Morgunn - 01.06.1979, Blaðsíða 52
50
MORGUNN
á Akureyri. Þegar blaðamaður Dags á Akureyri spurði hann
að því hvort þetta væri rétt, svaraði Martin Rerkofsky:
„Ég veit ekki hvort ég get greint frá athurðinum í fáum
orðum, en svo mikið er víst, að hann gjörbreytti lífi mínu t
sem tónlistarmanns. Hitt er svo aftur annað mál, að það eru
viss utanaðkomandi áhrif sem geta verið tónlistarmanni ti!
mikillar hjálpar og það fann ég fyrir mörgum árum. Það er
erfitt að fá nokkurn til að tala um slíkt og ég minnist þess
naumast að hafa hitt mann eða konu i mínum hópi, sem vill
tala um dulræna reynslu sem viðkomandi hefur orðið fyrir.
Fyrir um það bil fjórum árum las ég bók, sem hafði ákaf-
lega mikil áhrif á mig. Flún er eftir enskan blaðamann. Meiri
bluti bókarinnar byggðist á viðtali við tónskáldið Johannes
Brahms. M. a. spurði höfundurinn hvar sá fyrrnefndi hefði
fengið innblástur sinn og hver væri lykillinn að leyndarmáli
hans sem tónlistarmanns. Ég varð yfir mig hrifinn af viðtal-
inu, sem fjallaði meðal annars um trúmál, og þar á meðal
kraftaverkasögur Ribliunnar. Á sama hátt: og kraftaverk Ribl-
íunnar gerðust ekki fyrir tilverknað mannanna, taldi tónlist-
armaðurinn að innblásturinn ka:mi ekki frá honum sjálfum,
heldur frá öflum, sem væru ofar mannlegum skilningi. Lestur
bókarinnar varð til þess að ég óskaði þess sterkt, að ég yrði
sjálfur fyrir einhverjum áhrifum, sem upphefðu mig, þegar
ég væri að leika á pianóið.
En nú víkur sögunni til heimsóknar minnar fyrir um það
bil ári, en þá átti ég þess kost að heimsækja herbergi tengda-
föður mins heitins. Það var búið að segja mér, að í þessu
herbergi yrðu menn fyrir sterkum straumum og krafti, sem
við mennirnir skiljum svo litið. Eftir að hafa dvalið i her-
berginu skamma stund, fann ég til sömu áhrifa og höfðu gagn-
tekið mig, þegar ég l;is bókina, sem ég minntist á áðan.
Þegar ég fór inn í herbergið vissi ég ekki á hverju ég gæti
átt von, en gerði mér þó í hugarlund, að það gæti ekki likst
neinu því, sem ég hefði skynjað áður. Það reyndist rétt, því
tilfinningin var ólýsanleg. Á þessu augnabliki varð ég viss
um að þarna hefði ég fundið það sem ég var að ieita að.