Fréttablaðið - 20.08.2011, Page 18
18 20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR
Þeir skattgreiðendur sem greitt hafa vaxtagjöld af lánum, sem
tekin hafa verið vegna kaupa eða
byggingar á íbúðarhúsnæði til
eigin nota, hafa vafalaust í ein-
hverjum mæli fengið endur-
greiðslu frá ríkisvaldinu í formi
vaxtabóta. Vaxtabætur til einstak-
linga eru misháar, enda taka þær
mið af efnahag og fjölskyldustöðu
hvers framteljanda fyrir sig. Í ljósi
þess hefur einhver hluti íbúðareig-
enda með tekjur yfir viðmiðun-
armörkum réttilega ekki fengið
vaxtabætur.
Þeir skattgreiðendur sem greitt
hafa vaxtagjöld af lánum, sem
tekin hafa verið vegna kaupa
eða byggingar á íbúðarhúsnæði
til eigin nota, hafa vafalaust í
einhverjum mæli fengið endur-
greiðslu frá ríkisvaldinu í formi
vaxtabóta. Vaxtabætur til einstak-
linga eru misháar, enda taka þær
mið af efnahag og fjölskyldustöðu
hvers framteljanda fyrir sig. Í ljósi
þess hefur einhver hluti íbúðareig-
enda með tekjur yfir viðmiðun-
armörkum réttilega ekki fengið
vaxtabætur.
Eitt af skilyrðum þess að fá
greiddar vaxtabætur er að vaxta-
gjöldin af lánunum séu vegna
íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Það
skilyrði virðist einfalt, og er svo í
flestum tilvikum, en getur stund-
um verið matskennt og óljóst. Í
reglugerð um greiðslu vaxtabóta,
nr. 990/2001, eru eigin not íbúðar
skilgreind sem svo að húsnæðið
sé nýtt til íbúðar af eiganda þess
sjálfum. Svo segir að sérstakar
tímabundnar aðstæður, sem valdi
því að eigandi íbúðarhúsnæðis geti
ekki sjálfur nýtt það til íbúðar,
leiði þó ekki til þess að hann missi
rétt til vaxtabóta, ef líklegt sé að
hann muni innan ákveðins tíma
taka húsnæðið aftur til eign nota.
Þetta krefst frekari skýringar.
Einfalt dæmi væri að eigandi
íbúðar, sem ákveður að leigja
hana út og leigja sjálfur aðra
íbúð, ætti ekki rétt á vaxta bótum
vegna afborgana lána af íbúð-
inni þar sem hún er þá ekki nýtt
til eigin nota. En eigandi íbúðar
sem sökum náms, veikinda eða
atvinnuþarfa þarf að búa annars
staðar um nokkurt skeið á rétt
á vaxta bótum ef um er að ræða
tímabundnar aðstæður og líklegt
er að hann taki húsnæðið sitt aftur
til eigin nota innan ákveðins tíma.
Þannig á eigandi íbúðar í Búðar-
dal sem stundar nám á Akureyri
rétt á vaxtabótum meðan á náminu
stendur ef honum tekst að sann-
færa skattyfirvöld um að líklegt sé
að hann komi heim að námi loknu.
Ef maður á tvær íbúðir er
megin reglan sú að vaxta bætur
eru einungis greiddar út með
annarri íbúðinni, þeirri sem telst
vera nýtt til eigin nota. Í úrskurði
yfirskattanefndar, nr. 8/2010, kom
fram að hjón sem sögðust halda tvö
heimili, annað á lands byggðinni
og hitt í Reykjavík vegna náms
og atvinnuþarfa, ættu ekki rétt á
vaxtabótum vegna húsnæðisins í
Reykjavík þar sem það gæti ekki
talist vera eigin not íbúðar. Svipað
var uppi á teningnum í öðrum ný-
legum úrskurði yfirskattanefnd-
ar, nr. 304/2010. Þar kom fram að
skráning lög heimilis hefði veru-
lega þýðingu þegar meta þyrfti
hvar eigandi tveggja íbúða teld-
ist hafa aðaldvalarstað eða fasta
búsetu. Í tilvikum sem þessum
þurfa skattgreiðendur að athuga
hvort undanþágureglan frá vaxta-
bótum af einungis einni íbúð eigi
við.
