Búfræðingurinn - 01.01.1940, Blaðsíða 141
BÚFRÆÐINGURINN
135
bréf Jesin í hevranda hljóði og hjá okkur færð í sérstaka
hók. í öðru lagi skrifast á einstakir nemendur, og eru það
einkabréf. Við vonum, að þetta verði í framtíðinni bæði
til gamans og gagns fyrir Hólamenn og Hvanneyringa.
1 vínbindindisfélaginu eru alls 52 meðlimir, þar af 47
nemendur. Á þing Sambands bindindisfélaga i skólum, 24.
-26. nóv., voru sendir 3 fulltrúar. Á baráttudegi bindindis- .
manna, 1. febrúar, var gefið frí í skólanum frá hádegi. Um
kvöldið var dagsins minnst með ræðum (G. J. kennari og
E. H. og S. J. skólapiltar) og dansi. Var hoðið nokkrum
„dömum“ af næstu hæjum og úr Borgarnesi. Fonnaður
félagsins er Tómas Helgason. I tóbaksbindindisfélaginu
eru 35 meðlimir, þar af 32 nemendur. Formaður félagsins
er Magnús Kristjánsson. 1 taflfélaginu eru 24 meðlimir
og er allmikið teflt. Félagið á 16 töfl. Formaður þess er
Jósef Jóhannesson. Kapþskák var háð. Þátttakendur voru
13. Hlutskarpastur varð Baldur Jónsson með 11 vinninga.
Blaðafélagið hefir starfað Tíkt og undanfarið. Kaupir það
mörg helztu dagblöð og tímarit landsins. Formaður þess
er Haukur Jörundsson kennari. Nokkru af bókasafninu
liefir verið komið fjnir í bókaskáp í öðrum enda kennslu-
stofu eldri deildar. Bókavörður er Haukur Jörundsson
kennari. Til 20. febrúar hafa alls verið lánaðar af safn-
inu 467 bækur, þar af 66% skáldrit og 16% timarit.
r
Iþróttir og skemmtanir.
Knattspgrna hefir talsvert verið iðkuð. Knattspyrnu-
þjálfari, Hermann Þórarinsson frá Iljaltabakka, var hér
um mánaðartíma fyrir jól. Glíma hefir fremur lítið verið
stunduð. Glimukennari var hér um hálfs mánaðar tíma,
Skúli Þorleifsson úr glímufélaginu Árinann. Þátttakendur
voru 12—16. Skíðafæri liefir sjaldan komið á vetrinum, en
skautafæri var talsvert notað um tima.
íþróttafélag var stofnað upp úr Skíða- og skautafélag-
inu. Hefir það á stefnuskrá sinni alls konar íþróttir: knatt-
spyrnu, skíða- og skautaferðir og frjálsar íþróttir. Það á
7 pör skiði og 17 pör skauta. Formaður þess er Hjörtur