Fréttablaðið - 20.08.2011, Page 74
6 matur
„Lífið í New York er litað rósrauðum,
rómantískum ljóma og við tölum oft um
hversu heppin við erum að fá að búa hér,
enda einhuga og samstillt í að upplifa
töfra borgarinnar saman,“ segir Nanna
Teitsdóttir, doktorsnemi í heimspeki, en
hún bloggar reglulega um mat og bakstur
úr litlu eldhúsi sínu í suðupotti alheims-
ins.
„Ég hef alltaf haft yndi af því að borða
mat, enda notið góðs af því að foreldr-
ar mínir eru miklir sælkerakokkar. Í
upphafi hjónabands og nýju heimalandi
skorti mig hins vegar sjálfstraust í eld-
húsinu og lenti í krísu með hvað ég ætti
af mér að gera á meðan ég beið eftir
atvinnuleyfi vestra. Því fór ég að prófa
mig áfram í eldhúsinu og kom sjálfri mér
á óvart með hversu mjög ég naut eldhús-
starfanna en líka hversu vel tókst til
með matargerðina,“ segir Nanna sem á
bloggsíðu sinni gefur lesendum dýrindis
uppskriftir sem hún myndskreytir með
girnilegum matarmyndum úr eigin linsu.
„Að heiman var pressa á að blogga um
líf okkar hjóna og ákvað ég að blanda
því saman við það sem ég elda og baka
hér úti. Mikill tími og hugsun fer í það
sem ég set frá mér og ég set aldrei neitt
á netið nema ég sé ánægð með útkomu
matar og mynda,“ segir Nanna sem skap-
ar flestar uppskriftirnar sjálf en betrum-
bætir og nostrar einnig við uppskriftir
sem hún finnur.
„Maðurinn minn, Elmar Geir Unn-
steinsson, líka doktorsnemi í heimspeki,
hvetur mig óspart til dáða og upp á síð-
kastið hefur þeim fjölgað sem skoða síð-
una mína. Það skrifa ég á sammannlegan
áhuga fólks á því að borða góðan mat og
eyða tíma með fjölskyldu og vinum við
matarborðið.“
Nanna segir New York freistandi
matar kistu árið um kring.
„Í verslunum og á mörkuðum er hlað-
borð ferskrar matvöru sem er ræktuð í
fylkinu og fylgir árstíðum. Maður fær
því mikinn innblástur við að fara í búðir
því allt er svo ferskt og fallegt, og græn-
metisdeildirnar ilma af ferskleika, sem
er eitthvað sem maður þekkir ekki að
heiman,“ segir Nanna sem hefur mest
dálæti á bakstri, ofnbökuðum mat og
grænmetisfæði.
„Nýjasta uppáhaldið er ferskur maís,
en á milli hans og Ora maísbauna heima
er himinn og haf. Ég sker baunirnar af
stönglinum og smjörsteiki með smávegis
af salti út í salat eða sem meðlæti. Hins
vegar sakna ég allra mest hangikjötsins
að heiman, því það fæ ég bara á jóladag
og sumardaginn fyrsta, sem ég grenj-
aði í gegn að yrði að hefð hjá foreldrum
mínum á sínum tíma og fæ aldrei nóg af.“
Bloggsíða Nönnu Teits er
eldadivesturheimi.com
- þlg
Eldað í Vesturheimi
Rómantík ræður ríkjum hjá ungum, íslenskum hjónum í litlu koti í New York, en þar stendur
húsfreyjan keik í eldhúsinu og nýtur þess að baka og elda ofan í þakklátan eiginmann sinn,
og allt fyrir opnum tjöldum á netinu fyrir aðra að njóta.
„Ég hef smakkað mörg lambalæri um ævina, en þetta er sú allra besta
kryddun á lambalæri sem ég hef snætt um ævina. Fólk ætti því virki-
lega að prófa, því það mun aldrei smakka annað eins hnossgæti,“ segir
Nanna.
