Fréttablaðið - 08.09.2011, Síða 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011
FÓTBOLTI Svíinn Lars Lagerbäck
segir í samtali við Frétta blaðið
í dag að hann sé tilbúinn í við-
ræður við Knattspyrnusamband
Íslands um að taka að sér að þjálfa
íslenska karlalandsliðið.
„Starf landsliðsþjálfara Íslands
er áhugavert og ef KSÍ hefur
áhuga og vill ræða við mig er ég
til í viðræður,“ segir Lagerbäck.
Hann bætir þó við að enginn frá
KSÍ hafi rætt við hann um starfið.
Lagerbäck náði frábærum
árangri með sænska lands liðinu
og kom því á fimm stórmót í röð.
Hann er einn
þeirra sem hafa
helst verið orð-
aðir við starfið,
ásamt Íranum
Roy Keane.
Ólafur
Jóhannesson
á aðeins eftir
að stýra lands-
liðinu í einum
leik – gegn
Portúgal í upphafi næsta mánaðar.
Lagerbäck segist hafa frétt
af því að hann væri orðaður við
starfið á þriðjudag. Hann hafi
hins vegar ekki átt í nokkrum við-
ræðum við KSÍ um málið.
Hann segist alltaf fylgjast vel
með því hvernig Norðurlanda-
þjóðirnar standi sig í boltanum
en hann hafi þó ekki kafað sér-
staklega í leiki íslenska liðsins.
Hann kveðst þó vita af því að nú
sé að vaxa úr grasi efnileg kynslóð
ungra leikmanna.
Lagerbäck þjálfaði síðast níger-
íska landsliðið á heimsmeistara-
mótinu 2010.
- esá / sjá síðu 44
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Bæklingur
fylgir með
inni í blaðinu í dag.
Mjólkin g
erir
gott betra
og er
ómissand
i með
súkkulað
iköku.
betri hugmynd!Baldursnesi 6 Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
TILBOÐSDAGAR
20% AFSLÁTTUR AF ÖLLU
BASIC 150
ELDHÚSVASKUR
STÆRÐ: 780 X 435 MM
Tilboðsverð
kr. 13.900,-
Loka
dagu
r 10.
sept
emb
er
Fimmtudagur
skoðun 20
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Sushi
8. september 2011
209. tölublað 11. árgangur
SUSHIFIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER KynningarblaðNigiriMakiTemakiHrísgrjónWasabi
Tofu
A ðaláherslan hjá ok kur er fagmennska og fersk-leiki. Við mætum snemma á morgnana og f lökum fiskinn sjálf og búum til allar sósur. Við lögum einnig til allt okkar sushi fyrir framan viðskiptavininn um leið og hann pantar,“ segir Sig-urður Karl, en allt sushi á staðn-um er handgert. „Það koma engin vélmenni nálægt vinnslunni hjá okkur.“
Sigurður Karl lærði til kokks í Perlunni og útskrifaðist árið 1999. Þá eyddi hann tveimur árum í læri hjá japönskum sushi-meistara í
Kaupmannahöfn áður en hann varð y f irkok k ur á veit inga-staðnum Sticks and sushi. Eftir að hafa haldið fjölmörg nám-skeið og veitt ráðgjöf til fjölda veit-ingastaða opnaði hann suZushii í febrúar árið 2010. Hann er með yfir ellefu ára reynslu í sushi-gerð og hefur SuZushii fengið marg-ar viðurkenningar á þeim stutta tíma sem staðurinn hefur starfað. „Við fengum 9/10 í einkunn í sushi-úttekt Gestgjafans og Dr. Gunni segir að þetta sé það bestaá landinu Ei
vík Grapevine að veita suZushii hæstu einkunn í „best sushi of 2010”,“ segir Sigurður Karl og bætir við að Íslendingar elski gott sushi.
