Fréttablaðið - 07.07.2011, Qupperneq 62
7. júlí 2011 FIMMTUDAGUR50
BESTI BITINN Í BÆNUM
Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri fatahönnunardeildar
Listaháskóla Íslands, tekur sæti dómara í nýjum raun-
veruleikaþætti sem hefst um áramótin á Stöð 2. Þátt-
unum hefur verið gefið nafnið Hannað fyrir Ísland
og eru runnir undan rifjum Sigurjóns Sighvatssonar,
kvikmyndaframleiðanda og eiganda útivistarmerkis-
ins 66 gráður norður. Þættirnir eiga að gefa ungum,
íslenskum hönnuðum tækifæri til að koma sjálfum
sér á framfæri. „Og það er engin leið betri til þess en
í gegnum sjónvarp,“ segir Sigurjón. Byrjað verður að
auglýsa eftir þátttakendum í næsta mánuði.
66 gráður norður leikur stórt hlutverk í þáttunum,
keppendur eiga að hanna flíkur fyrir fyrirtækið og
sigurvegarinn fær að lokum starf hjá því. „Við erum
auðvitað að taka nokkra áhættu því 66 gráður norður
er með gott orðspor og við leggjum það undir.“ Yfir-
hönnuður fyrirtækisins, hinn sænski Jan Davidson,
verður dómari en svo reiknar Sigurjón með því að
þriðja hjólið verði gestadómari, allt eftir því hver
verkefni hönnuðanna verða í hverjum þætti. „Það
verður einhver sem hefur sérþekkingu í notkun á
hverri flík fyrir sig.“
Sigurjón bendir á að allir fremstu hönnuðir heims
vinni með sínar rætur og sinn grunn. Og með keppn-
inni gefist keppendum tækifæri til að tengjast þeim.
„Þetta verður blanda af raunveruleikaþáttagerð og
heimildarmynd því hönnuðirnir geta ekki bara setið
inni á saumastofu og hannað flík, þeir verða að fara út
í þær aðstæður sem hönnunin á að vera notuð í.“ - fgg
LEITAÐ AÐ HÖNNUÐI ÍSLANDS Linda Björk Árnadóttir verður
væntanlega dómari í nýjum raunveruleikaþætti sem Sigurjón
Sighvatsson og útivistarmerkið hans 66 gráður norður kemur
að. Auglýst verður eftir þátttakendum í næsta mánuði.
Þorvaldur Davíð Kristjánsson leik-
ari hefur tekið upp nýtt lag sem
verður gefið út með haustinu. Þor-
valdur er sjálfur farinn til Los
Angeles en félagi hans Sólmundur
Hólm, skemmtikraftur og rithöf-
undur, aðstoðaði Þorvald við texta-
smíð í laginu, sem ekki hefur fengið
neitt nafn.
„Þorvaldur var búinn að semja
þetta lag og vildi gera eitthvað
meira úr því. Þess vegna ákvað
hann að taka það upp áður en hann
færi út,“ segir Sólmundur, sem
eyddi öllum miðvikudeginum í
stúdíó Geimsteini í Keflavík
ásamt Þorvaldi. „Við brun-
uðum til Keflavíkur dag-
inn áður en hann fór út og
tókum upp hljóðfæraleik en
svo ætlar hann að syngja
það inn úti,“ segir Sóli en
Björgvin Ívar Baldurs-
son úr hljómsveitinni Lifun
stjórnaði upptökum.
Sólmundur
og Þorvaldur
eru æsku-
vinir og er
þetta ekki
í fyrsta
sinn sem
félag-
arnir
stilla
saman
strengi sína en þeir sendu frá sér
smellinn Sumarsaga fyrir tveimur
árum. „Þetta lag er ekkert „júhú-
búmmbarambei“ heldur svífur
meiri angurværð yfir vötnum í
þetta sinn.“
Eins og kunnugt er hefur Þor-
valdur Davíð verið staddur hér á
landi í nokkra mánuði við tökur á
íslensku myndinni Svartur á leik en
hann útskrifaðist frá hinum virta
leiklistarskóla Juilliard í vor.
Þessa dagana er hann að flytja
frá New York til Los Angeles ásamt
unnustu sinni, Hrafntinnu
Karlsdóttur, en Þorvaldur
landaði samningi við virta
umboðsskrifstofu í mekka
kvikmyndaiðnaðarins og
ætlar að láta reyna á stóra
drauminn. Spilamennskan
er því í aukahlutverki hjá
Þorvaldi en greinilegt að
fleira togar í hann en leik-
listin. - áp
Nýtt lag á leiðinni
frá Þorvaldi Davíð
TÓK UPP NÝTT LAG Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson skellti sér í stúdíó og tók
upp lag áður en hann hélt á vit ævintýranna í Los Angeles.
„Logi er ekki alveg hættur, ég er
bara búinn að kaupa hans hlut og
er því einn eigandi fyrirtækisins.
Logi verður áfram stjórnarfor-
maður og andlit fyrirtækisins,“
segir Björgvin Páll Gústavsson,
landsliðsmarkvörður í handbolta
og snyrtivörumógúll.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að Logi Geirsson væri hætt-
ur afskiptum af Silver-hárvöru-
fyrirtækinu sem landsliðsfélag-
arnir stofnuðu eftir glæsilegan
árangur landsliðsins á Ólympíu-
leikunum í Peking. Logi staðfesti
það í samtali við Fréttablaðið og
sagðist ekki hafa haft tíma til
að sinna verkefninu sem skyldi.
Björgvin vill þó meina að skyttan
úr FH hafi enn hlutverki að gegna.
