Morgunn - 01.06.1979, Blaðsíða 10
8
MORGUNN
eins borgarhlutans. Annars vegar við hann borgin, hins vegar
tún og garðar, minnismerki yfir Margrétu drottningu og fjár-
hirðar með hjarðir sinar. Kom mér það furðulega fyrir sjónir,
svo að segja inni í miðri heimsborginni. Þessi vegur eða
stræti heitir Via Appia Anbila. En fyrir enda þessarar götu
eru Katakomburnar, þetta undarlega völundarhús, gert af
manna höndum.
Mig minnir að það hafi verið 27. april, þegar við vorum
stödd þarna í um 30 stiga hita og glampandi sólskini. f kring-
um þetta svæði voru hér og þar hús og kom ég inn i eitt þeirra.
Þar voru fyrir klerkar nokkrir. Minjagripasölur eru þarna
og þess háttar. Leiðsögumenn voru tveir, að mig minnir, ann-
ar fyrir hópnum en hinn fyrir á staðnum.
Nú er farið með okkur niður tröppur allmiklar. Þær lágu
niður í jörðina. Og þau áhrif sem mættu manni við það að
koma úr glampandi sólskini og þarna niður, þau voru harla
undarleg. Það er eins og komi á móti manni súgur og lykt frá
löngu liðnum tíma. Við komum þarna niður í nokkurs konar
anddyri, en úr því komum við beint inn i gang, sem er höggv-
inn inn í móbergið. Og þau áhrif sem fylgja þessum stað eru
svo undarleg, að ég veit ekki hvernig ég á að skilgreina þau
að öðru leyti en því, að annars vegar er lyktin frá jarðveg-
inum og hins vegar áhrifin úr loftinu og þeim atburðum sem
þarna hafa átt sér stað. Þarna eru lik framliðinna manna, að
okkur var sagt, allt frá dögum fyrstu kristni. Þarna standa
út úr veggjunum mannabein, hauskúpur, lærleggir og nær
öll hugsanleg mannabein hér og þar.
Þarna er líka altari heilagrar Sesilíu, en hún var háls-
höggvin í baðherbergi í húsi sínu í Rómaborg árið 230. En
árið 822 fannst lík hennar órotnað í Katakombunum og var
hún þá tekin i helgra manna tölu. Heilög Sesilía er verndar-
dýrlingur tónlistarmanna. Þar sem hús hennar stóð í Róma-
borg er nú kirkja, helguð henni og gerast þar margar jarð-
teiknir enn í dag. Kirkjudagur hennar hjá kaþólsku kirkjunni
er 22. nóvember.
Þegar maður kemur þar að finnst manni bókstaflega kona