Morgunn - 01.06.1979, Blaðsíða 7
HAFSTEINN BJÖRNSSON, MIÐILL:
SÝNIR I KATAKOMBUNUM
I RÓMABORG
Fyrir nokkru fékk ég senda góða gjöf frá vini minum Olfari
Ragnarssyni, lækni, þeim ágæta listamanni. En það var handrit af
frásögn Hafsteins Björnssonar miðils af för sinni til Rómar þann
27. apríl 1955. Það sem gefur þessari persónulegu frásögn Haf-
steins alveg sérstakt gildi er það, að þegar hann var að skoða
Katakomburnar i Rómaborg, þá brutust hinir miklu sálrænu hæfi-
leikar hans fram og vitund hans hvarf aftur i timann. Hann sá
greinilega fyrir sér guðsþjónustu kristna safnaðarins i þessari forn-
fra;gu borg á þvi timabili, þegar það var lifshætta þar að vera
kristinn maður. Sumt sálrænt fólk hefur þann undarlega hæfileika
að geta, þegar viss skilyrði eru fyrir hendi, horfið aftur í tímann
og séð löngu liðna atburði fyrir innri augum, eins og þeir væru
að gerast i nútiðinni. Ég mun ekki ræða nánar þennan hæfileika
hér að þessu sinni. Það verður að nægja að skýra frá því, að Haf-
steinn Björnsson hafði meðal annarra þennan undarlega dulræna
hæfileika og segir okkur í þessari ferðaminningu með hverjum
hætti það gerðist í Rómaborg. - Æ. R. K.
Ég mun vart hafa veriS kominn af barnsaldri, þegar ég fór
að stauta mig fram úr bókum. Að vísu var ekki um auðugan
garð að gresja i þeim efnum þar sem ég var alinn upp, en þó
tíndist ýmislegt til, svo sem þjóðsögur og ævintýri og rímur,
og svo siðast en ekki síst Islendingasögurnar. Þær sögðu frá
mönnum og málefnum síns tíma. Þær sögðu mér frá útlönd-
um á svo margvislegan og heillandi hátt, að þær urðu mér
þrotlaus uppspretta hugmynda og spurninga um þær per-
sónur og þau sögusvið, sem sagt var frá. Löndin sem ritað
var um, hvort sem það voru Norðurlönd eða Suðurlönd, og
þó einkum Suðurlönd og þær sögur sem greindu frá því, þeg-