Búfræðingurinn - 01.01.1940, Side 81
B Ú F R Æ Ð I N G U R I N N
7ó
arlagi norðlenzkra og sunnlenzkra bænda, og munu báðir
geta lært nokkuð við að kynnast búskaj) bvors um sig.
Hins vegar eru svo verknámsferðirnar skemmtiferðir nem-
endanna. Það er andleg og líkamleg liressing að ferð-
ast. Tilbreyting og hvíld frá daglegum störfum. íslenzku
fjöllin auka mönnum víðsýni og kjark, þau laða hugann
til sín. Fjarlægðin gerir þau blá og „rómantísk“. Vinnufé-
lagar, sem liafa Ivft sameiginlegri byrði og starfað Iilið
við hlið í erfiði og þunga dagsins, samstillast svo létt í
gleðinni og' ánægjunni af að ferðast í hóp, njóta sömu
náttúrufegurðar, skemmta sér saman.
Við vorum oftast um 40 saman í tveim stórum bifreið-
um. Aðal-viðkomustaðir voru: Tannstaðabakki i Hrúla-
firði, Lækjamót, Vatnsdalur, Blönduós, Víðimvri, Sauðár-
krókur, Hólar í Hjaltadal, Víðivellir í Skagafirði, Akur-
eyri, Vaglaskógur, Mývatn (Slútnes), Laugar, Syðra-Lauga-
land og Reykjaskóli í Hrútafirði i þessari röð, sem nú var
talin. Á Tannstaðabakka tókum við einn nemanda í hóp-
inn, sem á þar heima. Þar þáðum við bæði góðar og
miklar góðgerðir. Við gengum á Hnjúkshnjúk i Vatnsdal
og nutum þar óviðjafnanlegs útsýnis fram i Vatnsdalinn,
í sólskini og yndislegu veðri. Þar er náttúrufegurð, sem
varl mun eiga sinn Jíka bér á landi og þótl víðar væri
leilað. Að Lækjamóti komum við og höfðum þar stutla
viðdvöl, en nutum þó á meðan mjög fróðgjarnrar og lær-
dómsríkrar fræðslu hjá liinum stórmerka vísindabónda.
Jakobi H. Líndal, um rannsóknir lians og niðurstöður á
sýrustigi jarðvegs og jarðlögum víðsvegar á landinu. Á
Blönduósi var drukkið kaffi, er kennslukonur kvenna-
skólans þar veittu. Á Víðimýri var skoðuð hin forna torf-
kirkja, sem er að vísu livorki stór né vegleg utan að sjá,
en alveg sérstaklega aðlaðandi og snotur innanveggja. Á
Víðimýri þáðum við og miklar góðgerðir í bakaleiðinni. Á
Sauðárkróki var tekið benzín og siðan ekið lieim að Hól-
um og komið þangað um kl. 11 að kvöldi. Eftir vel fram-
reiddan og rausnarlegan kvöldverð á Hólum, var gengið
.til sængur og sofið sælt lil kl. 9 að rnorgni næsta dags.