Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Síða 41

Frjáls verslun - 01.07.2002, Síða 41
Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Heims hf, og Páll Bragi Kristjónsson, starfandi stjórnarformaður Eddu, undirrita kauþsamninginn. Vigfús Ásgeirsson hjá Talnakönnun og Halldór Guðmundsson, forstjóri Eddu, fylgjast með. Mynd: Geir Olajsson upplýsingar fýrir ferðamenn. Svo vel vildi líka til að innandyra hjá Heimi hf. var töluvert pláss og því allar líkur á að hægt væri að taka inn í fyrirtækið það starfsfólk sem vinnur að útgáfu þessara tímarita án þess að bæta við húsnæði. Það var því margt sem mælti með kaupunum. Þegar Páll Bragi hafði sam- band var Benedikt á leið í stutta ferð til útlanda, en þeir Páll Bragi tóku upp snarpar viðræður þegar heim var komið nokkrum dögum seinna. „Við hittumst mest á kvöldin og utan alfaraleiðar þannig að það myndi ekki valda umtali og óróa ef samningar tækjust ekki,“ segir Benedikt. Ánægja með starfsmennína Samningaviðræður við Pál Braga og Halldór Guðmundsson, forstjóra Eddu, gengu hratt og vel fýrir sig. Benedikt segir að þeir hafi verið mjög vandaðir í samningum, allt sem þeir sögðu hefði staðið eins og stafur á bók. Þann 26. júní voru viðræðurnar svo langt komnar að hægt var að halda fund með starfsmönnum. Mánuði síðar var tíma- ritadeildin flutt í húsnæði Heims hf. og voru nýju starfs- mennirnir, um 10 talsins, komnir á sinn stað og búnir að koma sér fýrir skömmu síðar. Útgáfustarfsemin fór strax í fullan gang en rétt er að taka fram að kaupin náðu einungis til tíma- ritanna, ekki bókaútgáfu Iceland Review. Fyrsta tölublað Atl- antica hjá nýjum útgefanda kom út í lok ágúst og fýrsta tölu- blað Iceland Business, sem kemur út einu til flórum sinnum á ári í kringum sýningar og ráðstefnur, er nýkomið út í tengslum við sjávarútvegssýninguna. Með þessum kaupum næst töluverð samnýting á húsnæði, dreifingu og lager og vinnu starfsmanna, t.d. í ljósmyndun, um- broti, sölumennsku og hugsanlega blaðamennsku. „Nýju tíma- ritin eru vönduð, eins og við höfum kappkostað um alla útgáfu Heims, og starfsmennirnir eru færir fagmenn, hvort sem það eru blaðamenn, ljósmyndarar eða umbrotsmenn auk þess sem svona útgáfa byggir alltaf á duglegu sölufólki. Við erum mjög ánægð með kynnin eftir fýrsta mánuðinn,“ segir Benedikt. Velta Heims hf. eykst um nálægt 100 milljónir króna við þessa breytingu og verður þá um 250 milljónir. Það er í samræmi við langtímaáætlun um að auka umsvif iýrirtækisins. Benedikt segir: „Hér erum við ekki að tjalda til einnar nætur heldur ætlum við okkur að halda útgáfunni áfram til frambúðar." Œj Frumkvöðullinn Tímaritið Iceland Review var stofnað af Haraldi J. Hamar. Útgáfan hófst árið 1963 og rak Haraldur hana fram til 1999 að hún sameinaðist Vöku-Helgafelli. Til gamans má geta þess að Haraldur spurðist fýrir hjá Talnakönnun, móðurfélagi Heims hf., árið 1998 hvort áhugi væri á kaupum. Sá áhugi var til staðar en ekkert meira varð úr því að sinni þegar Iceland Review sameinaðist Vöku-Helgafelli. Iceland Review - tímarit og bókaútgáfa - fýlgdi síðan Vöku-Helgafelli inn í Eddu - miðlun og útgáfu fýrir tveimur árum. Iceland Review er nú komið í eigu Heims hf. og standa vonir til að þar með komist aftur á stöðugleiki í eignarhaldi og jafnvægi í útgáfustarfseminni. Iceland Review var og er ein- stæð landkynning fýrir Islendinga á erlendum vettvangi. Tímaritið er selt í áskrift til áskrifenda sem búsettir eru í rúm- lega 100 löndum. Með frumkvöðlastarfi sínu hefur Haraldur búið til mjög góða landkynningu á íslandi. [H Iceland Review var stofnað afHaraldi J. Hamar sem var útgefandi frá árinu 1963 fram til ársins 1999 að fyrirtækið sameinaðist Vöku- Helgafelli. 41
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.