Frjáls verslun - 01.02.2004, Qupperneq 95
I
Vox-Skólinn Vínseðill Vox hefur ekki
síður vakið athygli en matseðillinn. Vínseð-
illinn er haganlega saman settur og flöl-
breyttur. Erlendir veitingamenn, eins og Lea
Linster, hafa haft orð á því hvað vínseðill Vox
gefi flölbreytta mynd af vínheiminum.
Veitingastjóri Vox og þjónar hafa boðið
gestunum að velja vín með matnum. Arstíða-
matseðillinn er einkar vinsæll og ef gestirnir
vilja, velja þjónarnir passandi vín með
hveijum rétti. Þetta er áhugavert og fræðandi
fyrir gestina. Þeir fá þvi glas af vini með rétt-
inum sem þeir alla jafna hefðu ekki pantað
með matnum, nefna mætti glas af góðu
kampavíni eða Sauternes frá Frakklandi.
Heimsókn á Vox er því fræðandi fyrir
gestina og þá einkum sælkera. Þeir eiga þess
kost að kynnast nýjum, spennandi vínteg-
undum og fá hugmyndir að gómsætum
réttum.
Ivínseðillinn Veitingastjóri á Vox er Gissur
Kristinsson, einn helsti vínfræðingur lands-
ins. Gissur hefur kennt við Hótel- og veit-
ingaskólann og haldið námskeið og fyrir-
lestra um vín. Hann verður hér fyrir svörum.
„Hver eru helstu einkenni vínseðils
Vox?“
„Þetta er vínseðill sem er svipaður og á
úrvalsveitingahúsum Evrópu, nema þá
þeirra frönsku, en á þeim eru 90% vínanna
frönsk. Við reynum að hafa gott úrval gæðavíns í heiminum.
Annað sem við leggjum áherslu á er að hafa mikið og gott
úrval af kampavíni. Við erum án efa með mesta úrvalið á
Islandi hér á Vox, eða 60 tegundir. Þá erum við með mjög gott
úrval af spænskum vínum. Vínþjónn spænska vínframleið-
andans Torres telur að við séum með hvað besta spænska
'únseðilinn utan Spánar.“
„Hvers vegna leggið þið svona mikla áherslu á spönsk
vín?“
„Þau eru svo ijölbreytt, eru góð borðvín og yfirleitt á góðu
verði."
„Hvernig kynnið þið vínið fyrir gestum?"
„Við erum ekki með starfandi vínþjóna, við efnum hins
vegar til vínnámskeiða fyrir þjónana okkar. Hugmyndin er sú
nð allir þjónarnir á Vox eiga að vera vínþjónar.“
Spánn Meðal spennandi vínsvæða á Spáni eru Castilla la
Mancha - Ribera del Duero. Þaðan eru öflug vín og ijölbreytt,
segir Gissur. Teofilo Reyes Ribera del Duero Ciranza á kr.
2-390 er frábært vín sem hefur mikinn karakter. Þetta vín
jafnast vel á við frönsk gæðavín, en það er hins vegar á betra
verði. Rioja vín hafa náð miklum vinsældum, en þau eru orðin
úýr. Víða annars staðar á Spáni má finna frábær vín og á góðu
verði. Þar á meðal er Finca Antigua Cabernet á kr. 1.220. Það
VÍNIJMFJÚLLUN SIGMARS B.
verður hins vegar að segjast eins og er að enn er lítið af
spennandi hvítvíni frá Spáni. Torres framleiðir þó vandað
hvítvín sem stendur fyrir sínu. Nefna mætti Torres Gran Vina
Sol Cardonnay á kr. 1.290. Þetta er öflugt vín, þurrt en með
góðum ávaxtakeim.
ÁStralía Ástralía er gríðarlega spennandi vínland. Veðurfar
er þar einstaklega heppilegt til vínræktar. Þá eru í röðum
vínbændur, eldhugar eins og Wolf Blass og Peter Lehmann.
Wolf Blass var Austur-Þjóðverji sem hafði numið víngerð í
heimalandi sínu. Hann flúði svo til Bretlands og gerðist
vínsali. Þar kynntist hann áströlsku víni. Blass fluttist til
Ástralíu og hóf vínrækt. Fyrirtækið varð svo með tímanum
stórveldi sem bandaríska fyrirtækið Beringer hefur nú keypt.
Meðal frábærra ástralskra víntegunda mætti nefna
Rosemount Traditional, kr. 1.890, og Rosemount GSM, kr.
1.990. Þetta eru mögnuð vín, dimmrauð með margslungnu
bragði. Einnig mætti nefna Wolf Blass Presidents Selection
Shiraz, kr. 2.100. Þetta er ekta Ástrali, alveg magnaður,
frábært villibráðarvín. En hvað um hvítvínin?
„Ég er hrifnastur af áströlsku Riesling-vínunum, þau
minna á Riesling-vínin frá Alsace," segir Gissur og bætir við:
„Wolf Blass Gold Label Riesling, kr. 1.390, er góður fulltrúi
áströlsku Riesling-vínanna.“
Austur-Evrópa Gissur telur að í framtíðinni muni næstu
ævintýri í vínheiminum eiga sér stað í Austur-Evrópu. „Þar
eru langar og miklar hefðir í vínrækt og góð náttúruleg skil-
yrði. Hins vegar hefur vantað tæknikunnáttu og fjármagn,"
segir Gissur Kristinsson, veitingastjóri á Vox, að lokum. 33
Gissur Kristinsson og Sigmar B. Hauksson mæla með
eftirtöldum víntegundum:
Hvítvín:
Torres Gran Vina Sol Chardonnay kr. 1.290-
Wolf Blass Gold Label Riesling kr. 1.390.-
Rauðvín:
Teofilo Reyes Ribera del Duero Crianza kr. 2.390 -
Finca Antigua Cabernet kr. 1.220 -
RosemountTraditional kr. 1.890 -
Rosemount GSM kr. 1.990.-
Wolf Blass Presidente Selection Shiraz kr. 2.100 -
95