Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Side 21

Frjáls verslun - 01.07.2002, Side 21
Ari Bergmann Einarsson, formaður stjórnar Starfsmannasjóðs Spron ehf., en félagið hefur með fulltingi Kaupþings gert samn- inga við meirihluta stofnfjáreigenda um kaup á stofnfénu, og Sverrir Kristinsson í Eignamiðlun. kann að þýða að sparisjóðirnir verði smám saman undir í samkeppni við stærri einingar á fjármálamarkaðnum. En nóta bene; það er ekkert sjálfgefið að smáar einingar lifi ekki af. Mun Alþingi taka upp lögin um viðskiptabanka og sparisjóði og koma í veg fyrir að einkaaðilar geti eignast einstaka sparisjóði? Eða er sú stund að renna upp að i stað þess að fara í gegnum hávaðasama hlutafélaga- væðingu verði öllum sparisjóðum slitið og eigur þeirra seldar hæstbjóðanda inn í stórar fjármálasamsteypur sem hugsanlega eru að verða til á markaðnum? Pening- unum, sem fengjust fyrir slíkar sölur, yrði þá ráðstafað með þeim hætti sem segir í lögum um sparisjóðina. Stofnijáreigendur fengju sitt en stærsta hluta eigin ijár- ins, á annan tug milljarða króna, yrði varið til líknar- og menningarmála í byggðarlögum landsins. A þessum krossgötum um framtíð sparisjóðanna í landinu standa starfsmenn þeirra eðlilega svolítið ráð- villtir. Eitt er víst að sparisjóðirnir væru ekki svona verð- mætir nema vegna þess að þeir hafa verið vel reknir og eru með ánægða viðskipavini og öfluga starfsmenn og þvi verður að telja harla ólíklegt að fjármálasamsteypa, sem keypti þessar einingar, geri það í því skyni að leggja þær niður. Verðmæti sparisjóðanna liggur í viðskipta- vinum þeirra og starfsmönnunum.Slj Næstum 45 mínútna töf varð á að fundurinn gæti hafist vegna hins mikla mannfjölda sem sótti hann og mynduðust langar biðraðir fyrir utan fundarstaðinn, Grand Hótel Reykjavík. hvað stendur eftir?

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.