Frjáls verslun - 01.08.2001, Blaðsíða 41
Flóamanna er flutningar. Flutningabílan
sækja mjólk til bænda allt frá Hellisheiði
austur í Álftafjörð auk þess sem vörurnar
eru keyrðar á markað t.d. á höfuðborgar-
svæðið. Neytendur sjá flutningabíla okkar
á vegum úti en verða minna varir við þá
fjölbreyttu starfsemi sem á sér stað hér
innanhúss," segir Birgir Guðmundsson
mjólkurbússtjóri.
Mjólk, jógúrt, skyr og ostar eru daglegt brauð á borðum landsmanna en fæstir velta því fyrir sér
hvaðan vörurnar koma. Hér má sjá starfsmenn við færibandið í mjélkurbúinu.
Fjölbreyttar vörur
Vöruúrval Mjólkurbús Flóamanna er mjög
fjölbreytt og eru fá ef nokkur fyrirtæki á
þessu sviði í allri Norður-Evrópu með
jafnfjölbreytta framleiðslu. Stærstu vöru-
flokkar fyrirtækisins eru ýmsar neyslu-
vörur og ferskvörur, t.d. jógúrt og sýrðar
afurðir af ýmsu tagi. Skyr er geysilega
stór þáttur í framleiðslunni og fer ört
vaxandi, þannig sló t.d. í gegn nýjungin skyr.is, sem sett var á
markað í vor. Mjólkurbúið framleiðir einnig mikið af smjöri og
ýmsum smjörafurðum svo sem Létt og Laggott og Klípu. G-vör-
urnar eru einnig stór þáttur í starfseminni og þar trónir kókó-
mjólkin hæst. Mjólkurduft er sömuleiðis stór vöruflokkur auk
þess sem ostaframleiðslan stendur alltaf fyrir sínu. „Þar erum
víð fyrst og fremst að framleiða sérosta, svo sem Camembert,
Kastala, Dímon, Gullost og svokallaða rjómaosta," segir Birgir.
sér grein fyrir því í upphafi hver söluþróun þeirra verður þó svo
að menn telji sig vita mjög vel hvernig markaðurinn muni bregð-
ast við. Lykillinn að velgengni í þessum iðnaði er öflug og mark-
viss vöruþróun, síðan skiptir auðvitað miklu máli vönduð mark-
aðssetning og góð eftirfylgni," svarar Birgir.
Milliríkjaviöskipti aukast
Mikil áhersla hefur verið lögð á gæðamálin hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna og að sjálfsögðu er vottað gæðakerfi við lýði. Þess utan
er unnið eftir vottuðu gæðakerfi frá Evrópusambandinu og þar
með hefur fyrirtækið fengið heimild til útflutnings á afurðum inn-
an ESB. Birgir bendir á að íslenskir mjólkurvöruframleiðendur
njóti ekki útflutningsbóta eins og aðrar þjóðir og eigi því ekki
mikla möguleika á útflutningi, nema ef til vill á þeim vörum, sem
eru umfram þarfir innanlandsmarkaðarins, t.d. umframfitu í
formi smjörs. „Þó svo að okkur hafi ekki tekist að selja smjör til
landa innan Evrópusambandsins á undanförnum árum þá höfum
við selt það til annarra landa. Það að hafa vottun ESB opnar
okkur auðveldlega allar dyr í þeim efnum, það er slíkur gæða-
stimpill," segir hann og telur að útflutningsmöguleikar fyrirtæk-
isins felist frekar í því að flytja út sérþekkingu en mjólkurvörur
eins og staðan er í dag.
- En hvernig lítur framtíðin út?
„Ljóst er að milliríkjaviðskipti með landbúnaðarvörur munu
aukast á næstu árum og við reynum að undirbúa okkur fyrir
framtíðina, t.d. með aukinni tæknivæðingu. Sömuleiðis reynum
við að aðstoða okkar bændur og styðja þá til þess að ná fram
arðbærari framleíðslu," svarar Birgir.
Mjólkurbú Flóamanna hefur lagt áherslu á að lifa í sátt við
umhverfi sitt og hefur verið í fararbroddi íslenskra fyrirtækja á
því sviði. „Við höfum stigið ákveðin skref í þá átt að umgangast
umhverfi okkar sem allra best. Við höfum til að mynda lagt
áherslu á að koma frárennslismálum okkar í það horf að það
standist þessar kröfur og við erum komnir mjög vel á veg, fyrstir
allra fyrirtækja í matvælaiðnaði hér á landi," segir hann.SIi
MJÓLKURBÚ flOAMtKW.
r S3
Mjúlkurbú Fiúamanna framleiðir mest vörur undir merkjum Mjúlkur-
samsölunnar og Osta- og smjörsölunnar í Reykjavík. hleytendur
verða því lítið varir við fyrirtækið úti á markaði, þeir sjá flutningabíl-
ana á vegum úti en verða minna varir við þá fjölbreyttu starfsemi
sem á sér stað hjá fyrirtækinu.
- Er endalaust hægt að halda áfram með vöruþróun á mjólkurvörum?
„Já, það er alltaf hægt að koma með eitthvað nýtt. Öllu fleygir
fram og neyslumynstrið er stöðugt að breytast. í dag vill fólk fá
vörur sem eru aðgengilegar til neyslu nánast hvar sem er og
með lítilli fyrirhöfn. Þetta kallar á breytingar og þróun. Stað-
reyndin er sú að líftími vörunnar á markaði er misjafn, sumar
vörur standa stutt við, aðrar lengur. Það er oft erfitt að gera
Mjólkurbú Flóamanna, Austurvegi 65, 800 Selfossi.
Sími: 480 1600 ■ Netfang: mbf@mbf.is ■ Veffang: www.mbf.is
|!llHlHI!imil!ll
41