Fréttablaðið - 20.08.2011, Síða 44
20. ágúst 2011 LAUGARDAGUR4
skammaðist mín rosalega fyrir
hann, en í dag er ég afar stolt af
honum og lít mikið upp til hans,“
segir Gréta sæl og þakklát föður
sínum fyrir ósk hans um þátttöku
hennar í hinu vinsæla lagi, Háska-
leik. „Mér brá dálítið yfir viðtök-
unum en þeim fylgir afar góð til-
finning. Ég hef aldrei heillast
af frægðinni einni sér, en það
skemmtilegasta sem ég geri er að
syngja frammi fyrir áhorfendum.
Ég hef verið sísyngjandi síðan ég
var smástelpa og stundum klöpp-
uðu nærstaddir fyrir mér, sem
mér fannst æði,“ segir Gréta í ein-
lægni.
Á vori komanda lýkur hún stúd-
entsprófi frá Fjölbrautaskólanum
í Garðabæ og þaðan liggur leiðin
út í söngnám.
„Mig dreymir um að gera söng-
inn að ævistarfi en á eftir að finna
réttu leiðina. Ég hef einnig mjög
gaman af leiklist og dansi, og
söngleikjalínan heillar eftir að
hafa horft ótal sinnum á uppfærslu
Litlu hryllingsbúðarinnar þar
sem pabbi lék plöntuna þegar ég
var lítil,“ segir Gréta sem í kvöld
stígur á svið með Bubba og Sól-
skuggunum frammi fyrir stærri
áhorfendaskara en nokkru sinni,
auk áheyrenda útsendingar tón-
leikanna á Rás 2.
„Ég er miklu meira spennt en
stressuð að fara á svið. Ég veit að
það er alltaf til fólk sem hefur mis-
jafnar skoðanir á manni, rétt eins
og pabba mínum, en ég tek það
ekki nærri mér. Sjálf er ég einn
af hans mestu aðdáendum, finnst
hann gera æðislega tónlist og
texta, og upphefð að því að syngja
með honum frammi fyrir alþjóð,“
segir Gréta stolt.
Þekktar eru fjölmargar laga-
smíðar Bubba til móður henn-
ar, Brynju, bæði þegar þau voru
saman og eftir skilnaðinn.
„Ég er víst miklu meiri Bubbi en
Brynja,“ segir Gréta hlæjandi. „Ég
er miklu líkari pabba en mömmu,
rokkari í eðlinu og uppreisnar-
gjörn, en ekki eins ýkt og pabbi.
Ég er villingur en orðin stilltari
eftir að hafa verið erfið gelgja,“
segir hún og brosir blítt yfir tvö-
földum café latte með karamellu-
sírópi.
„Ég er mikil kaffimanneskja
og held mig aðallega á kaffihús-
um miðbæjarins um helgar. Ég
vil meina að ég sé menningarlega
sinnuð og reyni að kynna mér það
helsta á öllum sviðum mannlífs og
menningar um helgar, enda mikil
félagsvera og finnst gaman að vera
með fólki.“
thordis@frettabladid.is
Árlegur búningadagur Árbæjar-
safns verður haldinn á morgun.
Þá verður sýning á íslenskum
barnaþjóðbúningum og kynning á
námskeiðum í gerð þeirra. Einn-
ig munu börn frá Þjóðdansafé-
lagi Reykjavíkur dansa og kynnt
verða námskeið í barnadönsum
sem fram undan eru hjá félaginu.
Eydís Gauja Eiríksdóttir er eitt
þeirra barna sem ætla að dubba
sig upp á sunnudaginn til að taka
þátt í þjóðdönsum við Árbæjar-
safnið. Hún kveðst oft hafa komið
í safnið áður og tekið þátt í mörgu
skemmtilegu en man ekki til þess
að hún hafi dansað þar fyrr. „Ég
ætla sko að prófa það núna,“ segir
hún full tilhlökkunar.
Eydís Gauja er átta ára og á
heima á Álftanesinu. Mamma
hennar, Oddný Kristjánsdótt-
ir, kennir þjóðbúningasaum hjá
Heimilisiðnaðarfélaginu og er
alger sérfræðingur í þeirri teg-
und fata. Það kemur því ekki
á óvart að Eydís Gauja
svarar játandi þegar
hún er spurð hvort hún
eigi búninginn sem hún
ætlar að dansa í. „Ég
er nú búin að eiga
dálítið marga því ég
er alltaf að stækka.
Þann fyrsta fékk ég
þegar ég var eins árs,“
segir hún eins og ekk-
ert sé sjálfsagðara.
