Fréttablaðið - 20.08.2011, Qupperneq 4
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR4
Þetta er auðvitað
mjög alvarlegt, því að
við viljum hafa þessi mál í
góðu lagi.
ÖGMUNDUR JÓNASSON
INNANRÍKISRÁÐHERRA
Í Fréttablaðinu á miðvikudaginn var
sagt að söngvarinn Adam Lambert
hefði borið sigur úr býtum í American
Idol fyrir nokkrum árum. Það er ekki
rétt. Hann varð í öðru sæti.
Nokkur orð féllu út í greininni
Góðgerðarakstur umhverfis Tjörnina
í Menningarborgardagskrá Frétta-
blaðsins á fimmtudag. Réttar eru
setningarnar svona: Gestir Menningar-
nætur geta fengið sér salíbunu aftan
á Harley Davidsonhjólum kringum
Tjörnina í Reykjavík gegn 500 króna
gjaldi sem rennur óskipt til Umhyggju
en það er félag til stuðnings lang-
veikum börnum. Ekið er frá Alþingis-
húsinu. „Þessar ferðir hafa verið mjög
vinsælar af fólki á öllum aldri,“ segir
Steinar Benedikt Valsson, formaður
félags Harley Davidsoneigenda.
LEIÐRÉTTING
GENGIÐ 19.08.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,9034
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,10 114,64
188,21 189,13
163,12 164,04
21,898 22,026
20,757 20,879
17,656 17,760
1,4917 1,5005
183,17 184,27
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
MENNTAMÁL Hilmar Oddsson,
rektor Kvikmyndaskóla Íslands,
segir að skilaboðin sem bárust út
af ríkisstjórnarfundi í gær hafi í
engu skýrt stöðu skólans. Hann
telur að skökk mynd sé dregin
upp af skólanum; máluð sé mynd
af skóla með ósanngjarnar kröf-
ur án þess að sú staðreynd komi
fram að skólinn bjóði upp á sam-
bærilegt nám við það besta á
Norðurlöndunum fyrir brotabrot
af þeim kostnaði sem þekkist ann-
ars staðar.
Eftir ríkisstjórnarfund í gær
sagði Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra að fyrra til-
boð stjórnvalda um aukin fram-
lög til skólans væri enn á borð-
inu. Hún tók einnig allan vafa
af um það að nemendur skól-
ans fengju fyrirgreiðslu hjá LÍN
þrátt fyrir ríkjandi óvissu. Niður-
staða mennta- og menningar-
ráðuneytisins, eftir skoðun á
gögnum skólans, er að hann sé
ekki rekstrarhæfur.
„Eina sem ég get ráðið í þetta er
að gamla tilboðið sé uppi á borð-
inu, en það var það sannarlega
ekki í gær,“ segir Hilmar. Þar
vísar hann til þess að skólanum
hafa verið boðnar 58 milljónir en
fjárveiting til skólans 2010 var
39 milljónir. Skólinn verður ekki
rekinn fyrir lægra ríkisframlag
en 70 milljónir, að sögn Hilmars.
Fimm skólar sem kenna kvik-
myndagerð í Danmörku, Svíþjóð
og Noregi eru í CILECT, alþjóða-
samtökum kvikmyndaskóla auk
Kvikmyndaskóla Íslands. Kostn-
aður við hvern nemenda Kvik-
myndaskólans er 278 þúsund
krónur á ári. Hinir skólarnir í
CILECT fá allir um tíu milljónir
með hverjum nemenda.
- shá
Rektor Kvikmyndaskóla Íslands segir framtíð skólans ekki hafa skýrst á fundi ríkisstjórnarinnar í gær:
Kvikmyndaskólinn nýtur ekki sannmælis
HILMAR ODDSSON Vill að það sé haft
hugfast að ríkisframlag vegna sam-
bærilegs náms á Norðurlöndum er um
fjörutíu sinnum hærra á hvern nemenda
en hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÖRYGGISMÁL Tímasetning á kaup-
um nýrrar björgunarþyrlu fyrir
Landhelgisgæsluna gæti skýrst
á fundi rík-
isstjór na r í
næstu viku.
Þetta segir
Ögmundur
Jónas son
innanríkis-
r á ð h e r r a í
sa mta l i v ið
Fréttablaðið,
en þyrlukost-
ur gæslunn-
ar komst í sviðsljósið í fyrra-
dag þegar hvorug þyrlan var til
taks þegar á þurfti að halda. TF-
GNÁ er sem stendur í reglubund-
inni skoðun erlendis og er ekki
væntan leg aftur til landsins fyrr
en eftir þrjár vikur. Óvænt bilun
í TF-LÍF varð síðan til þess að
hún var ekki flughæf. Beðið var
eftir varahlut til að koma henni í
gagnið aftur og lauk viðgerð sam-
kvæmt áætlun í gær.
Gæslan kallaði þess í stað til
þyrlu frá Norðurflugi til að sækja
mann sem hafði fótbrotnað í helli
í Kverkfjöllum.
Ögmundur segir grundvallar-
regluna að tvær björgunar þyrlur
hið minnsta séu ávallt til taks en
ástandið síðustu daga heyri til
algerra undantekninga.
