Morgunn - 01.06.1979, Blaðsíða 64
62
MORGUNN
Sigurbjörn Einarsson, biskup:
TRÚARBRÖGÐ MANNKYNS.
tJtg. Setberg. önnur útg. 1978.
Einhvers staðar las ég að til væri í New York athyglisvert
hús, sem ekki ætti sinn líka i ]>vi landi, Bandarikjunum. Hús-
inu var svo lýst, að það hefði sjö hliðar. Á hverri þessara sjö
hliða eru dyr inn i þetta sama hús. Hliðarnar tákna sjö
helstu trúarbrögð heimsins. Húsið er með þessum hætti tákn-
rænt fyrir afar mikilvæga staðreynd: öll trúarbrögð eru i
eðh sínu leit að sama marki, Guði. öll mætast bau í miðju
þessa húss. Hér er einungis um mismunandi inngang að ra'ða.
Mismunandi menning og hefðir hinna ýmsu þjóða leiða eðli-
lega til þess, að trúarbrögð þeirra hljóta á ýmsan veg að hafa
mismunandi form. Trúarbragðastyrjaldir eru því og hafa
jafnan verið hinn hrottalegasti misskilningur. En að baki
þeirra hafa jafnan legið pólitisk átök um völd og ga>ði þess-
arar veraldar, þótt trúuðu, fávisu fólki hafi verið att út i þær
á fölskum forsendum.
Við þurfum því að efla með okkur umburðarlyndi og skiln-
ing á mismunandi skoðunum í bessum efnum sem öðrum. Og
verði okkur ljóst að markmiðið er í rauninni eitt og hið
sama, ætli það að vera okkur hvatning. Þótt maður sem litt
hefur kynnt sér önnur trúarbrögð sé sannfærður um að sin
trú sé best og fullkomnust, gefur það honum enga heimild
til þess að fordæma aðra fyrir að hafa aðrar skoðanir.
Flestir taka þá trú sem tiðkast i föðurlandi þeirra og kynn-
ast aldrei neinu öðru að ráði. Aðrir hafa enga heimild til
þess að ráðast á þetta fólk fyrir skoðanir sínar. Okkur ber að
bera fulla virðingu fyrir trúarskoðunum og athöfnum hvers
annars.
Engin trúarbrögð hafa innan eigin vébanda verið jafn
hatrammlega klofin og kristin trú. Þarf ekki að nefna nema
eitt dæmi þess. Á þessari öld gerðist það i fyrsta skipti í