Búfræðingurinn - 01.01.1936, Side 30
I
26
fyllist júgrið. Meðan mjólkurgangarnir eru tómir,eftir ný afstaðnar
mjaltir,eiga frumublöðrurnar auðvelt með að springa og tæmast út
í mjólkurgangana,en eftir því sem meira safnast fyrir,eftir því
verður þetta torveldara,og svo kemur að lokum,orðið
jafn mikill í mjólkurgöngunum og í frumublöðrunum; þá geta þær ekki
lengur tæmst og mjólkurmyndunin hættir. Af þessu leiðir,að þegar
mjólkurmyndunin er ör,þarf að tæma júgrið oft - m.jólka oft.
M.jólkurmyndun meðan á m.jöltum stendur. MjÖg eru skoðanir manna
skiftar um baðshvort öll mjólkin sé mynduð,begar mjaltir byrja eða
verulegur hluti hennar myndist meðan á mjöltum stendur.
Sumir álykta sem svo,að júgrið geti aldrei rúmað í einu alla
mjólk úr hámjólka kúm,er fram kemur við- hverjar mjaltir. Yenjulegt
kýrjúgur muni ekki rúma meira en um 8 litra af mjólk í einu. Af-
gangurinn(e.t.v. L2 - A-.. kg eða meira) hljóti því að myndast meðan
á mjöltum stendur. Til stuðnings ]?essari skoðun færa þeir einnig
það fram,að síðasta mjólkin úr júgrinu er feitust og muni hún vera
mynduð meðan á mjöltum stendur. Á þann hátt telja þeir einnig að
skýra megi þá staðreynd,að kýrin '■"■selur” betur,ef hún er í "góðu
skapi”,taugastarfsemi hennar í lagi. Verði þar a einhver truflun,
óróleiki í fjósi,óvanur mjaltari eða annað,"selur" hún ver eða ef
til vill alls ekki. Er því j,á haldið fram,að mjólkurmyndunin stöðv-
ist og úr júgrinu náist aðeins sú mjólk,er mynduð var,þegar mjaltir
byrjuðu.
Aðrir telja aftur á móti mjög ólíklegt,.að mjólkurkirtlarnir
geti starfað með þeim hraða,er fyrrnefnd kenning gerir ráð fyrir.
Mjaltir standa yfir vanalega 5 - lo mínútur. Virðist það ákaflega
ótrúlegt,að fleiri lítrar af mjólk geti myndast á þeim tíma. Mis-
munandi feitimagn mjólkurinnar undir mjöltunum er lélegt sönnunar-
gagn,því að feitin ætti þá skyndilega að hækka,þegar komið er að
þeirri m,jólk,er myndast meðan verið er að mjólka,en það gerir hún
ekki,heldur eykst feitimagnið jafnt og þétt. Sumar rannsóknir hafa
sýnt,að júgrið rúmar alla mjólk,er úr því kemur við einar mjaltir.
Eg tel þessa skoðun miklu eðlilegri og réttari,því að hin gerir
ráð fyrir yfirnáttúrlegu starfi mjólkurkirtlanna þann stutta tíma,
sem mjaltir standa yfir. Þá er það atriði -eftir,hvernig hin síðari
skoðun skýrir það,þegar kýr "selja" ekki. Mér.finnst útskýringin
geta verið þessi: Þess er áður getið,að utan um mjólkurgangana,þ.e.
klæðvef þeirra,eru sléttir vöðvaþræðir,en þeir stjórnast ávalt af
ósjálfráða taugakerfinu. Þegar truflun kemst á starfsemi þess, þá
getur hugsast,að tæming mjóikurganganna verði örðugri og kýrin
"selji" því lakar. Þegar mjaltir byrja ,eru klæðvefsfrumur mjólkur-
ganganna fullar af mjólk,en tæmast,þegar mjólkin minnkar í mjólkur-