„Þetta er auðvitað mjög alvar-
legt, því að við viljum hafa þessi
mál í góðu lagi,“ segir hann og
bætir við að helst eigi þrjár þyrl-
ur að vera til staðar. Enda standi
til að fjölga í þyrlukosti gæslunn-
ar og gætu farið að berast tíðindi
af þeim málum fljótlega.
„Við höfum verið í kaupferli
með Norðmönnum að leita að
nýrri þyrlu og sú vinna stend-
ur enn yfir. Við höfum enn ekki
staðfest dagsetningar í því efni,
en það verður tekið til umfjöll-
unar í ríkisstjórn í næstu viku.“
Ögmundur bætir því við að
stóra málið sé nú að sjá til þess
að fyllsta öryggis sé gætt. Reglu-
bundið viðhald er hluti af því að
tryggja öryggi að hans sögn,
enda eigi þyrlurnar síður að bila
ef þeim er vel við haldið.
Áætlað er að LÍF fari utan í
byrjun næsta árs til stærri við-
haldsskoðunar, en sú aðgerð mun
taka um fjóra mánuði. GNÁ mun
hins vegar ekki verða ein eftir á
vaktinni að sögn Ögmundar.
„Þyrlan mun ekki fara út nema
önnur þyrla komi í hennar stað.“
thorgils@frettabladid.is
Tímarammi þyrlu-
kaupa skýrist brátt
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir alvarlegt að hvorug þyrla Land-
helgisgæslunnar hafi verið til taks þegar á reyndi. Leitað er að þyrlu til kaupa.
Tímasetning kaupa skýrist væntanlega á ríkisstjórnarfundi í næstu viku.
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
ÞYRLULEYSI ALVARLEGT ÁSTAND Innanríkisráðherra segir að lágmark sé að tvær
björgunarþyrlur séu til taks. Þyrlukaup standa til en nákvæmari tímarammi skýrist
mögulega á ríkisstjórnarfundi í næstu viku. Á myndinni má sjá flugflota Gæslunnar á
flugi yfir Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ENGAR ÁHYGGJUR Joe Biden, varaforseti
Bandaríkjanna, ræddi efnahagsmál við
kínverskan starfsbróður sinn, Xi Jinping,
á fundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BEIJING, AP Kínverjar segjast bera
fullt traust til bandarísks efna-
hagslífs og óttast ekki um fjár-
festingu sína í ríkisskuldabréfum
þótt stífir vindar hafi geisað.
Ráðamenn í Kína, þar á meðal
varaforsetinn Xi Jinping og for-
sætisráðherrann Wen Jiabao,
viðruðu þá skoðun sína í gær
eftir fundi með Joe Biden, vara-
forseta Bandaríkjanna.
Kína á um 1.200 milljarða dala
í ríkisskuldabréfum en Wen sagði
Biden hafa sefað áhyggjur manna
af erfiðleikunum í Bandaríkjun-
um. - þj
Joe Biden á fundum í Kína:
Sefaði áhyggjur
Kínverja af BNA
SAMGÖNGUR Frítt verður í alla
strætisvagna á höfuðborgarsvæð-
inu á Menningarnótt í Reykjavík,
sem er í dag og kvöld. Síðustu
ferðir verða frá Hlemmi og Vonar-
stræti um klukkan eitt eftir mið-
nætti.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
minnir hundaeigendur á að óheim-
ilt er að vera með hunda á hátíðar-
samkomum skipulögðum fyrir
almenning, af tillitssemi við aðra
gesti. Þetta bann gildir meðal
annars á Menningarnótt. - sv, jss
Frítt í strætó og engir hundar:
Fleiri ferðir á
Menningarnótt
FÓLK „Við ætlum að bjóða gestum
og gangandi að prófa þetta,“ segir
Andrea J. Ólafsdóttir, formaður
Hagsmunasamtaka heimilanna,
sem standa fyrir undirskrifta-
söfnun á horni Laugavegs og
Skólavörðustígs í dag á Menning-
arnótt milli klukkan 13 og 17.
Á staðnum verður sérstæður
stóll sem Ámundi Loftsson hefur
smíðað, þar sem fólk getur bein-
línis sest á haka. - gb
Undirskriftum safnað í dag:
Allir fá að sitja
á hakanum
SITUR Andrea J. Ólafsdóttir, formaður
Hagsmunasamtaka heimilanna, situr á
hakanum. MYND/HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
31°
32°
21°
21°
26°
29°
19°
19°
26°
19°
33°
30°
32°
20°
28°
20°
20°
Á MORGUN
Yfi rleitt hægur vindur.
MÁNUDAGUR
3-8 m/s.
8
8
8
12
9
10
12
13
12
14
9 3
2
4
3 2
4
3
6
3
4
3
1212
11
12
9
11
10
9
10
11
BJART SV-TIL Í
DAG Einhver væta
SA-til framan af
degi en léttir svo
til. Nokkuð bjart
SV-til í dag en
stöku skúr síðdegis
bæði V-lands og
austan. Einhver
væta A-til og V-til
á morgun en bjart
með köfl um S- og
N-lands. Nokkur
væta á mánudag,
einkum S- og V-til.
Snjólaug
Ólafsdóttir
veður-
fréttamaður