Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2002, Side 73

Frjáls verslun - 01.07.2002, Side 73
Framboð í dag Forstða íslandsmarkaðar. Starfsemi fyrirtœkisins á Net- inu lofar góðu ef framtíðarfyrirœtlanir verða að veru- leika. ' t d 3 E* t* r***. lo* b* > . ■,*>■■... ja 'á t Framboð á fltkmðrkuðum þann 30.08.02 SIÓ: S ■ Slægt (Gutted) Ó - Ó«l»gt (Ungutted) 30.080209:40 - 4 Framboð áfiski - frekarsnauð upþsetning en upþlýsingar og framsetning hafa hagnýtt gildi. Kauphöll með fisk? Gríðarleg uppbygging á sér stað hjá Islands- markaði á Netinu. Fyrirtækið sér daglega um Jjarskiptauppboð með fisk og greiðslumiðlun, / p.e. innheimtir og greiðir seljendum. A næsta ári er stefnt að pví að viðskiptin fari 100% fram með rafrænum hætti. Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Fpirhugað er að koma á fót 100% rafrænum viðskiptum á Netinu, nokkurs konar kauphöll með fisk í gegnum www.islmark.is, næsta vor eða sumar, en í dag fara við- skiptin þannig fram að fiskkaupendur geta farið inn á vefinn, skoðað þar framboðið og keypt síðan fisk á flarskiptauppboði íslandsmarkaðar. íslandsmarkaður innheimtir síðan með því að senda reikning til viðkomandi kaupenda og greiðir seljendum. íslandsmarkaður er því í dag margslungið fyrirtæki, miðlæg upp- lýsingaveita og tölvufyrirtæki sem þjónar fiskmörkuðunum í landinu með svipuðum hætti og Reiknistofa bankanna þjónar bankakerfinu um leið og íslandsmarkaður er nokkurs konar greiðslumiðlun. Þegar skrefið hefur verið stigið til fulls á næsta ári og rafrænum viðskiptaháttum komið á má kannski líkja íslandsmarkaði við kauphöll með fisk. Þrír fiskmarkaðir eiga 83% hlutafiár í fyrirtækinu. Fiskmarkað- ur Suðurnesja á meirihluta eða 51%, Fiskmarkaður íslands á 25% og Fiskmarkaður Vestmannaeyja á 7%. Að auki á Burðarás 7% og franskt fyrirtæki 10%. Um 15 fiskmarkaðir eru sítengdir íslands- markaði og sjá um að mata daglega inn í kerfið öllum nýjustu upplýsingum varðandi framboð á fiski. Um 200 fiskkaupendur eru skráðir inn á vefinn og hafa þar einkaaðgang að ýmsum tölfræðilegum upplýsingum sem geta nýst þeim fyrir kaupin. „Viðskiptavinir og fiskkaupendur geta tengst inn á vefinn með einkaaðgangi, svipað og í einkabanka, og þar geta þeir nálgast ýmsar tölfræðiupplýsingar sem snerta þá og þeirra viðskipti. Þeir geta t.d. prentað út lista yfir öll sín viðskipti yfir ákveðið tímabil, séð hvaða fiskur er til sölu þann daginn og hvar hann er á landinu. Þeir geta líka séð yfirUtyfir reikninga og greiðslur, flutn- ing á fiski, afgreiðslu- og þjónustugjöld. Þeir geta Uka fylgst grannt með stöðunni á bankaábyrgð þeirri sem þeir leggja inn til tryggingar á fiskkaupum. Þeir fá ekki að kaupa fisk fyrir meira en þvi sem hún nemur og ef þeir fufinýta hana þá þurfa þeir að leggja inn peninga hjá okkur,“ segir Ingvar Örn Guðjónsson, framkvæmdastjóri íslandsmarkaðar. Vefur Islandsmarkaðar er tíltölulega ungur þó að á bak við hann sé eldra innranet, sem almenningur hefur ekki aðgang að. Hann hefúr aðeins verið á veraldarvefnum í eitt ár og ber þess svoUtil merki, er svo sem ekkert augnayndi og greinilegt að lítill metnaður hefur verið lagður í grafískt útUt. Eftir því sem best verður séð stendur vefurinn þó fyUilega fyrir sínu hvað upplýs- ingar og hagnýtt gildi varðar. Og það er kannski það sem mestu máfi skiptir í þessari atvinnugrein. Það sakar þó varla að lappa uppáútUtið.HIl '3 fs \ # J J J & Mrf SB. Pcrt ÍM W >*. Sala á fiskmöriojðum þann 29.08.02 SIÓ: S = Slægt (Gutted) Ó = Óslægt (Ungutted) Currency rate: $1 = 90,00 ISK 29.08.02 17:02 GULLKARTI mr. UHITING REDFISH/OCEAN P i’fr1 Eins og sjá má á þessum myndum er vejurinn ekkert augnayndi en sjálfsagt ágætis lesning fyrirþá sem þurfa. VIÐSKIPTI ■ TÖLVUR ■ FERÐALÖG ■ VÍN - WWW.HEIMUR.IS

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.