Frjáls verslun - 01.08.2001, Blaðsíða 163
Hrafnkell Sigtryggsson er markaðsstjóri einstaklingsviðskipta hjá Islandsbanka. „ Um 40 teymi eru núna að verki innan bankans þar sem hátt
á annað hundrað manns vinna að einstökum aðgerðum sem allar stefna að því að bæta þjónustuna og auka arðsemi bankans. “
Hrafnkell Sigtryggsson, íslandsbanka
Efdr Vigdísi Stefánsdóttur
Hjá Islandsbanka urðu
fyrir nokkru, í kjölfar
stefnumótunar bankans,
breytingar á skipulagi mark-
aðs- og sölumála. Fram til
þess hafði hver viðskiptaein-
ing stýrt sínum markaðsmál-
um með áherslu á eigið þjón-
ustuframboð. Með nýrri
stefnu fyrirtækisins er stefnan
sett á að þjóna betur heildar-
þörfum viðskipavina og með
það að leiðarljósi var stofnað
nýtt svið, markaðs- og kynn-
ingarmál, sem sameinar allt
markaðsstarf fyrirtækisins.
Hrafnkell Sigtryggsson er þar
einn fjögurra markaðsstjóra
og hann sér um markaðsmál
einstaklinga.
„Störf mín hjá bankanum
hafa á skömmum tíma verið
afar fjölbreytt en ég hóf störf
hjá FBA í ársbyrjun 2000. í
upphafi var ég ráðinn mark-
aðsstjóri einkabankaþjónustu
bankans sem stefndi þá að
stofnun bankaþjónustu fyrir
einstaklinga. Við sameiningu
FBA og Islandsbanka breytt-
ust þau áform og þá tók ég
m.a. þátt í því að undirbúa
sameininguna markaðslega
og leiddi hönnun merkis,
kynningarefnis og auglýsinga
fyrir sameinaða fýrirtækið,"
segir Hrafnkell Sigtryggsson.
„Samhliða þessu vann ég
jafnframt í hópnum sem m.a.
kom á fót ergo.is, verðbréfa-
vef Íslandsbanka-FBA. Síð-
asta sumar kom það síðan í
minn hlut að leiða mótun
vörumerkjastefnu bankans
sem leiddi til samræmingar
og breytingar á nafni bank-
ans í Islandsbanka og kynn-
ingu á nýju merki og ásjónu,"
segir Hrafnkell.
„Starfið er afar skemmti-
legt og fjölbreytt þar sem ég
hef samskipti við mikinn flölda
fólks um þau mál sem eru efst
á baugi. Það gerir vinnuna
ekki síður skemmtilega núna
að í kjölfar stefhumótunarinn-
ar er mikill hugur í mönnum
og mikil vinna er nú lögð í að
vinna eftir þeim línum sem þar
voru lagðar. Sem dæmi má
nefna að ein 40 teymi eru nú
þegar að verki þar sem hátt á
annað hundrað manns vinna
að einstökum aðgerðum sem
allar stefna að því að bæta
þjónustuna við viðskiptavini
og auka arðsemi bankans. Eg
tel að við eigum eftir að sjá
marga góða hluti gerast hjá
okkur í framtíðinni."
Hrafnkell er fæddur og
uppalinn í vesturbænum í
Kópavogi þar sem hann ólst
upp við Klettaholtið og sláttinn
í kirkjuklukkunum í Kópa-
vogskirkju. Hann fór í gegnum
hefðbundið grunnskólanám
og tók eitt ár í MK en söðlaði
þá um og fór í Verzlunarskóla
Islands og lauk námi þaðan
1986. Hann er kvæntur Guð-
nýju Steinu Pétursdóttur og
eiga þau tvo drengi sem Hrafn-
kell kallar „orkubolta".
„Eg hélt til Bandaríkjanna
og í skólann Florida Institute
of Technology sem er í Melbo-
urne, litíum vinalegum bæ við
ströndina í miðju Flóridaríki.
Þar var ég í fimm ár samtals og
tók bæði B.S. og M.B A gráðu
í markaðsfræðum. Þarna var
með mér í skólanum sterkur
og skemmtilegur hópur fólks
og þar myndaðist fljótt mikil
stemmning og þetta varð afar
skemmtilegur tími. Þarna
sameinaðist á einstakan hátt
góð aðstaða til náms, afþrey-
ingar og fiölskyldulífs en á
þessum tíma eignuðumst við
einmitt eldri son okkar, Helga,
en hann á einmitt sínar fyrstu
minningar þaðan úr sólinni."
Eftir heimkomuna 1994
fór Hrafnkell að vinna hjá aug-
lýsingastofunni AUK og var
þar næstu fimm árin þar til
hann hóf störf hjá FBA. Þegar
talið berst að áhugamálunum
kemur í ljós að þau eru ansi
fjölbreytt. Flest snúa þau að
útivist og íþróttum á einn eða
annan veg. „Eg legg líka mik-
ið upp úr því að gera
skemmtilega hluti með íjöl-
skyldunni og við förum mikið
saman í útilegur á sumrin og í
ljöllin á veturna. Eldri strákur-
inn minn er ansi slyngur á
snjóbrettinu og hann hefur
lengi flotið með okkur „strák-
unum“ og við eigum báðir
góðar minningar eftir alls
kyns brölt á íjöllum. Þetta er
það sem gefur lífinu lit.“ BIl
163