Morgunn - 01.06.1979, Blaðsíða 56
54
MORGUNN
fslenski dulsál-
fræðingurinn
og mikilvægt
starf hans.
Ég tel að stigið hafi verið mikið happaspor
með ráðningu dr. Erlends Haraldssonar sem
dulsálfræðings við Háskóla íslands. Hann
hefur nú gefið út fyrsta rit sitt um kannanir
á sálrænum hæfileikum Islendinga með bók-
inni ÞESSA HEIMS OG ANNARS. Ég hygg að fyrir islensk-
um spiritistum hafi aldrei vakað neitt annað en leit að sann-
leikanum. Þess vegna hljóla þeir að fagna því að lærður dul-
sálfræðingur fær til þess aðstöðu hér á landi að gera hlul-
lausar og vísindalegar rannsóknir á sálrænu fólki. Það sem
fram kemur við slíkar rannsóknir hlýtur að vera til frekari
stuðnings þeirri skoðun, að látnir lifi. Enda hefur raunin orð-
ið sú. Morgunn telur þvi framannefnda bók afar mikilvæga
og hvetur alla sem áhuga hafa á andlegum málum að kaupa
hana og lesa spjaldanna á milli. Hún er í senn ennþá einstæð
meðal íslenskra bóka og auk þess stórfróðleg. Að öðru leyti
vil ég vísa til þess sem um hana er sagt i þessu hefti í kafl-
anum um bækur, en þar er henni gerð ítarlegri skil.
Sjóður til
rannsókna í
dulsálfræði.
Hins vegar vil ég benda hér á það, að það
er siðferðileg skylda okkar að mínu mati að
styðja þessar rannsóknir af alefli eftir þvi
sem okkur er unnt. Á öðrum stað í þessu
hefti er gerð nánari grein fyrir þessum mikilvæga sjóði í til-
kynningu frá stjórn hans. En Morgunn hvetur góða menn
til þess að veita honum allan þann stuðning sem mögulegt: er,
þvi hann er undirstaða rannsókna, sem teljast verða einhverj-
ar hinar mikilvægustu í andlegum málum á Islandi á 20. öld.
Gjöf til
S. R. F. 1.
I janúarmánuði sl. barst Sálarrannsóknafé-
lagi Islands eftirfarandi hréf frá Manitoha i
Kanada:
„Hér með sendi ég undirritaður, Gísli Emilsson, Ashern,
Manitoha, Sálarrannsóknafélagi Islands peningagjöf sam-
kvæmt meðfylgjandi ávisun, til minningar um konu mína,