Markvörðurinn var staddur í
brúðkaupsferð sinni þegar Frétta-
blaðið náði tali af honum og hann
upplýsti að von væri á nýjum
vörum innan skamms; sturtusápu
fyrir konur og karla. „Við erum að
fara af stað með auglýsingaherferð
á næstunni þar sem Aron Pálmars-
son verður í aðalhlutverki,“ segir
Björgvin og bætir því við að fleiri
vörur séu í þróun. „Við höfum haft
hægt um okkur að undanförnu
en ætlum að setja þetta í gang á
næstu vikum.“
Leikmaðurinn skipti nýverið
um félag og heldur til Magdeburg
í Þýskalandi. Félagið hefur þegar
óskað eftir því að fá að selja Silver-
gelið í búðinni sinni og Björgvin er
himinlifandi með viðtökurnar við
gelinu hér á landi, það hafi selst
betur en hann hafi þorað að vona.
„Við vorum búnir að selja þrjá-
tíu þúsund dósir síðast þegar við
gáðum,“ segir Björgvin en það
þýðir sölu upp á tæpar 45 milljón-
ir ef miðað er við verð á netinu.
- fgg
Sturtusápa væntanleg frá Silver
BOÐAR NÝJAR VÖRUR Björgvin Páll
Gústavsson hefur keypt eignarhlutinn af
Loga Geirssyni og boðar sturtusápu frá
Silver á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Linda Björg í nýjum raunveruleikaþætti
„Allir góðir hlutir verða einhvern
tíma að enda,“ segir Höskuldur
Ólafsson, rappari í hljómsveitinni
Quarashi.
Allra síðustu tónleikar Quarashi
verða haldnir á Nasa laugardaginn
16. júlí. Eftir tónleikana leysist
hljómsveitin aftur upp eftir stutta
endurkomu, en í þetta skipti til
frambúðar. „Mamma kemst ekki á
Bestu útihátíðina, þannig að okkur
fannst við hæfi að halda tónleika
í bænum svo hún komist,“ segir
Höskuldur.
Endurkoma Quarashi hefur ekki
farið fram hjá neinum, en hljóm-
sveitin kemur einnig fram á Bestu
útihátíðinni á Gaddstaðaflötum um
helgina. 8.500 miðar hafa selst á
hátíðina segja aðstandendur, en
hljómsveitir á borð við Gus Gus,
XXX Rottweiler og SSSól koma
einnig fram.
Höskuldur segir Quarashi höfða
til eldri hóps með lokatónleikunum
í Reykjavík. „Við erum að stíla inn
á aldurshópinn 50 til 73 ára,“ segir
hann léttur. „Það er ekki fólk-
ið sem er að fara á Bestu, en vill
koma og sjá Quarashi. Við viljum
sinna þessum aldurshópi, enda fær
hann lítið að gera í skemmtanalífi
borgarinnar.“
En telurðu að meðlimir Quarashi
öðlist innri frið eftir tónleikana í
Reykjavík, þegar frekara tónleika-
hald hefur verið útilokað?
„Ég vona allavega að ég þurfi
ekki að svara fleiri kommbakk-
símtölum eftir þetta. Þau hafa
verið einu sinni í mánuði frá því
að við hættum,“ segir Höskuldur.
Kvöldið fyrir tónleikana á Nasa
verður haldið sérstakt kveðjuhóf
á Sódómu. Hljómsveitin kemur
þar fram í einhverri mynd ásamt
fjölda annarra listamanna. Miðinn
á lokatónleikana gildir inn, en þó
aðeins á meðan húsrúm leyfir.
En hvernig stendur röddin sig?
„Ég er búinn að vera í námi í
Englandi í tvö ár og hef ekkert
sungið, ekki einu sinni karókí,“
segir Höskuldur. „Á fyrstu æfing-
unni byrjaði ég að öskra um leið og
var voðalega hissa á því að verða
rámur. Ég er á steratöflum og líður
eins og Axl Rose. Við sáum hann
einu sinni spila í Japan. Eftir hvert
lag stökk hann baksviðs og fékk
sterasprautu í hálsinn. Ég vona að
það komi ekki til þess.“
atlifannar@frettabladid.is
HÖSKULDUR ÓLAFSSON: ER Á STERATÖFLUM OG LÍÐUR EINS OG AXL ROSE
Hinsta kveðja Quarashi
verður á tónleikum á Nasa
SAMEINAÐIR Meðlimir Quarashi í sólinni í gær. Hljómsveitin kveður með tónleikum á Nasa 16. júlí en kemur einnig frá á Gadd-
staðaflötum um helgina. Frá vinstri eru þeir Hössi, Tiny, Steini, Ómar og Sölvi.
„Það er klárlega matseðillinn á
Prikinu. Þar er hægt að fá sér
góða hamborgara og steikur.“
Emmsjé Gauti tónlistarmaður
Sérsmíðaðir Hnakkar
15. til 20. júlí verða hér í
heimsókn enskir söðlasmiðir.
Þeir taka mát af hestum sem þurfa
sérsmíðaða hnakka.
Upplýsingar veittar í síma
566 8045 eða 698 5799
Netfang: valditryggva@simnet.is
FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
ÞÚ ERT MEÐ
FRÆGA FÓLKIÐ
Í VASANUM
MEÐ VÍSI
m.visir.is
Fáðu Vísií símann!
TEXTASMIÐURINN
Sólmundur Hólm
og Þorvaldur eru
æskuvinir en
Sólmundur
skrifaði
textann við
nýja lagið.
Fyrir tveimur
árum gáfu
félagarnir
út lagið
Sumar-
saga.