Frjáls verslun - 01.08.2001, Síða 43
VIÐTAL ÞORSTEINN OG INGIBJORG
Háskóla íslands, og Þórunn, fædd 1979, í llffræði. Starf sendi-
herra felur í sér auk þess að annast sljórnmálasamskipti við hlut-
aðeigandi ríki, að vekja athygli á Islandi og, auk þess sem fyrir-
greiðsla fyrir íslensk fyrirtæki er umfangsmikil, hafa bæði Þor-
steinn og Ingibjörg áhuga á að nýta áhuga Breta á Islandi til að
vekja athygli á íslenskri menningu, sem Ingibjörg bendir á að
ætti ekki að vera síðra viðfangsefni fyrir breska fyölmiðla en enda-
laus umfyöllun um næturlífið í Reykjavík.
„Haltu-kjafti“ brjóstsykurinn „Það var búið að veltast í mér þó
nokkurn tíma að hætta í stjórnmálum og það var ekki erfitt þeg-
ar að því kom,“ segir Þorsteinn. „Mér fannst ekki mikið meira
að gera fyrir mig á þeim vettvangi. Eg var líka kominn á þann
aldur að ef ég ætlaði mér að reyna eitthvað nýtt þá var rétti tím-
inn til þess og óvíst að tækifæri gæfist til þess síðar. Þegar
ákvörðunin var tekin var framkvæmdin tiltölulega einföld. Mér
fannst ég ekki aðeins vera að ljúka einhveiju, heldur að byrja á
öðru. Þetta var svona eins og að ljúka við að lesa skemmtilega
bók til að byrja á nýrri.
Það var ekki eitthvað eitt, sem gerði það að verkum að ég tók
þá ákvörðun að hverfa úr pólitíkinni, heldur var það margt í póli-
tískum aðstæðum sem orkaði á þá niðurstöðu. En það var ekki
síður persónuleg löngun til að prófa eitthvað nýtt. Það voru þvr
margbrejáilegar ástæður sem urðu þess valdandi að ég ákvað að
hafa hestaskipti,“ segir Þorsteinn sposkur.
En það eru ekki aðeins umskipti íyrir einn aðila, þegar svona
ákvörðun er tekin, svo hvernig horfa umskiptin við eiginkonu
stjórnmálamanns, þegar hann ákveður að yfirgefa pólitíkina? „Eg
var sjálf í pólitík og alin upp á pólitísku heimili. Pabbi var b}rjaður
Sœl í London eftir tæp tuttugu ár í pólitík heima á íslandi. „ Við höfð-
um aldrei búið erlendis, áttum pað eftir og mérfannst það spennandi,
en viðbrigðin voru gríðarleg," segir Ingibjörg.
mætti breyta í þjóðfélaginu. Á tnínum tíma í pólitíkinni varð margt
að veruleika sem þóttu áður óraunhæfar hugsjónir, sem ekki ættu
við á Islandi. I stórum dráttum er ég sáttur við þá þróun sem varð.
Hún varð r meginatriðum í þá átt, sem ég beindi sjónum mínum
og kröftum. Það er þó þannig með alla að það er alltaf eitthvað
sem maður hefði kosið að væri öðruvrsi, bæði í umhverfinu og í
manni sjálfum, en aðalatriðið eru stóru linurnar. Eg er sáttur við
þá þróun sem varð þá tvo áratugi, sem ég var í pólitík."
rgefa pólitíkina!
á þingi áður en ég fæddist og sljórnmál hafa því alltaf verið sterk-
ur liður í mínu lrfi. í raun fannst mér þetta pólitíska líf skemmtilegt,
en það komu auðvitað tímar sem ég hefði viljað eiga meira af Þor-
steini,“ segir Ingibjörg brosandi.
En hvað er það þá sem henni finnst skemmtilegt við pólitíska
lífið? „Það er mismunandi eftir því hvort maður er sjálfur leikmað-
ur eða fylgist með af hliðarlínu. Maður er viðkvæmari ef maður
stendur fyrir utan. Sem þátttakandi verður skrápurinn þykkari.
Það er áhugavert og skemmtilegt að hafa sem leikmaður tök á að
stuðla að breytingum og hafa áhrif á þróun samfélagsins. Það get-
ur maður ekki af hliðarlínunni," segir Ingibjörg og bætir við með
bros á vör að hún hafi ekki verið maki sem reyndi að vera í pólitík
í gegnum Þorstein - og undir það tekur Þorsteinn heilshugar. „En
það getur hins vegar ekki farið hjá því að maki stjórnmálamanns
verði samofinn því hlutverki á einn eða annan máta,“ bætir hann
við. „Við ræddum vitaskuld mikið pólitík. Þannig kemst maki
stjórnmálamanns varla hjá því að verða meðvitað eða ómeðvitað
mikilvægur ráðgjafi."
En er hægt að hverfa úr stjórnmálum jafnauðveldlega eins og
Þorsteinn lætur vera? Er ekkert sem situr í honum? „Nei, þetta er
ekki eins og bein í hálsinum,“ segir Þorsteinn hlæjandi. „Það er
ekkert sem stendur í mér. Eítir á er þó margt sem maður hefði
kannski viljað gera öðruvisi. í mínu tílfelli þá lenti ég ungur í hring-
iðu sljórnmálanna og var rekinn áfram af hugmyndum um hverju
rPo/ss'lei/m (Sálsson
Fæddur: 29. október 1947 á Selfossi.
Maki: Ingibjörg Rafnar lögmaður.
Börn: Aðalheiður Inga, f. '74,
Páll Rafnar, f. '77,
Þórunn, f. '79.
Menntun: Héraðsdómslögmaður 1976.
Starfsferill: Ritstjóri Vísis, 1975 til 1979.
Frkvstj. Vinnuveitendasambandsins
1979 til 1983.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
Suðurlandskjördæmi, 1983 til 1999.
Formaður Sjálfstæðisflokksins,
1983 til 1991.
Fjármálaráðherra, 1985 til 1987.
Forsætisráðherra, 1987 til 1988.
Dóms-, kirkjumála- og sjávarút-
vegsráðherra, 1991-1999.
Sendiherra í London frá 1999