Fréttablaðið - 07.07.2011, Side 50
7. júlí 2011 FIMMTUDAGUR38
folk@frettabladid.is
13
Sýningar á Haute Couture, eða hátískunni eins og
það nefnist á íslensku, fara fram þessa dagana í
París. Sýningarnar, sem gefa sköpunargáfu hönnuða
frjálsan tauminn, einkennast af fáguðu handbragði
og íburðarmiklum flíkum fyrir veturinn 2011.
Sýningar tískuhússins Christian Dior var beðið með eftir-
væntingu enda Bill Gaytten nú við stjórnvölinn eftir brott-
rekstur Johns Galliano. Skiptar skoðanir eru hins vegar um
litaglaða frumraun Gaytten á tískupallinum.
Maison Martin Margiela var mínimalískt að vanda og svartar
grímur yfir andlitum fyrirsætanna.
Á fremsta bekk sátu svo leikkonurnar Katie Holmes og Cate
Blanchett og sáu eflaust eitthvað fagurt til að klæðast á rauða
dreglinum. alfrun@frettabladid.is
FALLEGIR LITIR Litasamsetningin hjá
Maison Martin Margiela var fögur.
SINNUM hefur söngvarinn og dóphausinn Pete Doherty þurft
að fara fyrir rétt í Bretlandi vegna eiturlyfjaneyslu eða óviðeigandi
hegðunar. Pete var látinn laus úr fangelsi í vikunni, en hann hafði
setið inni í mánuð fyrir að vera tekinn með kókaín.
Mick Jagger er hvergi af baki
dottinn þótt elli kerling sé farin
að narta rækilega í hælana á
söngvaranum. Hann hefur stofn-
að nýja ofurgrúppu ásamt sálar-
söngkonunni Joss Stone, Damian
Marley, syni Bob Marley, Dave
Stewart úr Eurythmics og tónskáld-
inu A.R. Rahman, en sá á heiðurinn
af tónlistinni í Slumdog Millionaire.
Von er á nýrri smáskífu á næstunni
sem hægt verður að hlaða niður af
netinu og síðan er ráðgert að breið-
skífa komi út í september.
Samstarfið hefur vakið töluverða
athygli enda ekki á hverjum degi
sem Mick Jagger, aðalspíra Roll-
ing Stones, stofnar hljómsveit. „Við
vissum ekkert hvernig tónlistin
yrði og við vissum ekkert hvort hún
yrði góð. Við vildum bara skemmta
okkur,“ er haft eftir Jagger. „Við
sömdum helling af lögum og hent-
um slatta. Ég sagði að sumt af þessu
væri rusl og aðrir hlutir væru klisja
og var þá náðarsamlegast beðinn
um að leggja eitthvað til sjálfur.“
Jagger segir erfitt að skilgreina
tónlistina en hún verði aðgengileg
og hljómsveitin kunni að fara í tón-
leikaferðalag ef aðdáendum líki það
sem hún hefði fram að færa. „Þetta
er ný tegund af tónlist og það verð-
ur ekki hægt að flokka hana. Ef þú
elskar Rolling Stones þá mun hún
höfða til þín og ef þú elskar ekki
Rolling Stones áttu eftir að gefa
henni tækifæri.“
Ný ofurgrúppa Jagger
Hljómsveitin Skálmöld kom tvisv-
ar fram á Sódómu á þriðjudag
ásamt færeysku hljómsveitinni
Hamferð. Fyrri tónleikarnir voru
fyrir alla aldurshópa og þeir seinni
fyrir þá eldri. Ljósmyndari Frétta-
blaðsins var á svæðinu á fyrri
tónleikunum og myndaði einlæga
gleði viðstaddra.
Krakkarnir elska Skálmöld
ROKK OG RÓL Eldur, Jófó og Stormur
virtust skemmta sér konunglega.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FLASAN FLAUG Viðstaddir þeyttu flösu
þegar Skálmöld spilaði kremjandi
þungarokkið.
RÓLEG Alma, Haukur og Eiki héldu ró sinni þrátt fyrir æsandi tónlistina.
ÞESSI PASSAR Meðlimir Skálmaldar sáu til þess að aðdáendurnir fengju boli við hæfi.
STOFNAR HLJÓMSVEIT Mick Jagger hefur stofnað nýja hljómsveit með syni Bobs
Marley, Joss Stone og indversku tónskáldi.
ELSKAÐUR Eiginkona Robbie Williams
heldur vart vatni yfir honum. Hann sé
svo fyndinn og frumlegur.
Ayda Field, eiginkona Robbie
Williams, er ákaflega ánægð
með eiginmanninn sinn og lýsir
honum sem einhverri fyndnustu,
mest heillandi og frumlegustu
manneskju sem hún hafi hitt.
Williams hefur aðallega verið
þekktur fyrir hroka og yfirgang
en Field hefur aðra sögu að segja
af manninum sínum, hann sé
besti vinur hennar, kærleiks ríkur
og yndislegur. „Hún segir að ég
sé alltaf að segja sögur og að
ég sé alltaf að setja á svið litlar
sýningar heima fyrir,“ skrifar
Robbie á bloggið sitt en aðdáandi
spurði hvort Robbie væri sami
maður á sviði og heima fyrir.
Williams hefur átt í erfið-
leikum með eiturlyf og áfengi en
virðist hafa náð tökum á lífi sínu.
Nýverið lýsti hann því yfir að
hann hefði fundið Guð og að það
hefði bætt samband sitt við eigin-
konuna. „Ég er búinn að biðja um
leiðbeiningar og hef fengið þær.
Ég hef lært að elska ykkur, Ayda
og sjálfan mig meira.“
Frúin ánægð
með Robbie
Fagurt handbragð
Í PARÍS
MARGT AÐ GERAST Litadýrðin hjá
Christian Dior féll í misjafnan jarðveg
hjá tískuspekúlöntum.
PÍFUR Ljósgrænt
velúrefni við hvítt
þröngt toppstykki hjá
Didit Hediprasetyo.
NORDICPHOTO/GETTY
SVARTKLÆDD Leikkonan
Katie Holmes var fáguð
í klæðaburði þegar hún
mætti á sýningu Giorgio
Armani.
SVART OG HVÍTT
Aðsniðin dragt
með asísku
yfirbragði hjá
Giorgio Armani.