rúma þrjá milljarða. Í
fimmta sætinu er loks Julia Roberts með 20
milljónir dollara í laun eða rúma tvo millj-
arða en hún var lengi vel með hæsta launa-
tékkann í Hollywood. -fgg
Leikkonur loðnar um lófana
MEÐ FULLA VASA FJÁR Angelina Jolie og Sarah Jessica
Parker fengu báðar þrjá og hálfan milljarð í laun á
einu ári samkvæmt útreikningum Forbes-tímaritsins.
Þær eru því með bestu launin í Hollywood um þessar
mundir. Reese Witherspoon hefur einnig gert það gott
á árinu, hún var með rúma þrjá milljarða í árslaun.
Danny Boyle er að safna liði fyrir
kvikmynd sína Trance en leik-
stjórinn hefur átt góðu gengi að
fagna undanfarin ár með kvik-
myndum sínum Slumdog Million-
aire og 127 Hours.
Boyle var sagður hafa náð sam-
komulagi við írska leikarann
Michael Fassbender um að leika
aðalhlutverkið í Trance en leikar-
inn er nú búinn að draga sig út úr
verkefninu. Boyle er því áhuga-
samur um að fá Óskarsverðlauna-
leikarann Colin Firth til að hlaupa
í skarðið.
Trance segir frá aðstoðarmanni
hjá uppboðshúsi sem skipuleggur
flókið rán á verðmætu málverki.
Hann fær aðstoð hjá færum þjóf-
um en verður fyrir höfuðhöggi og
missir minnið. Hann er hins vegar
sá eini sem veit hvar málverk-
ið er niðurkomið og þá fara þjóf-
arnir að gruna hann um græsku.
Þeir ákveða því að fá unga konu
til að vinna sér leið inn í heilabú
aðstoðar mannsins með dáleiðslu.
Firth er ekki eini leikarinn sem
Boyle hefur áhuga á því Scarlett
Johansson var orðuð við mynd-
ina á Twitter-síðum í gær.
Ekkert hefur þó verið stað-
fest í þeim efnum en Boyle
hyggst byrja á myndinni
eftir að hann hefur leik-
stýrt opnunaratriðinu fyrir
Ólympíuleikana í London á
næsta ári. - fgg
Boyle hefur augastað á Firth
GÓÐUR HÓPUR Danny Boyle vill
fá Colin Firth til að leika þjóf í
sinni nýjustu mynd, Trance. Scar-
lett Johansson kemur sterklega til
greina í aðalkvenhlutverkið.
Það er alltaf pláss fyrir
þéttvaxna ameríska
brandara karla á hvíta
tjaldinu, kannski af því að
Bandaríkjamenn eru meðal
feitustu þjóða heims. Og
húmorinn er fremur einfald-
ur; hann gengur út á át, búk-
hljóð og líkamsbygginguna.
Kevin James er nýjasta viðbótin
í hóp feitra stuðkarla. Kvikmynd
hans, Zookeeper, verður frum-
sýnd um helgina en hún segir frá
dýragarðsverðinum Griffin Keyes
sem segir starfi sínu lausu til
að ganga í augun á drauma-
stúlkunni. Dýrin í dýragarð-
inum eru ákaflega óánægð
með þessa ákvörðun Keyes,
enda þykir hann nokkuð fær
í sínu starfi, og ákveða í sam-
einingu að uppljóstra leyndar-
máli sínu; þau geta talað.
Feiti, fyndni karlinn hefur
verið til í kvikmyndasögunni frá
dögum þöglu myndanna. Lau-
rel og Hardy voru skarpar and-
stæður; Stan Laurel grannur og
veiklulegur en Oliver Hardy þétt-
vaxinn, sterkur og yfirleitt gír-
ugur til annað hvort matar eða
peninga. Hiklaust er hægt að
setja John Belushi í þennan flokk,
hann notaði holdafar sitt til gam-
anleiks á áttunda og níunda ára-
tug síðustu aldar. Belushi stundaði
það meðan á tökum á SNL-þáttun-
um stóð að mæta óboðinn heim til
fólks í nágrenni við tökustaðinn
og éta úr ísskáp þess. Hann fannst
síðan iðulega sofandi í ókunnugum
húsum. Belushi nýtti sér þessa
hegðun sína í „skets“ fyrir SNL en
hann lést aðeins 33 ára aldri eftir
að hafa tekið of stóran skammt af
„speedball“, lífshættulegri blöndu
af kókaíni og heróíni.
John Candy barðist alla tíð við
aukakílóin, var 150 kíló og gerði
sjálfum sér engan greiða með því
að reykja heilan pakka af sígar-
ettum á dag. Hann lést úr hjarta-
áfalli aðeins 54 ára að aldri. Candy
náði engu að síður miklum frama
í kvikmyndaleik; lék í mörgum af
fyndnustu kvikmyndum níunda
áratugarins, þar á meðal hinum
ógleymanlegu Planes, Trains &
Automobiles, Uncle Buck, Who‘s
Harry Crumb og Spaceballs.
Chris Farley kom í kjölfarið
á Candy og flestir virtust sam-
mála um að hann ætti framtíð-
ina fyrir sér í gamanleik. Kvik-
myndir á borð við Black Sheep,
Beverly Hills Ninja og Almost
Heroes skutu leikaranum upp á
stjörnuhimininn og þótt gagnrýn-
endur væru ekki hrifnir elskaði
Ameríkaninn Farley. Hann þjáð-
ist hins vegar af mikilli minni-
máttarkennd vegna þyngdarinn-
ar og tjáði vinum sínum að hann
vildi ekki vera feiti náunginn sem
alltaf væri að detta. Farley lést af
of stórum skammti af eiturlyfj-
um, aðeins 33 ára að aldri. Jonah
Hill er á hraðri uppleið eftir kvik-
myndirnar Superbad og Forgett-
ing Sarah Marshall en þar hefur
mikið verið leikið sér með þyngd-
ina á leikaranum. Kevin James
tókst hins vegar að taka sitt líf í
gegn; hann fór í strangt aðhald
eftir að hann varð yfir 150 kíló
og lét hafa eftir sér í spjallþætti
David Letterman: „Ofþyngd er
handan við hornið á næsta veit-
ingastað.“
freyrgigja@frettabladid.is
FEITU FYNDNU KARLARNIR
FEITIR OG
FYNDNIR
Oliver Hardy, John
Candy, John Belushi,
Kevin James og Jonah
Hill hafa allir náð langt
þrátt fyrir að vera
ekki gæddir hinum
dæmigerða kvikmynda-
stjörnuvexti.
OFFITA Í SJÓNVARPI
Feitu fyndnu gæjarnir eru ekki
bara til á hvíta tjaldinu; Hómer
Simpson er auðvitað hinn eini
sanni Bandaríkjamaður með
stóra, mjúka vömb, sídrekkandi
og ropandi, og svo auðvitað
Peter Griffin í Family Guy sem
stundum er svolítið komplexaður
yfir þyngd sinni. Ekki má heldur
gleyma Cartman úr South Park
en þessir þættir eiga það sam-
eiginlegt að vera sterk ádeila á
amerískt þjóðfélag og neyslu-
venjur.
Allt sem þú þarft
Þú færð Fréttablaðið
á kostnaðarverði á 120 stöðum
um land allt. Nánari upplýsingar
á visir.is/dreifing