Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2004, Side 88

Frjáls verslun - 01.02.2004, Side 88
skil þegar um atvinnutæki eða -bif- reið er að ræða. Fólksbifreiðar þurfa að vera á rauðum númerum til að þessar reglur gildi. Lýsing er eigandi tækisins/bifreiðarinnar en leigutaki er skráður sem umráða- maður og eignast tækið/bifreiðina í lok leigutímans. Magnús Þór Sandholt, ráðgjafi hjá Lýsingu. Mynd: Geir Ólafsson Lýsing Rekstrarleiga er hagkvæmur kostur Efdr Vigdisi Stefánsdóttur Hér á landi eru þrjú fyrirtæki á eignaleigumarkaði og öll eru þau í eigu bankanna. Lýsing er eitt þeirra og er í eigu KB banka en fyrirtækið var stofnað af Búnaðarbanka Islands hf., Landsbanka Islands hf., Vátryggingafélagi íslands hf. og Sjóvá-Almennum tryggingum hf. árið 1986. Heiti fyrirtækisins, Lýsing, kemur frá enska heitinu „leasing“ sem merkir eignarleiga og vísar í starfsemina. „Utlánasvið Lýsingar skiptist í tvennt, fjármögnun atvinnu- tækja og fjármögnun bifreiða,“ segir Magnús Þór Sandholt, ráðgjafi í bílaijármögnun. „Fjármögnun atvinnutækja er sýnu stærri deild, en hin fer hratt vaxandi, enda sífellt fleiri að átta sig á þægindum þess að geta skipt um bifreið með reglulegu millibili án þess að festa mikið fé í þeim.“ Fjármögnunarleiga/kaupleiga og rekstrarleiga Boðið er upp á nokkrar leiðir í fjármögnun hjá Lýsingu. „Það má segja að við bjóðum upp á sex vörutegundir," segir Magnús. „Þijár þeirra henta fyrirtækjum mjög vel, flármögnunarleiga, kaupleiga og rekstrarleiga, en hinar þtjár henta einstaklingum mjög vel. Þær eru bílalán, bílasamningur og einkaleiga með kauprétti." Fjármögnunarleiga hentar fyrirtækjum mjög vel, að sögn Magnúsar, þar sem rekstraraðilar geta nýtt sér gjaldfærslu á leigugreiðslum til lækkunar á skatti, hvort sem um er að ræða bifreiðar eða önnur atvinnutæki. Á leigugreiðslur leggst virðis- aukaskattur sem endurgreiddur er við næstu virðisaukaskatt- Ymis þjónusta fylgir Rekstrar- leiga/einkaleiga hentar hins vegar bæði fyrirtækjum og einstakl- ingum. Rekstrarleiga er oft notað sem samheiti fyrir rekstrarleigu og einkaleigu, en munurinn er eins og áður hefur komið fram sá að rekstrarleiga er fyrir rekstraraðila og einkaleiga fyrir einstaklinga. „Það fylgja því margir kostir að vera með bíl á rekstrarleigu,“ segir Magnús. ,/lðeins er greidd ákveðin upphæð á mánuði og inni í henni er umsamin þjónusta út leigutímann, s.s. auka dekkja- gangur, dekkjaskipti vor og haust, þjónustuskoðun, smurning og olíu- skipti. Lýsing er skráður eigandi biffeiðar, umboðið veitir þjónustu og kallar þifreiðina reglulega til skoðunar og þannig er vandlega fylgst með bílnum allan tímann sem viðkomandi er með bílinn á leigu. Leigan er tímabundin, tekur yfir 1,2 eða 3 ár eftir atvikum og samningum. Eftir að leigutíma lýkur skilar leigutaki bílnum til umboðs sem kaupir hann af Lýsingu á fyrir- fram ákveðnu verði. Við skil getur leigutaki fengið sér annan samning/bíl og ekið um á nýjum eða nýlegum bíl af þeirri tegund sem viðkomandi óskar. Ekki þarf að leggja út stórar upphæðir við upphaf „bílakaupanna" og engin áhætta er tekin við að selja bílinn þegar þörf er á endurnýjun." Upphaflega fyrir fyrirtækin Farið var af stað með rekstrarleigu í upphafi til að mæta þörf sem var að myndast á markaðnum. Rekstrarleiga var upphaflega sett af stað sem nýr valkostur i tjármögnun til stórra fyrirtækja sem ráku stóran bílaflota en gátu illa séð af fjármagni til að kaupa þá. „Betri yfirsýn á rekstrarkostnað fyrirtækis fæst þegar hver bifreið ber ákveðið leigugjald á mánuði og þetta auðveldar einnig til mikilla muna alla áætlanagerð fyrirtækisins," segir Magnús. „Þetta gerir reksturinn einfaldari og þægilegri. Það þarf þó ekki stórt fyrirtæki til að rekstrarleiga borgi sig og nærtækt dæmi eru einyrkjar sem stofnað hafa ehf.-kennitölur fyrir rekstur sinn, þeir þurfa atvinnutæki og/eða bíl en hafa ef til vill ekki mikið fé aflögu til að leggja í þess háttar við stofnun. Þeim hentar því vel að taka tækin/bílinn á rekstrarleigu og nýta féð í reksturinn." 33 88

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.