Árið 2009 var 5. gr. reglugerð-
ar um greiðslu vaxtabóta breytt á
þann veg að maður getur átt rétt
á vaxtabótum vegna húsnæðis í
byggingu eða kaupa á eldra hús-
næði sem þarfnast endurbóta í
beinu framhaldi af kaupunum
þrátt fyrir að eiga aðra íbúð til
eigin nota. Þá segir að maður geti
átt rétt á vaxtabótum vegna tíma-
bundins eignarhalds á tveimur
íbúðum þar sem sala annarrar
þeirra reynist ómöguleg vegna
óvenjulegra aðstæðna á fasteigna-
markaði. Þessi undanþágu heimild
mun gilda í allt að þrjú ár og heim-
ilt er að leigja út aðra íbúðina án
þess að réttur til vaxtabóta skerð-
ist.
Matskenndar reglur vaxtabóta
í tekjuskattslögum valda því að
einhverjir skattgreiðendur eru í
vafa um hvort skattyfirvöld hafi
lagt á réttan skatt með hliðsjón af
rétti til vaxtabóta. Við svo búið er
full ástæða fyrir skattg reiðendur
að aðgæta álagningarseðlana
og ganga úr skugga um að réttri
skattfjárhæð hafi verið goldið til
ríkisins. Kærufrestur rennur út
24. ágúst næstkomandi.
Alveg er deginum ljósara að iðnaðarráðherra hefur klúðr-
að framgangi vandaðrar lagasetn-
ingar um vatn sem þó er til í frum-
varpsformi (Vatnalaganefndar)
falin í skúffu ráðherra. Mikið er
í húfi því eðli málsins samkvæmt
varða vatnalög hvert einasta
mannsbarn á Íslandi um ókomin
ár og fátt getur fremur ógnað full-
veldi þjóðar en vond vatnalög.
Mörður er fimur karpari og í
Eyjupistli sínum skautar hann
ákaft til að dreifa athygli frá klúðri
Katrínar. Ég met málefnalega orð-
ræðu og einlægan vilja Marðar
í umhverfismálum ólíkt meira.
Hann er einn af fáum náttúru-
verndurum á Alþingi Íslendinga
og jafnvel innan þingmanna eigin
flokks.
Klúður Katrínar er það að hafa
hætt við ákaflega efnilegt frum-
varp sem Vatnalaganefnd vann að
í nokkur ár og hefur að geyma flest
ef ekki öll verndarákvæði um vatn
sem nauðsynlegt er að hafa í lögum.
Þar var líka hugað að almannarétti
og almannahag. Gallinn við frum-
varpssmíð Vatnalaga nefndarinnar
var mögu leikinn á að framselja
vatnsrétt, sem er álíka og að fram-
selja fiskveiðikvóta nema margfalt
hættulegra. Frumvarp nefndar-
innar var samið af fólki úr mörg-
um áttum samfélagsins, fagfólki á
ýmsum sviðum – og lofaði góðu. En
augljóst má vera að orku geirinn, og
þá sérstaklega Orku stofnun sem nú
valsar um orkulindir og náttúru-
perlur og gefur úr rannsókna-
leyfi á færibandi með fullum
stuðningi iðnaðar ráðherra, hefur
óttast ákvæði um náttúruvernd og
almannarétt. Þessi óábyrga fram-
ganga forstjóra Orkustofnunar og
iðnaðarráðherra er ríkisstjórn sem
heitið hefur að efla náttúruvernd til
vansa.
Mér leiðist karp en Mörður fer
með rangt mál þegar hann segir að
ég finni vatnsfrumvarpi iðnaðar-
ráðherra fyrst og fremst til for-
áttu að þar sé fátt um vatnsvernd.
Ojæja – lesendur geta kannski
dæmt sjálfir að fleira er áhyggju-
efni.
En hafi einhver skriplað á
skötunni þá er það formaður
umhverfis nefndar Alþingis þegar
hann vill leiðrétta misskilning
minn með því að segja að í vor hafi
Alþingi samþykkt sérstök vatns-
verndarlög og því séu áhyggjur
mínar af frumvarpinu ástæðu-
lausar. En formanninum til upp-
lýsingar þá eru Lög um stjórn
vatnsmála (36/2011) EKKI vatns-
verndarlög. Í þeim eru engar efnis-
reglur um vatnsvernd. Þau eru
einskonar leikreglur um söfnun
upplýsinga og áætlanir um vernd
vatns. Afar mikilvægt er að for-
maður umhverfisnefndar Al-
þingis átti sig á því að vatnastjórn
(aðferðafræðin) er ekki sú sama og
vatnsvernd (aðhaldið) – a.m.k. áður
en hann skrifar aðra grein.