Blóðberg og rjúpnalauf tíndi Nanna á leið úr fjallgöngu á Hestskarðs-
hnjúk ofan við Siglufjörð. Hún segist nota margt annað í mariner-
inguna, eins og birkilauf og berjalyng. MYNDIR/NANNA TEITSDÓTTIR
Nanna við eldhúsborðið heima í New
York. Hún segir tilfinningu fyrir mat
verða aðra og betri ef maður tínir ber
og kryddjurtir sjálfur, eins og hún gerði
fyrir lambalærið sem hún gefur lesend-
um uppskrift að.
MYND/ELMAR GEIR UNNSTEINSSON
UPPSKRIFT FRÁ HÖRPU
GYLFADÓTTUR TENGDA-
MÓÐUR NÖNNU
Rjúpnalauf, stór handfylli
krækiber, stór handfylli
bláber, stór handfylli
blóðberg, stór handfylli
lambalæri (3,5 kg)
ólífuolía
sjávarsalt og ferskur, mal-
aður pipar
Skerið mestu fituna af lær-
inu; kryddlögurinn á að fara í
kjötið en ekki fituna. Nuddið
lambalærið alls staðar með
smá ólívuolíu, það auðveldar
kryddinu að festast við lærið.
Setjið helming af berjum,
rjúpnalaufi og blóðbergi
ofan á plastfilmu. Leggið
lærið ofan á og þrýstið niður
á krydd og ber. Setjið hinn
helminginn af kryddjurtum og
berjum ofan á lærið og þrýstið
því niður á það. Kryddjurtir og
ber eiga að hylja lambalærið.
Vefjið plastfilmu þétt utan um
lærið og þrýstið á það í gegn-
um plastið til að sprengja sum
berin. Setjið í kæli og leyfið
að liggja í kryddleginum í
sólarhring til sex daga. Því
lengur sem það fær að hvílast
því betra.
Takið plastfilmuna utan af
lærinu og takið krydd og
ber frá. Saltið og piprið og
vefjið álpappír utan um lærið.
Leggið á heitt grill og eldið í
30 mínútur á hvorri hlið. Fjar-
lægið álpappírinn og grillið
í 10 mínútur á hvorri hlið til
viðbótar til að kjötið fái lit og
stökka áferð.
Sneiðið og berið fram með
nýuppteknum kartöflum og
fersku salati.
LAMBALÆRI MEÐ BLÓÐBERGI,
RJÚPNALAUFI OG BERJUM
Ívar Örn Hansen
S: 5125429 , gsm 6154349
ivarorn@365.is
Sigríður Dagný
S: 5125462, gsm 8233344
sigridurdagny@365.is
Sigríður Hallgríms
S: 5125432, gsm 6924700
sigridurh@365.is
AUGLÝSING Í SÉRBLÖÐUM SKILAR ÁRANGRI!
www.
ring.is
/ m
.ring.
is
ferðalög
JANÚAR 2011
FRAMHALD Á SÍÐU 4
INÚÍTALÍF
Góður markaður Íslendingar geta nú nýtt
sumarfríið til að leigja út íbúðir sínar í g
fyrirtækið Iceland Summer.
SÍÐA 2
Skemmtileg lífs-
reynsla Lilja Björk
Jónasdóttir starfaði
arbúðir anda-íðasta ætlar SÍÐA 6
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
við sumbarna í Bríkjunum ssumar og aftur í vor.
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 11. mars 2011
Helicopter vekur athygli
Á rúmstokknumTískan á pöllunumÁrshátíðarförðunin
Fríða María Harðardóttirer sannur eyjarskeggi
Kr.
TILBOÐ
117.950
FRÁBÆRT FARTÖLVUTILBOÐ
15.6”
Skand
ínavísk
hönnu
n
Mikil
hönnu
narsýn
ing er
haldin
í Stok
k-
hólmi
í febrú
ar. Þar
eru he
lstu ný
jungar
hönnu
narhei
msins
kynnt
ar. Sýn
ingin þ
ykir
gefa g
óða m
ynd af
þeim
straum
um se
m
einken
na ska
ndinav
íska hö
nnun o
g þang
að
flykkis
t fólk f
rá öllu
m heim
shornu
m.
