Frjáls verslun - 01.08.2001, Blaðsíða 160
VIMUMFJOLLUN SIGMARS B.
Vín og streita
Vísindamenn hafa víða um heim, nú á
síðari árum, hafið víðtækar rann-
sóknir á áhrif streitu á mannslík-
amann. Það er staðreynd að streita eykst
stöðugt i hinum vestræna heimi og æ
fleiri kvarta undan streitu. Kannanir í
Bretlandi sýna að um 30% vinnandi fólks
telja sig þjást af streitu. Nýjustu rann-
sóknir sýna að langvarandi streita hefur
mun víðtækari áhrif á líkamann en talið
hefur verið.
Rannsókn norska sálfrœðings-
ins Öyvind Stokke sýndi að fólk
sem fœr sér eitt til tvö rauðvíns-
glös á dag fær sjaldnar verki í
bak, herðar, hnakka og hand-
leggi en peir áhyggjufullu.
Eftír Sigmar B. Hauksson Myndir: Geir Ólafsson
Streita Það var ekki fýrr en á síðasta áratug sem læknar fóru
að geta að einhveiju leyti mælt áhrif streitu á mannslíkamann.
Enn tíðkast það of oft að læknar skrifa út pillur fyrir sjúklinginn
sem telur sig þjást af streitu fremur en að reyna að komast að þvi
hvað veldur streitunni. Rannsóknir vestanhafs og austan sýna að
langvarandi streita getur orsakað ýmsa sjúkdóma. I því sam-
bandi má nefna hjarta- og magasjúkdóma, verki í öxlum og
handleggjum, svefnleysi, höfuðverk og síþreytu. Það eru fjöl-
margir þættir daglegs lifs sem geta valdið sheitu, of mikið vinnu-
álag, áhyggjur, leiði og óhamingja. Enginn kemst hjá því að
kynnast einhverri streitu og hófleg streita, ef svo má að orði
komast, er alls ekki hættuleg. Besta vörnin við streitu er að
skipuleggja vinnudaginn vel og jafnvel einnig heimilisverkin og
að læra að slaka á og hvílast vel.
hressandi göngutúr eða í sund eftir
vinnu. Þegar heim er komið er tilvalið að
hlusta á fagra tónlist og fá sér glas af
víni. Meðal þeirra vína sem hægt er að
mæla með er bandaríska vínið Beringer
Fume Blanc á 1.490 kr., Hugel Riesling á
1.360 kr. og Laforet Chardonnay á 1.190
kr. Þetta eru ljómandi vín á sanngjörnu
verði. Þessi vín eru ekki flókin en frísk-
andi og þægileg. Sem kunnugt er hafa
léttvín góð áhrif á hjarta- og æðakerfið
fyrir utan það að hafa slakandi áhrif. Að
öllu jöfnu er betra að fá sér glas af hvítvíni fremur en rauðvíni
þar sem hvítvínin eru léttari. Fyrir þá sem ekki eru fyrir mjög
þurr vín má mæla með spænska víninu Torres Esmeralda á
1.170 kr. og franska víninu Hugel Gewurztraminer á 1.490 kr.
Þá er rétt að benda á að vín hefur góð áhrif á meltinguna og
því er það tilvalið að fá sér glas af víni fyrir matinn og svo eitt
með matnum. En því miður er það nú svo á Islandi að ofur-
tollar eru á víni og öðru áfengi. Vín er því dýr munaðarvara.
Frá heilbrigðissjónarmiði væri því skynsamlegt af stjórnvöld-
um að lækka tolla og gjöld á léttvínum. Sem dæmi má nefna
að í Svíþjóð og Danmörku og í Bandaríkjunum hafa rann-
sóknir sýnt að vínveitingar á elliheimilum ollu byltingu í lífi
gamla fólksins. Gömlu fólki á stofnunum finnst það oft vera
VÍI1 og Streita Almennt er talið að þeir sem þjást af streitu eigi
ekki að drekka áfengi. Þetta er þó ekki algild regla. Fátt er betra
til að slaka á en að drekka eitt til tvö vínglös. Það er nefnilega
staðreynd að vín hefur í hundruð ára verið notað til þess að slaka
á og láta sér líða vel. íjóðirnar sem búa í löndunum umhverfis
Miðjarðarhafið hafa frá örófi alda fengið sér glas af góðu víni í
lok dagsins og slakað á og einmitt í þessum löndum þjáist fólkið
í töluvert minna mæli af streitu en íbúar Norður-Evrópu og
Bandaríkjanna. Rannsókn norska sálfræðingsins Öyvind Stokke
sýndi að fólk sem fær sér eitt til tvö rauðvínsglös á dag fær
sjaldnar verki í bak, herðar, hnakka og handleggi en þeir
áhyggjufullu, það er að segja þeir áttu auðveldara með að losna
við streituverki í baki, handleggjum, öxlum og hnakka. Vín er
ekki aðeins næringarefni fyrir líkamann heldur einnig fyrir sál-
ina. Danski læknirinn Erik Olaf Hansen segir að léttvín sé gott
lyf við sheitu - í flestum tilvikum mun betra en pillur. Pillur fá
mann til að finnast að manni hljóti að líða illa. Glas af víni fær
mann til að finnast að manni hljóti að líða vel. Vín er hollt og nátt-
úruleg næring, pillur tengjast lyfseðlum og sjúkdómum.
Glas af vini Eins og áður hefur komið fram er hófleg vínn-
eysla á dag eitt til tvö glös af léttvíni. Vín geymist ágætlega þó
búið sé að taka tappann úr flöskunni. Best er að geyma flösk-
una í kæliskáp og það þarf að vera tappi í henni. Rauðvín
geymist ágætlega í 3 daga en hvítvín í 5 daga. Til að slaka
sem best á er gott að reyna aðeins á líkamann, fara í
Sigmar B. Hauksson mælir með eftirtöldum vinum:
Hvítvín
Beringer Fume Blanc 1.490 kr.
Hugel Riesling 1.360 kr.
Laforet Chardonnay 1.190 kr.
Torres Esmeralda 1.070 kr.
Hugel Gewurztraminer 1.070 kr.
Rauðvín
BeringerZinfandel 1.630 kr.
Fetzer Zinfandel 1.290 kr.
Weinert Malbec 1.530 kr.
160