„Það er algjör sushi-sprengja núna og gaman að sjá hvað við Íslendingar erum móttækilegir fyrir þessari matargerð. Ég finn líka gríðarlegan mun á hvernig Ís-lendingar borða sushi, en það er ekki sama hvernig það er gert. Hér hefur verið landlægt að drekkja bitunum í sojasósu og nota allt of mikið wasabi en það á alls ekki að gera. Þetta tvennt á að notast sem létt „krydd” á bitann,“ segir Sig-urður Karl, en í Japan þykir það mikil móðgun við kokkinn að biðja um meira wasabi.„Þar er wasabi aldrei borið fram á sushi-diskinum, það sem kokkur inn setur á sushi-bitann er nóg. Þér gæti meira að segja verið vísað á dyr ef þú biður um meira wasabi í Japan.“ Sigurður seg-ist þó ekki vera strangur á þess-um reglum við sína viðskiptavini og taki því ekki sem móðgun ef fólk biður um auka wasabi. „Nei ég leyfi fólki að hafa þetta eins og það vill,“ segir hann hlæjandi. „En ég mæli samt með því að leyfa bragðinu af hráefninu í bitanum að njóta sín.“
Hjá suZushii er bæði hægt að kaupa sushi til að taka með eða borða á staðnum. Einnig er hægt að kaupa veislubakka en panta þarf þá með fyrirvara fyrir helg-arnar. Alls starfa 16 manns hjá suZushii sem veita snögga og persónu lega þjónustu Allarlýsi
Það er algjör sushi-sprengja núna og gaman að sjá hvað Íslendingar eru móttækilegir fyrir þessari matargerð. Ég finn líka mun á hvernig Íslendingar borða sushi.
Handunnið sushi frá grunni úr gæðahráefni
Hjónin Sigurður Karl Guðgeirsson og Ásta Sigríður Sveinsdóttir reka veitingastaðinn suZushii á Stjörnutorginu í
Kringlunni. Þau leggja áherslu á fagmennsku og ferskt hráefni og vinna allt frá grunni.
VINSÆLASTI BITINN
FERSKLEIKI
Allt sushi er handgert frá grunni fyrir framan viðskipta-vininn á suZushii og einungis notast við ferskt hráefni og unnið eftir japönskum hefðum.
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512-5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512
ÁTT ÞÚ ERFITT
MEÐ AÐ FINNA
ÞÉR BUXUR SEM
PASSA VEL?
Málmáferð skýtur upp kollinum í fötum og fylgihlutum í haust. Oftast er um gyllta, bronslitaða og silfraða tóna að ræða en áferðin sést líka í öllum regnbogans litum.
Stefán Finnbogason meðlimur hljómsveitarinnar Sykurs spáir í komandi vetrartísku:
Verður
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Opið mán.-fös. 10-18.
Opið á laugardögum 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vertu vinur
NÝR SAUMLAUS - FRÁBÆR !
Risalax á ónefnda flugu
Daninn Nils Jörgensen
veiddi stærsta lax
sumarsins í Vatnsdalsá.
veiði 46
HEILBRIGÐISMÁL Sóttvarnalæknir
telur að mörg HIV-smit megi rekja
til konu sem hann fór fram á að
yrði sett í tímabundna einangrun
árið 2007 þar sem hún væri skaðleg
öðrum. Héraðsdómur synjaði kröfu
sóttvarnalæknis og fékk konan að
fara frjáls ferða sinna.
Konan var virkur sprautufíkill
og hélt því fram við sóttvarnalækni
til að byrja með að hún treysti
sér ekki til að gæta sín úti í sam-
félaginu.
Sóttvarnalög gera ráð fyrir þessu
úrræði, sýni smitaður einstakling-
ur ekki fram á að hann muni gæta
fyllstu ráðstafana til að koma í veg
fyrir að smita út frá sér.
Þetta var í fyrsta og eina sinn
sem reynt var að beita þessu
úrræði hér á landi. Í lögunum segir
að þvingunaraðgerðir er varða ein-
angrun smitaðra einstaklinga eigi
að vera allra síðasta úrræðið í
málum sem þessum. Kröfunni var
synjað þar sem konan hélt því fram
fyrir héraðsdómi að hún ætlaði að
fylgja öllum reglum.
„Dómara þótti ekki hafa verið
sýnt fram á að hún hefði smitað
neina aðra og hafði hennar orð
fyrir því að hún mundi ekki smita
aðra,“ segir Haraldur Briem sótt-
varnalæknir. „En talið er að mörg
smit megi rekja til hennar.“
Haraldur segir að fagaðilar hafi
verið að skoða þetta mál að undan-
förnu og velt því fyrir sér hvort
lögin þurfi að vera skýrari hvað
þetta varðar, en ekki hefur verið
farið fram á formlega endur skoðun
þeirra. HIV-smitum meðal sprautu-
fíkla hefur fjölgað mikið hér á landi
á síðustu árum.
