Fréttablaðið - 13.09.2011, Page 23
ELDUNARTÆKI
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2011
Kynningarblað
Ísskápar
Innréttingar
Borðbúnaður
Eldavélar
Háfar
Bakaraofnar
Fyrirtækið Einar Farestveit
& Co. hf. er landsmönnum
að góðu kunnugt fyrir
vönduð heimilistæki.
Fyrirtækið Einar Farestveit & Co. hf. hefur fyrir löngu skapað sér nafn hérlendis
fyrir sölu á vönduðum eldunar-
tækjum. Verslunarstjórinn Þrá-
inn Bj. Farestveit er öllum hnút-
um kunnugur um nýjungar þess.
Þráinn upplýsir að hjá Einari
Farestveit & Co. hf. séu fjögur
vörumerki í öndvegi í eldunartækj-
um. Nefnir hann fyrst til sögunn-
ar Blomberg. „Óhætt er að segja
að Blomberg sé stórtækt í öllu sem
það tekur sér fyrir hendur, því það
býður upp á breiða línu af ofnum,
allt frá hálf- og upp í alsjálfvirka
ofna, og ofna þar sem við erum að
tala um allt að 65 lítra ofnrými en
yfirleitt eru ofnar í kringum 53
lítra,“ bendir hann á og bætir við
að Blomberg þekki flestir enda
hefur merkið fyrir löngu náð fót-
festu hérlendis.
De Dietrich er að sögn Þráins
stórt vörumerki frá Frakklandi
sem hefur náð miklum vinsæld-
um á Íslandi enda bjóði það upp
á eina fullkomnustu ofna sem völ
er á. „Sumir eru búnir alsjálfvirk-
um hreinsi- og matreiðslu kerfum
og sértækum tölvustillingum.
Sem dæmi er hægt að stilla ofn
sérstaklega á roastbeef og hann
skilar kjötinu fullelduðu án þess
að kokkurinn þurfi að grípa inn í
eldamennskuna.“
Þá segir Þráinn De Dietrich
framleiða smáofna sem eru ekki
nema 2/3 af hefðbundinni stærð
og eru nokkuð eftirsóttir. „Þar eru
hagkvæmnissjónarmið höfð í fyrir-
rúmi og gott dæmi um slíkt eru
ofnar sem sameina eiginleika hefð-
bundinna ofna og örbylgjuofna.“
Þráinn segir þó fáa standast
bandaríska fyrirtækinu KitchenA-
id snúning hvað glæsileika varðar
í ofnum, helluborðum og háfum.
„Allt sem frá því kemur er vand-
að og flott og stálið sem er notað
er sérstakt nanóstál, sem er kám-
frítt.“
Einnig nefnir hann ítalska
framleiðandann Candy sem fram-
leiðir einfalda og vandaða ofna og
helluborð. „Þeir eru búnir öllum
nauðsynlegum eiginleikum, góðri
blástursviftu, undir- og yfirhita og
grilli.“
Loks lætur Þráinn þess getið
að litlir og stórir ofnar, háfar, gas-
hellu- og spansuðuhelluboð séu
meðal þess sem bjóðist frá öllum
framleiðendum, sem fyrirtækið
er umboðsaðili fyrir. Sjón er sögu
ríkari.“
Fjölbreytt tækjaflóra
Einar Farestveit & Co. hf. leggur áherslu á vönduð vörumerki í eldunartækjum, að sögn verslunarstjórans Þráins Bj. Farestveit. MYND/PJETUR
HÁGÆÐA
HNÍFAR
Fissler er er þekkt fyrir vandaða
framleiðslu. Fissler er framleitt
úr hágæða stáli í öllum vöru-
flokkum. Fissler hefur verið
fáanlegt á íslenskum markaði í
nokkra áratugi. Meðal þess sem
fyrirtækið framleiðir eru hnífar
af öllum stærðum og gerðum,
allt frá flysjurum upp í kjöt- og
grænmetishnífa, sem hægt er
að kaupa staka eða saman í setti
ásamt hnífastöndum og nota
jafnt heima eða í atvinnuskyni
HÁGÆÐA POTTAR
Fissler er einn stærsti og
virtasti framleiðandi á pöttum
og pönnum í Þýskalandi.
Pottarnir eru framleiddir úr
vönduðu stáli og til í mörgum
tegundum, bæði til heimilis- og
atvinnunotkunar. Einnig fram-
leiðir Fissler mikið af eldhús-
áhöldum til að einfalda störfin í
eldhúsinu.