Frjáls verslun - 01.08.2001, Side 65
FYRIRTÆKIN fl NETINU
Femin.is hittir í mark
Femin.is hefur verið á veraldarvefnum um nokkurt skeið og
virðist lofa góðu, a.m.k. ef marka má umtal kvenna og tíðar
heimsóknir inn á vefinn. Ungar konur virðast gera mikið af
því að skoða femin.is og er þar kannski einkum að þakka efn-
isvali, segja má að þarna sé á ferðinni nokkurs konar kvenna-
tímarit á borð við Nýtt líf, Cosmopolitan eða Damernas Várld á
vefnum. Femin.is er ijöbrejhilega upp byggður vefur, mark-
hópurinn er mjög greinilega einskorðaður við konur og efnis-
flokkarnir eru sjö eins og strax má sjá á forsíðunni; Þitt útlit,
Heilsa og megrun, Sjálfstæðar konur, Börn og unglingar, Gott
í gogginn, Sex (í merkingunni kynlíf) og Sambönd þó að
tvennt þetta síðastnefnda ætti þó kannski heima sarnan undir
einum hatti. í öllum tilfellum er boðið upp á að senda ráðgjöf-
um fyrirspurnir og loks er hægt að versla á vefnum.
Femin.is erheiðarleg tilraun til að reka vef, sem
eingöngu höfðar til kvenna, og virðistganga upp.
Femin.is er mjög vinsælt„kvennablað“á Netinu.
Vefurinn berþessþó merki að vera unninn af
áhugamönnum, sem ekki hafa mikil fjárráð, og
mætti hann vera faglegri í uppbyggingu, efnisvali og
-vinnslu ogfallegri í útliti. Þetta stendurþó
örugglega til bóta með tið og tíma.
Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
v"."" r « 'á ,£.£ t í i íí
Forsíða Femin.is. Eins ogsjá má leggurFem-
in.is hönd á þlóginn til að hjálþa konum að
hœtta að reykja.
híi | ...n ..a—————■aág
* ■ 2 J, & ■-■ ~ - ~ » ~ ~í.
Hœgt er að fara inn á vefinn og ná í uþþskrift
áður en komið er við í verslun á leið heim úr
vinnu.
Fjallað er um heilsu kvenna og sérstaklega
farið út í megrunarmál, sem getur verið við-
kvæmt og vandasamt umfjöllunarefni.
Fjallað er um börn og unglinga, uþþeldismál
og meðgöngu.
Sérstakur flipi fyrir soðninguna Undir
flipanum Þitt útlit má lesa greinar og við-
töl um hsku og útlit og undir Heilsa og
megrun er hægt að lesa um allt sem við-
kemur heilsu og megrun þó að þetta síð-
astnefnda geti verið viðkvæmt, sérstak-
lega þar sem um yngri konur og jafnvel
stelpur er að ræða. Sjálfstæðar konur eru
teknar sérstaklega fyrir en þar er fjallað
um konur sem hafa skarað fram úr á ein-
hveiju sviði, t.d. í atvinnulífi eða listum.
Þá er hægt að sjá umfjöllun um fj ármál og
markmiðasetningu. Fjallað er um sam-
bönd, ástamál, hjónaband, skilnaði, fram-
hjáhöld og fleira þess háttar sem er
einmitt daglegt brauð á síðum kvenna-
blaðanna og svo er sérstakur flipi fyrir
kynlíf. Fjallað er um uppeldismál og með-
göngu undir yfirskriftinni Börn og ung-
lingar og loks er það uppskriftavefurinn
sem einmitt hefur hitt svo vel í mark.
Þægilegur fyrir fólk á vinnumarkaði sem
þarf að rjúka heim úr vinnu seinnipartinn
og vill breyta til í stað þess að skella sömu
soðningunni enn einu sinni í pottinn.
Að mörgu leyti má segja að Femin.is
geri út á sjáflskoðun og formúlulausnir
til handa konum. Þannig er t.d. hægt að
svara könnunum og sjálfsprófum, konur
fá ráðleggingar um það hvernig eigi að hætta að reykja
o.s.frv.
Smám saman fæddist vefur Á Femin.is er hægt að lesa um
tilurð vefsins og forsvarsmenn hans en það voru þær Iris
Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri og Soffía Steingrímsdóttir
ritstjóri sem fengu hugmyndina haustið 1999. Þær höfðu verið
að vafra um Netið í leit að einhverju áhugaverðu og íslensku,
sem uppfyllti þarfir kvenna en fundu ekkert. I framhaldi af því
sýndu þær það frumkvæði að stofna Femin.is, hugmyndin
hljómaði óframkvæmanleg í fyrstu en viti menn, rekstraráætl-
un leit dagsins ljós og smám saman fæddist vefurinn. „Við höf-
nm mætt allsstaðar ótrúlegum áhuga og margir lagt hönd á
plóginn til að gera þetta að veruleika," segja þær á vefnum.SH
flhugaverðir vefir: uuuuuj.bfit.is - uuujuu.hloup.is - ujiuuj.hondovinnQ.is - umjuj.betrunorhusid.is - uuuuuj.diet.is - uuuuuu.hreyfing.is - uuuuuj.perlan.net
- ujuuuj.ost.is - uuujuu.creotine.is - uuuuuu.hress.is - Luujuj.eos.is - uuLuuj.studiohuldu.is - Luujuu.muscletech.is - Luujuj.islondio.is/~roektin/
65