Frjáls verslun - 01.08.2001, Qupperneq 56
Fjalar Kristjánsson, ráðgjafi þróunardeildar Pharmamed á Möltu, á
bak við hann situr Guðrún S. Eyjólfidóttir, forstöðumaður gœðasviðs
Delta, næstur Fjalari er svo Björn Aðalsteinsson, forstöðumaður
markaðssviðs Delta, og svo kemur Agúst Helgi Leósson,
forstöðumaður fiármálasviðs Delta. Til hægri má sjá Ottó Olafison,
stjórnarmann Delta.
Ægir Birgisson og Kristján Agústsson, starfimenn markaðsviðskiþta
hjá Islandsbanka, Þröstur Arnason, ráðgjafi hjá Athygli, Einar Ingi
Valdimarsson, starfimaður í eignastýringu hjá Kaupþingi, og Viggó
Einar Hilmarsson, forstöðumaður sjóðastýringar hjá Búnaðarbanka
Islands.
Karl Wernersson, athafnamaður og stjórnarmaður í Delta, Ingolf
Petersen, skrifitofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, og Stefán Jökull
Sveinsson, deildarstjóri skráningardeildar Delta.
Ekki er í bígerð hjá Delta að kaupa fleiri verksmiðjur,
stefnan er fremur að styrkja sölustarfsemina. Fyrir rúmum
tveimur árum átti sér stað ítarleg stefnumörkun á öllum svið-
um. „Við fylgjum þeirri stefnumörkun mjög stíft eftir og næst
á dagskrá hjá okkur er að klára að samþætta rekstur Pharma-
med og Delta. Þessar fáu vikur sem við höfum rekið fyrirtæk-
ið hefur gengið vel að skilgreina mjög nákvæmlega öll verk-
efni sem við viljum vinna að. Við buðum öllum lykilstjórnend-
um Pharmamed til íslands strax eftir að við tókum við og
erum að taka stöðuna aftur núna. Við munum eyða mikilli
orku í að samþætta starfsemina og höldum svo áfram að
styrkja sölunetið í Evrópu. Aðeins tæpir tveir mánuðir eru
síðan við stofnuðum söluskrifstofu á Mön, Medis Ltd. Við
höfum sett okkur það markmið að fara af stað í Þýskalandi á
næstu misserum, kanna síðan Norðurlönd og væntanlega þar
á eftir markaði í Austur-Evrópu. Samhliða þessu munum við
að sjálfsögðu vinna að því að komast inn á Bandaríkjamark-
að,“ segir hann.
Ymislegt kemur til greina hvað sölustarfsemina varðar, að
stofna söluskrifstofur eða kaupa sig inn í fyrirtæki. „Við erum
samt fyrst og fremst að skoða áframhaldandi samstarf með
þeim sem við höfum unnið með. Á Mön var t.d. umboðsaðili
sem hafði þjónað okkur lengi. Við stofnuðum fyrirtæki og
fengum hluta af starfsfólkinu. Þar erum við að byggja á
traustum grunni því að þetta er fólk sem þekkir okkar starf-
semi. Það getur verið að við myndum gera eitthvað svipað
með okkar umboðsaðila í Þýskalandi," heldur Róbert áfram.
Hlutabréfin hafa hældrað Þegar tölur ber á góma segir hann
markmiðið að ná 25 prósenta innri vexti hjá Delta á ári og tek-
ur þá fyrirtækjakaup ekki með í myndina en telur vöxtinn í
rauninni meiri. „Við settum okkur það markmið að ná 30 pró-
senta hagnaði fyrir vexti, afskriftir og skatta og erum líka tals-
vert yfir þeim væntingum. I ár ætlum við að skila 400 milljóna
króna hagnaði af starfseminni á Islandi. Við vorum á áætlun
fyrstu sex mánuði ársins þrátt fyrir 200 milljóna gengistap
sem að sjálfsögðu var ekki inni í áætlunum þannig að við
hefðum gert 200 milljónum króna betur ef það hefði ekki
komið til. Við höfum ekki gefið út áætlanir fyrir árið 2002 fyr-
ir Pharmamed en á haustmánuðum munum við klára að ijár-
magna kaupin á verksmiðjunni hér og munum þá að sjálf-
sögðu gefa út endanlegar rekstraráætlanir. Við höfum sett
okkur það markmið að fjármagna helminginn með skulda-
bréfum og helminginn með nýju hlutafé.“
- Hlutabréfamarkaðurinn hefur ekki verið neitt sérstaklega
líflegur á þessu ári. Ertu ekkert hræddur um að tímasetning-
in sé slæm?
„Nei. Markaðurinn hefur almennt verið dapur heima allt
þetta og síðasta ár en við höfum verið að skila góðum hagn-
aði. Við vorum með 2,1 milljarð í veltu á síðasta ári og skil-
uðum yfir 200 milljónum í hagnað, og erum að auka hagnað-
inn aftur verulega núna. Okkar hlutabréf hafa hækkað í takt
við það. Seint á haustmánuðum 1999 vorum við með gengi
12,50 en erum í kringum 30 núna þannig að Delta er eitt
þeirra fáu fyrirtækja sem hefur verið að auka verðmæti sitt
umtalsvert á þessu ári. Eg held að markaðurinn þurfi að
velja fyrirtækin betur og þá kannski færri félög fyrir vikið.
Delta er áhugavert fyrirtæki að fjárfesta í til lengri tíma litið
þannig að ég met svo stöðuna að það verði ekki vandamál
fyrir okkur að selja þennan hlut. Það hefur verið mikill áhugi
á bréfum Delta, stórir hlutir á fárra manna höndum og ég á
ekki von á að það breytist," segir hann. H3
56