„Ég er sko búin að
venjast svona bún-
ingum og get alveg
leikið mér í þeim
og svoleiðis. Svo
finnst mér bara
svo gaman að vera í
þeim því þá er ég svo
fín.“
Þar sem Eydís
Gauja er með sítt
hár segir hún húf-
una festast vel í
því, hvort sem hún sé
með það slegið eða í
fléttum. En hefur
hún einhverntíma
dansað í íslensk-
um búningi?
„ Nei , bara
snúið mér í
hringi og þá fer
pilsið út og líka svunt-
an og skúfurinn.“
Það verður örugg-
lega pilsaþytur við Árbæjarsafn-
ið þegar litlu dömurnar mæta
margar saman og snúa sér í
hringi í þessum þjóðlegu klæð-
um. En hvað um herrana. Þekkir
Eydís Gauja einhverja stráka sem
eiga hnébuxur, viðeigandi treyj-
ur og uppháa sokka? „Ég hef bara
hitt tvo stráka í svoleiðis fötum,
annar er frændi minn og hinn var
einhver sem ég hitti á safninu,“
segir hún. En býst hún ekki við
að stíga dans við einhvern þannig
klæddan á sunnudaginn? „Ég veit
það ekki,“ svarar hún einarðlega.
„Það fer eftir því hvað kennarinn
vill. Hann hlýtur að stjórna og þá
geri ég bara eins og hann segir.“
gun@frettabladid.is
Fékk fyrsta búninginn
þegar hún var eins árs
Börn frá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur mæta í þjóðbúningum við Árbæjarsafn á morgun og stíga dans á
torginu milli klukkan tvö og þrjú. Öllum börnum er velkomið að taka þátt, læra sporin og dansa með.
Eydís Gauja Eiríksdóttir átta
ára í þjóðbúningi að leika
sér og dansa.
Eydís Gauja er meðal þeirra sem ætla að læra að dansa við Árbæjarsafnið á morgun
og gera eins og kennarinn segir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ráðstefnan Radical Love með Heidi Biker, sem er þekkt fyrir öflugt starf í þágu
fátækra og munaðarlausra barna um allan heim, heldur fyrirlestra í Fjölbrautaskóla
Garðabæjar um helgina. Hún býr í Mósambík ásamt eiginmanni sínum en þau eru
stofnendur hjálparsamtakanna Iris Ministris. Sjá nánar á facebook undir HEIDI BAKER -
RADICAL LOVE CONFERENCE
Inndjúpsdagurinn verður haldinn í fyrsta skipti í dag en þá verður efnt til
fjölskylduhátíðar með miðaldaívafi við innanvert Ísafjarðardjúp. Inndjúps-
dagurinn er samstarfsverkefni fræðimanna sem starfað hafa við fornleifa-
uppgröft í Vatnsfirði, aðila í ferðaþjónustu við innanvert Ísafjarðardjúp og
Súðavíkurhrepps. Ýmislegt verður í boði. Miðaldahlaðborð með hirðdans-
leik, miðaldaleikir, spennandi fornleifaleiðsögn og frumsaminn leikþáttur
um Björn Jórsalafara, hinn mikla höfðingja sem bjó í Vatnsfirði með hirð
sinni.
Vatnsfjörður við Ísafjarðardjúp er einn af merkustu sögustöðum landsins
en allt frá landnámsöld og fram yfir siðaskipti var Vatnsfjörður stórbýli og
höfðingjasetur. Undanfarin átta ár hafa farið fram umfangsmiklar fornleifa-
rannsóknir í Vatnsfirði en elstu mannvistarleifar sem fundist hafa þar eru
frá því snemma á 10. öld og segja má að þar hafi fundist eina heildstæða
víkingaþorpið á Íslandi. Boðið verður upp á ókeypis leiðsögn um fornleifa-
leitarsvæðið í Vatnsfirði í dag klukkan 13 og 15 og kl. 11 á morgun.
Í Heydal við Mjóafjörð, skammt frá Vatnsfirði, verður efnt til miðalda-
dagskrár á Inndjúpsdeginum í anda Björns Jórsalafara (1350-1415). Í kvöld
verður boðið upp á hlaðborð með miðaldaívafi í Heydal og að því loknu
verður efnt til hirðdansleiks þar sem meðal annars verða kynntir miðalda-
dansar. Þá gefst börnum og unglingum tækifæri á að taka þátt í miðalda-
leikjum á hátíðinni í Heydal og að fara í stutta reiðtúra gegn vægu gjaldi.
Fyrsti Inndjúpsdagurinn
Fjölskylduhátíð með miðaldaívafi við innanvert Ísafjarðardjúp.
Gréta Morthens segir Meskalín vera í mestu dálæti af lagasmíðum föður síns.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Framhald af forsíðu
Haustvörurnar komnar frá
París, London og New York
20% afsláttur í dag
Opið 11 - 21
Léttar veitingar milli 18 og 21
Menningarnótt í Flash