Morgunn - 01.06.1969, Blaðsíða 57
MORGUNN 51
er standberg, venjulega kallað Bergið. Það er áframhald-
andi klettabelti út undir næsta þorp, Leiruna.
Mér fannst ég nú fara meðfram Berginu og gæta að, hvort
ég sæi ekki bátinn; því ferðalagi gæti ég helzt líkt við flug.
Þegar ég er komin út undir Leiru, sé ég bátinn koma á móti
mér á fullri ferð. Mér fannst ég fara út í bátinn og gæta að,
hvort nokkuð væri að mönnunum. Ekki varð ég þess vör,
að þar væri neitt óvenjulegt; ég sá, að öllum mönnunum leið
vel. Nú fór ég ákaflega glöð heim aftur; það var ég komin á
svipstundu; ég gekk að rúminu, og nú langaði mig ákaflega
til að kaila á telpuna og segja henni að pabbi hennar kæmi
bráðum. En þá komu verstu örðugleikarnir: ég vissi ekki,
hvernig ég ætti að segja henni það, því að mér fannst líkam-
inn, sem í rúminu lá, svo fjarskyldur mér, að mér þótti það
ekki árennilegt að eiga að nota hann til þess. Samt reyndi
ég það, en stóð þó utan við. Eftir nokkrar mínútur tókst mér
að láta líkamann tala; ég kallaði á telpuna; hún kom, og ég
fann, að hún varð hrædd við mig. Ég sagði henni, að hún
skyldi ekki vera neitt hrædd, því að pabbi hennar kæmi eftir
stutta stund. Ég man, að mér þótti þetta afskapleg áreynsla,
og ég fann, að ég mundi vera ólík sjálfri mér.
Þegar þessu var lokið, fór ég að njóta lífsins og frelsisins.
Ég fann, að ég var í undursamlegum heimi, og þeim áhrif-
um, sem ég varð fyrir, get ég alls ekki lýst. Ekki man ég
eftir, að ég sæi neinar verur kringum mig þá, en mér fannst
ég finna til þess, að ég væri umkringd af dásamlegum kær-
leika frá ósýnilegum mætti.
Allt í einu fann ég, að ég var komin inn í höfuðið, fann
ekkert nema það; en smátt og smátt fór tilfinningin að fær-
ast niður í líkamann, síðast í fæturna, og þá var ég eins og
ég hafði áður verið.
Nú gat ég talað, og það fyrsta, sem ég gjörði, var að kalla
á telpuna og spyrja hana, hvort ég hefði sagt nokkuð. Jú, ég
hafði sagt í óþekkjanlegum málrómi, að hún skyldi ekki
vera hrædd, pabbi hennar kæmi rétt strax. Hún sagðist hafa
orðið hrædd við mig, henni fundizt eins og þarna lægi lík;