Merði láðist einnig að upplýsa
almenning um að vatnastjórnunar-
áætlunin (aðferðafræðin) mun ekki
verða tilbúin fyrr en eftir nokkur
ár en í síðasta lagi 1. janúar 2018
eins og stendur aftast í lögunum.
Umhverfisstofnun hefur að vísu
áform um að ljúka verkinu árið
2015 þannig að áfram verða rúmar
heimildir fyrir óábyrga meðferð
vatnsmála – einmitt það sem Orku-
stofnun vill hafa.
Mörður fullyrðir að vatnalaga-
frumvarp lögfræðinganna sé hið
ágætasta þrátt fyrir að þar vanti
öll ákvæði um verndun vatns og
gefur í skyn að þeir sem hafi gefið
umsagnir hafi verið jákvæðir og
lagt ýmislegt gott til. Fyrir fram-
an mig er heill bunki umsagna
um frumvarpið sem allar eru á
einn veg og óhætt að gefa því fall-
einkunn samkvæmt þeim. Eflaust
hefur frumvarpið skánað í með-
ferð iðnaðarnefndar Alþingis,
skárra væri það nú, en ef vanda
hefði átt til verka hefði Mörður
átt að seilast ofan í djúpu skúffu
iðnaðarráðherra og bursta nýfallið
ryk af vandaðri vinnu Vatnalaga-
nefndar. Í markmiðslýsingunni
stendur:
„Markmið laga þessara er að
kveða á um verndun og nýtingu
vatns, rétt almennings til vatns og
vatnsréttindi landeigenda. Lögun-
um er ætlað að stuðla að verndun
vatnsgæða, lífríkis vatns og vot-
lendis, tryggja greiðan aðgang
landsmanna að nægu og hreinu
vatni og stuðla að skynsamlegri
nýtingu vatnsauðlindarinnar á
grundvelli sjálfbærrar þróunar.“
Augljóst er að ekki hefur tekist
pólitísk sátt um vatnalagafrum-
varpið sem nú liggur fyrir Alþingi.
Sorglega staðreyndin er samt sú
að iðnaðarráðherra kaus að styðja
yfirgang Orkustofnunar og iðn-
aðar á kostnað náttúru Íslands og
almannaheilla og því siglum við
áfram sofandi að ósi og smíðum
lög sem vernda ekki viðkvæmustu
og mestu auðæfi landsins.
Við svo búið er full ástæða fyrir skatt-
greiðendur að aðgæta álagningarseðlana
og ganga úr skugga um að réttri skattfjár-
hæð hafi verið goldið til ríkisins.
Augljóst er að
ekki hefur tekist
pólitísk sátt um vatna-
lagafrumvarpið.
Áttu heima heima hjá þér
að mati skattyfirvalda?
Skriplað á skötu
Vatnsvernd
Guðmundur Páll
Ólafsson
náttúrufræðingur og
rithöfundur
Vaxtabætur
Teitur Björn
Einarsson
lögmaður
Ný aðalnámskrá fyrir grunnskóla tekur gildi nú
í haust á tímum niðurskurðar í
skólamálum. Hún gefur skólum
meira svigrúm um skipulag
námsins en áður var. Kveðið
er skýrt á um kennsluskyldu
og hlutfall ólíkra greina á
hverju aldursstigi innan skóla-
kerfisins. Mikilvægt er að for-
eldrar kynni sér viðmiðunar-
stundaskrá í aðalnámskrá og
beri hana saman við stunda-
skrá og skólanámskrá í skóla
barnsins. Komist foreldrar að
því að kröfur sem gerðar eru
í viðmiðunarstundaskrá séu
ekki uppfylltar þurfa þeir að
fara fram á úrbætur.