Guðbjartur Hannesson vel-
ferðarráðherra segir að verið sé
að skoða hvernig sporna megi við
frekari útbreiðslu á smiti. Sam-
ráðshópur á vegum velferðar-
ráðuneytisins, SÁÁ, sóttvarna-
læknis og fleiri aðila fundi í næstu
viku og þá verði hugsanlega ein-
hverjar ákvarðanir teknar varð-
andi framhaldið.
„Það þarf að ná til þessa hóps til
þess að forvarnirnar hafi áhrif,“
segir Guðbjartur. „Ég tel að öðru-
vísi hafi meira framboð af nálum
og getnaðarvörnum ekki áhrif.
En við erum auðvitað tilbúin að
ræða það hvernig hægt er að auka
aðgengi að hvoru tveggja.“ - sv
Kona smitaði marga af HIV –
beiðni um einangrun synjað
Kröfu sóttvarnalæknis um tímabundna frelsissviptingu HIV-smitaðs fíkils var synjað í Héraðsdómi árið
2007. Sóttvarnalæknir telur að rekja megi mörg smit til konunnar. Smituðum sprautufíklum fjölgar ört.
Í 15. grein sóttvarnarlaga segir meðal annars að ef einstaklingur, haldinn
smitsjúkdómi, fallist ekki á að fylgja reglum um umgengni við aðra eða
rökstuddur grunur sé um að hann hafi ekki fylgt slíkum reglum geti sótt-
varnalæknir ákveðið að hann skuli lagður inn á sjúkrahús í einangrun eða
að hann skuli einangraður með öðrum hætti.
Einangrun má ekki vara lengur en fimmtán sólarhringa í senn, en ef
sóttvarnalæknir telur nauðsynlegt að hún vari lengur skal hann að nýju
bera kröfu um slíkt undir héraðsdóm. Farið var fram á fimmtán daga í máli
konunnar, en eftir synjun héraðsdóms var málinu ekki áfrýjað til Hæsta-
réttar, þó gera lögin ráð fyrir því úrræði.
Farið fram á fimmtán daga einangrun
Mikið áfall
Óbætanlegum munum
stolið í innbroti hjá Vigdísi
Hrefnu Pálsdóttur leikkonu.
fólk 50
BJART eða bjart með köflum
sunnan- og vestanlands en skýjað
að mestu og lítilsháttar úrkoma
norðan og austan til. Heldur
kólnandi veður.
VEÐUR 4
6
5 4
10
5
TÍSKA Nicola Formichetti, list-
rænn stjórnandi Mugler-tísku-
hússins, hefur unnið með tölvu-
leikjafyrirtækinu CCP að
sýningu sem opnuð verður á
tískuvikunni í New York í dag.
„Ég held að CCP sé fyrsti leikja-
framleiðandi heims sem vinn-
ur með þekktum fatahönnuði á
borð við Formichetti, en hann er
þekktur fyrir samstarf sitt við
Lady Gaga,“ segir Eldar Ástþórs-
son hjá CCP.
Á sýningunni, sem stendur í
tvær vikur, mun tölvuteiknuð
fyrir sæta sýna fatnað sem Form-
ichetti hannaði. Umgjörðin verð-
ur tölvuleikjaheimur sem unninn
er út frá umhverfi EVE online.
- sg / sjá allt 2
Tískuvikan í New York:
CCP vinnur með
frægum hönnuði
LARS LAGERBÄCK
KSÍ leitar enn að staðgengli Ólafs Jóhannessonar landsliðsþjálfara:
Lagerbäck vill ræða við KSÍ
Látum glepjast í búðum
Innkaup í stórmörkuðum
eru mestanpart handahófs-
kennd og ráðast af
útpældum uppstillingum,
segir hagræðiprófessor.
neytendur 16
EPLI OG UPPLÝSINGAR Þessa dagana stendur yfir kynningarátak á árangri þróunarsamvinnu.
Meðal annars var eplum dreift víða um land í gær og vegfarendur upplýstir um stöðu mála. Fulltrúar í utanríkis-
málanefnd Alþingis studdu átakið með þátttöku sinni, þar á meðal Bjarni Benediktsson. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG