Frjáls verslun - 01.08.2001, Page 78
SETIÐ FYRIR SVÚRUM
færi séu að skapast í ákveðnum fyrirtækjum. Þróun kostnaðar
hér innanlands á næstu misserum, t.d. hvort launasamningar
halda, hver þróun olíuverðs verður og hvort tekst að halda
verðbólgu í skefjum munu þó ráða úrslitum um útkomuna.“
5. Er óstæða til að óttast djúpa efnahagslægð í heiminum?
„Hér er um mikla breytingu að ræða í hagvaxtarspá og skipt-
ir miklu máli hvar þessi samdráttur kemur niður. Þá skapa
nýliðnir atburðir í Bandaríkjunum mikla óvissu. Það er hætt
við að sú efnahagslægð sem við vorum á leið í muni a.m.k.
verða dýpri en áður var áætlað."
6. Forgangsverkefni stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum
næstu tólf mánuðina? „Að endurmeta tekjuforsendur og
lækka kostnað."
7. Eru lánastofnanir of útlánaglaðar á uppgangstimum - en
skrúfa síðan of harkalega fyrir útíán á samdráttartímum?
„Það verður að hafa í huga að bankar leika ekki lengur hlut-
verk skömmtunarstofnana. Þeir eru þjónustufyrirtæki. Eftir-
spurn eftir lánum er meiri á uppgangstímum og því er eðli-
legt að bankar reyni að mæta óskum viðskiptavina sinna. Á
samdráttartímum er meiri þörf á aðgát við lánveitingar og því
tel ég að þessi gagnrýni sé að miklu leyti byggð á röngum for-
sendum."
8. Verða erlendir bankar stórir hluthafar í íslenskum lána-
stofnunum? „Það er ekki ólíklegt. Slíkt veltur þó talsvert á
því með hvaða hætti staðið verður að frekari þróun hagkerf-
isins og tengsla okkar við erlend efnahagssvæði. Islenska
krónan er mikill óvissuþáttur í augum erlendra fjárfesta og
veldur því að ijármagnsmarkaðurinn er óskilvirkari hér en
æskilegt er. Ef við opnum þennan markað betur og tökum t.d.
upp evru má vænta mikils áhuga erlendra ijárfesta."
9. Breytist gengi krónunnar verulega á næstu tólf mánuðum?
„Það fer að mestu eftir því hvernig okkur gengur í glímunni
við verðbólguna. Erum við dottin inn í víxlverkanir efnahags-
þátta eins og áður eða tekst okkur að ná tökum á þróuninni?“
- Guðmundur Hauksson. SH
1. Mest á óvart í viðskiptalífinu á árinu? „Veiking krón-
unnar varð talsvert meiri en búist var við og hafði það veru-
leg áhrif á verðbólguna og afkoma margra fýrirtækja endur-
speglaði þetta ástand. Einnig hefur það komið talsvert á óvart
að Seðlabankinn hafi ekki lækkað vexti sína í kjölfar merkja
um minni þenslu og með tilliti til verulegra vaxtalækkana er-
lendis m.a. í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin.“
2. Jákvæðustu tíðindin úr islensku viðskiptalífi á árinu?
„Sú útrás sem við höfum orðið vitni að hjá íslenskum fyrir-
tækjum erlendis verður að teljast rnjög jákvæð og styrkir
grundvöll þessara fýrirtækja og opnar frekar augu erlendra
ijárfesta íýrir íslenskum hlutabréfum sem mikil þörf er á. Það
eru einnig mjög jákvæð tíðindi að verðbólgan virðist vera að
minnka og sömuleiðis viðskiptahallinn, sem ætti að flýta fyrir
vaxtalækkun."
Sœvar Helgason, framkvœmdastjóri Islenskra verðbréfa: „Hug-
myndir um skatta- og vaxtalœkkanir víða um heim hjálpa til við að
jafnvægi náist í efnahagsumhverfi heimsins. “
»Ljóst er að lánastofnanir eiga stóran
þátt í þeirri auknu einkaneyslu og fjár-
festingargleði sem hefur átt sér stað á
undanförnum misserum.^ - Sævar Helgason.
3. Fylgjandi vaxtalækkun? „Skuldir iýrirtækja og einstak-
linga eru miklar og hafa aukist mikið undanfarið. Eg verð að
svara þessari spurningu játandi og tel að vextir verði að
lækka um 2-3% á næstu misserum til að létta á byrði þessara
aðila. Utlit er fyrir að verðbólgan fari minnkandi og einnig
framleiðsluspenna sú sem hefur átt sér stað í þjóðfélaginu og
gefur það tilefni til lækkunar vaxta.“
4. Er botninum náð á hlutabréfamarkaðnum? „Ljóst er að
kauptækifæri hafa myndast í allnokkrum fýrirtækjum á Is-
landi eftir miklar lækkanir. Fullyrðingar stjórnvalda um að
tekjuskattur fýrirtækja verði lækkaður umtalsvert og hugsan-
legar vaxtalækkanir hafa talsverð áhrif og ættu að hleypa lífi
í markaðinn. Litið til næstu 12 mánaða hef ég trú á því að
markaðurinn lifni talsvert."
5. Er ástæða til að óttast djúpa efhahagslægð í heiminum?
„Vísbendingar eru um samdrátt víðs vegar um heim og erfitt
að fullyrða hvað gerist í efnahagslífinu á næstunni í ljósi
hryðjuverkanna í Bandaríkjunum og þeirra afleiðinga sem
þau hafa í för með sér. Hugmyndir um skatta- og vaxtalækk-
anir víða um heim hjálpa þó til við að jafnvægi náist í efna-
hagsumhverfinu, og hef ég því trú á að það verði gert sem
þarf til að jafnvægi náist.“
6. Forgangsverkefni stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum
næstu tólf mánuðina? „Kostnaðarhagræðing verður að
mínu mati meginverkefni stjórnenda í íslenskum fýrirtækjum
á næstu mánuðum. Mörg fyrirtæki hafa vaxið gríðarlega
hratt undanfarin ár og líklegt að einhverjir vaxtaverkir hafi
fýlgt í kjölfarið. Áframhaldandi útrás og vöxtur verður þó að
sjálfsögðu áfram mikilvægt viðfangsefni stjórnenda.“
78