Fyrst er mikilvægt að skoða
skólanámskrá skólans vel og
athuga hvort þar sé gert ráð
fyrir hagræðingu yfir hvert
tímabil fyrir sig. Til að mynda
eru kröfur um að hlutfall
list- og verkgreinakennslu í
1.-4. bekk sé 17,9% að meðal-
tali. Kennslufyrirkomulagið
getur verið breytilegt og getur
hver skóli hagrætt þessu milli
þeirra fjögurra ára sem um
ræðir. Þannig getur kennsla
í smíði til dæmis farið fram
á einu vikulöngu námskeiði í
staðinn fyrir að kennt sé jafnt
og þétt yfir skólaárið. Þá væri
ef til vill tímabil á næstu þrem-
ur árum á eftir þar sem bætt
væri upp fyrir þetta minna
hlutfall fyrsta árið. Aðalatriðið
er þá að meðaltal verk- og list-
greina sé um 17,9% yfir þetta
fjögurra ára tímabil. Listavika
eða aðrir skipulagðir dagar
inni í skólaárinu geta jafn-
framt komið í staðinn fyrir
jafna og hefðbundna stunda-
skrá yfir allt árið. Næstu tvö
tímabil grunnskólans eru 5.-7.
og 8.-10. bekkur og reiknast
meðaltalið þá yfir þrjú ár.
Ef skólastjórnendur vilja
breyta skólanámskrá er það
á ábyrgð skólans að kynna
breytingarnar vel fyrir for-
eldrum. Skólaráðsfulltrúar for-
eldra ættu að hafa tækifæri til
að kynna breytingarnar fyrir
foreldrahópnum áður en tekin
er ákvörðun um að framfylgja
henni. Þess konar samráð er
hornsteinn lýðræðis í skóla-
starfinu og kemur skýrt fram
í menntalögunum. Skólaráð
er samráðsvettvangur skóla-
samfélagsins og þar eiga for-
eldrar tvo fulltrúa sem bera
ábyrgð á að vera vel tengdir for-
eldrum við skólann, til dæmis í
gegnum foreldra félagið.
Ef foreldrar komast að því
við samanburð á viðmiðunar-
stundaskrá og skólanámskrá
að brotið er á lögbundnum rétti
barna við skólann þarf að reka
málið áfram rétta leið. Fyrst
er reynt að tala við stjórn
skólans og ef það ber ekki
árangur þarf að leita til skóla-
nefndar og þaðan upp kerfið
innan sveitarfélagsins þar sem
sveitar-/bæjarstjóri er yfir-
maður skólastjóra. Náist ekki
viðunandi niðurstaða innan
sveitarfélagsins er næsta skref
að hafa samband við mennta-
og menningarmála ráðuneytið,
sem mun fara fram á umbætur.
Það er ljóst að það er ekki
óskastaða fyrir neinn að skera
niður menntun barnanna okkar.
Það er hins vegar staðreynd og
því þurfa foreldrar að standa
vörð um réttindi barna sinna
eins og núgildandi menntalög
gefa þeim svigrúm til.
Ný aðalnámskrá
grunnskóla
Menntamál
Ketill B.
Magnússon
formaður Heimilis og
skóla – landssamtaka
foreldra
Guðrún Jónsdóttir
verkefnisstjóri
Heimilis og skóla
Náist ekki viðunandi niðurstaða innan
sveitarfélagsins er næsta skref að hafa
samband við mennta- og menningar-
málaráðuneytið, sem mun fara fram á umbætur.
Hópþjálfun Gigtarfélgas Íslands
byrjar 5. september
Skáning hefst mánudaginn 22. ágúst
Sjúkraþjálfarar og hjúkrunarfræðingur sjá
um þjálfun. Fagfólk með áralanga reynslu.
Þægilegt og rólegt umhverfi
Stott–Pilates: Góð aðferð til að styrkja og auka stöðugleika liða og bæta
líkamsstöðu. Vinsælir tímar. Byrjenda-og framhaldshópar, einnig einstaklingstímar.
Jóga: Aðlagað einstaklingum með gigt og þeim sem þurfa að fara varlega í
þjálfu. Áhersla lögð á öndun og slökun
Alhliða leikfimi: Tímar sem henta vel fyrir þá sem eru að hefja þjálfun eða
þurfa góða leiðsögn. Frábærir tímar fyrir gigtarfólk sem og aðra einstaklinga
með stoðkerfisverki
Leikfimi fyrir karlmenn: Hressileg liðkandi og styrkjandi þjálfun.
Hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum
Vatnsleikfimi: Góð alhliða þjálfun í vatni. Þyngdarleysi í vatninu gerir það
að verkum að auðveldara er að gera æfingar þar heldur en á þurru landi.
Nánari upplýsingar undir hópþjálfun á heimasíðunni www.gigt.is
Upplýsingar og skráning á skrifstofu G.Í.
Ármúla 5, sími 5303600