Sýning
arsvæ
ðið er
stórt o
g yfirg
ripsm
ikið
en ein
nig er
u sýn
ingar
víðs v
egar u
m
borgin
a. Í ár
var við
ur alls
ráðan
di, ein
s og
oft áð
ur end
a grun
nefni
í skan
dinaví
skri
framl
eiðslu
. Nát
túrule
gar á
ferðir
og
umhve
rfisvæ
nar fr
amleið
sluaðf
erðir n
utu
sín í b
land v
ið skæ
ra og s
terka
liti. Ei
nnig
voru p
astelli
tir ábe
randi
o
hvítt o
g svar
t sé á u
ndanh
Það g
ætir a
fturhv
arf
hjá un
gum f
yrirtæ
kjum
framle
iðsluh
áttum
. Efni
messi
ng sáu
st víða
svo
prjóna
ða, he
klaða
og o
EVERYTH
ING MAT
TERS.
heimi
li&
hönnu
n
febrúar
2011
FRAM
HALD
Á SÍÐU
4
Klassís
k
hönnu
n í
nýju lj
ósi
Ungir
hönnu
ðir
létu ljó
s sitt s
kína í
Stokkh
ólmi. Þ
eirra
á með
al var J
aeuk
Jung.
SÍÐA 6
Mikill
græjuk
arl
Ásgeir
Kolbe
insson
útvarp
smaðu
r kann
vel
við sig
í miðb
ænum
.
SÍÐA 2
menning[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
mars 2011
l FRAMHALD Á SÍÐU 6
DRÖGUM VARLA FLEIRI
DÆMI
Á djúpum miðum
SÍÐA 2
Útsprungnar rósir
SÍÐA 2
egnum
Kjartan Guðdustar rykið
Th
matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]mars 2011
Dekrað við bragðlaukana
Albert Eiríksson færir ljúffenga döðluköku í
nútímalegra og heilsusamlegra horf.
SÍÐA 2
Hreinn unaður
Kristín Eik Gústafsdóttir býr til
fádæma flotta tertu sem allir geta
spreytt sig á.SÍÐA 4
Með sunnudagskaffinuKökur, huggulegheit og samvera.
DÆMI
a
g má
segja
a
aldi.
s til e
ldri tí
en me
ð sam
t
eins o
g kopa
ekki
sé mi
fna ul
l. Þæg
fjölskyldan
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ]
Þ órður Hermannsson sækir Hitt húsið með dóttur sína Karitas Lóu 6 mánaða. Þórður er 23 ára nýútskrifaður tónsmiður frá LHÍ. „Karitas Lóa er mitt fyrsta barn en kærastan mín átti tvö börn fyrir svo við erum með þrjú börn heima. Ég er í fæðingarorlofi núna og finnst mjög gott
að geta hitt aðra foreldra og þá hittir hún líka aðra krakka.“
Þórður segir þá fræðslu sem boðið er upp á koma sér vel fyrir unga nýbak-aða foreldra en annanhvern miðvikudag eru faglegir fyrirlestrar eða kynning-ar. Hann segir félagsskapinn ekki síður mikilvægan.
„Það er gott að hafa stuðning af fleiri ungum foreldrum en það eru ekki marg-ir vinir mínir komnir með börn. Hópur-inn sem hittist er á aldrinum 18 til 25 ára. Við erum öll með okkar fyrsta barn og að ganga í gegnum svipaða hluti. Það er alltaf
febrúar 2011
Í hundunum
Theodóra Róbertsdóttir sýnir á stærstu hundasýningu heims í næsta mánuði.
SÍÐA 2
FRAMHALD Á SÍÐU 4
Ungir kenna fullorðnum
Nemendur úr sjöunda bekk Grandaskóla kenna fullorðnum á tölvur.
SÍÐA 6
Alla miðvikudaga milli klukkan 14 og 16 geta ungir foreldrar mætt með börnin sín í Hitt húsið, rætt málin og fengið faglega ráðgjöf varðandi umönnun ungbarna. Starfið ber yfirskriftina Ungt fólk með ungana sína.
Gott að hitta aðra unga foreldra
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
okkar.is
ze
br
a
Sérblöð Fréttablaðsins eru fjölbreytt og höfða til fólks á öllum aldri. Fjöldi
mismunandi sérblaða kemur út í hverjum mánuði. Leitaðu ráða hjá ráðgjöfum
okkar um hvar auglýsingin þín nær best til markhópsins.
AUGLÝSINGAR Í SÉRBLÖÐUM
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011