Frjáls verslun - 01.08.2001, Blaðsíða 52
VIÐTAL VIÐ OLflF ÍSLEIFSSON
Til verka
vestur um Itaf
Eg tek sæti í framkvæmdastjórn
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um
tveggja ára skeið frá næstu ára-
mótum. Eg verð aðalfulltrúi Norður-
landa og Eystrasaltsríkja, sem saman
eiga eitt sæti í framkvæmdastjórninni,
og stýri skrifstofu þeirra hjá sjóðnum.
Starfið felst í því að vera fulltrúi ríkj-
anna og talsmaður í framkvæmda-
stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem
skipuð er 24 fulltrúum. Aðildarriki sjóðsins eru 183 og hjá
honum starfa um 3000 manns. Framkvæmdastjórnin er æðsta
vald í málefnum sjóðsins milli ráðherrafunda og fjallar um efna-
hagsmál í einstökum löndum og heimsbúskapinn. Einnig tekur
framkvæmdastjórnin ákvarðanir um mál sem snerta hið alþjóð-
lega ijármálakerfi og lánveitingar til einstakra aðildarríkja,"
segir Olafur.
Margþætt reynsla kemur til góða Ólafur er með BS-próf í
stærðfræði frá Háskóla Islands og hlaut meistaragráðu í hag-
fræði frá London School of Economics 1980. Hann starfaði hjá
Þjóðhagsstofnun 1980-1983, hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
1985-1987 og var efnahagsráðunautur ríkisstjórnar Þorsteins
Pálssonar 1987-1988. Ólafur hlaut réttindi til verðbréfamiðlunar
1998. Ólafur kenndi við Háskóla Islands, var dálkahöfundur um
efnahagsmál á Morgunblaðinu og sat í samkeppnisráði 1993-94.
Hann hefur stýrt alþjóðasviði Seðlabankans frá 1991.
Ólafur segir reynslu sína koma sér vel í nýju starfi. „Eg hef
alllanga reynslu af málefnum sjóðsins, hef sótt flesta ársfundi
hans og fundi stjórnarnefndar síðustu fimmtán árin. Eg vann á
skrifstofu Norðurlanda við sjóðinn um tveggja ára skeið og hef
tekið þátt í samstarfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja þennan
tíma. Málefni sjóðsins hafa verið hluti af starfi mínu í Seðla-
bankanum. Eg tel að reynsla mín af fýrra starfi hjá sjóðnum og
eins af tjármálum í starfi í Seðlabankanum korni mér til góða í
framkvæmdastjórn sjóðsins, enda snýst starf hans í vaxandi
mæli um alþjóðleg tjármál," segir Ólafur.
Mikilvægi sjóðsins ler vaxandi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er
aðalvettvangur heimsbyggðarinnar á sviði efnahagsmála. Ólaf-
ur segir verkefni sjóðsins vera sífellt
umfangsmeiri, til dæmis hafi hann
gegnt hlutverki við að leysa úr efna-
hagsvanda undangenginna ára á borð
við kreppuna í Asíu 1997, í Rússlandi
1998 og í Brasilíu ári síðar. Á seinni
árum hefur sjóðurinn beint sjónum
sínum æ meira að tjármálamörkuðum.
„Öll þessi mál koma til kasta fram-
kvæmdastjórnar sjóðsins. Mikilvægt
mál á vettvangi sjóðsins um þessar mundir er að létta skuldum
af örbjarga þjóðum, einkum í Afríku, í samvinnu við systur-
stofnun sína, Alþjóðabankann."
Hryðjuverk og aljljóðaviðskiptl Fátt hefur verið rætt meira en
hryðjuverk í Washington og New York. Ólafur segir erfitt að
spá um langtímaáhrif árásanna á tjármálaheiminn. .Allir hafa
lagst á eitt að draga úr áhrifum til skamms tíma, meðal annars
seðlabankar með vaxtalækkunum og aukinni lánaíýrirgreiðslu.
Heimurinn gengur iýrir alþjóðaviðskiptum, þau auka hagsæld
þjóða og ekki síst þeirra sem fátækastar eru. Þær eiga því mik-
ið í húfi að heimsviðskiptin gangi greiðlega iýrir sig og eflist í
framtíðinni. Ólafur segist ekki óttast hið nýja starfsumhverfi
þótt margir telji Alþjóðagjaldeyrissjóðinn merkisbera hins vest-
ræna fjármálaheims. „Nei, ég óttast það ekki, en öllum er hollt
að fara með gát. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Alþjóðabankinn
hafa orðið að treysta ýmsa þætti í öryggismálum vegna hópa
sem leitast við að spilla fundum þeirra. Starfi mínu munu fylgja
ferðalög til landanna átta sem ég verð fulltrúi iýrir svo líkast til
má ég búast við hertum öryggisreglum,“ segir Ólafur.
Seðlabankinn á alþjóðlegan mælikvarða Talið berst að Seðla-
banka Islands og starfinu sem Ólafur mun hverfa úr um skeið.
„Seðlabankinn hefur um áratuga skeið annast erlendar lántök-
ur ríkisins. Þann tíma sem ég hef stýrt alþjóðasviði bankans
hefur komið í minn hlut að móta stefnu í lánamálum og semja
um kjör erlendra lána. Nánast öll erlend lán sem ríkið er nú
með útistandandi hafa farið um hendur okkar á alþjóðasviði
bankans,“ segir Ólafur og bætir við að hann hafi verið einkar
heppinn með samstarfsmenn í tíð sinni hjá Seðlabankanum.
/ /
Olafur Isleifsson hefur stýrt alþjóða-
sviði Seðlabanka Islands í tiu ár en
/
er nú á leið vestur um haf Afanga-
staðurinn er Alþjóðagjaldeyrissjóð-
urinn i Washington DC.
Eftir Jörund Valtýsson Myndir: Geir Olafsson
Heimurinn gengur fyrir alþjóðaviðskiptum, þau auka hagsæld þjóða og
ekki síst þeirra sem fátækastar eru. Þær eiga því mikið í húfi að
heimsviðskiptin gangi greiðlega fyrir sig og eflist í framtíðinni.
52