Morgunn - 01.06.1979, Blaðsíða 18
16
MORGUNN
Eins og Tolstoy, í sögum sínum, færðist frá hlutsæisstefn-
unni upp til guðrækninnar, þannig hefur ást Tagores, sem
er þungamiðja allra ritverka hans og skáldskapar, hafist frá
hinni hlutrænu ást til hinnar andlegu og víðtæku, til alls sem
lifir og hrærist. A yngri árum hans voru gamlir hreintrúar-
menn Indverja á glóðum um að hann ætlaði að vekja upp
hina nöktu stefnu Evrópu í ástarkvæðum sinum, eins og sum
yngri skáld Islands gera nú á tímum. En ótti þeirra var
ástæðulaus. Æskuástarljóð hans eru hrein og fögur, þótt heit
séu og eldnæm.
Tagore þurfti aldrei, eins og svo mörg önnur skáld, að
berjast við fátæktina um yfirhöndina á fötum og fæði. Ef
svo hefði verið, er óséð nema vandar Hjálmars og þyrna Þor-
steins hefði þá meira kennt i kvæðum hans. En allt sem
hann þurfti hendinni lil að rétta, lá við vöggustokkinn.
Af öllum þeim ódæma kynstrum af bókum, sem hann hefur
gefið út, - bæði ljóðum, sorgar- og ljóðaleikjum, skáldsögum
og smásögum, ritgerðum og þýðingum, sem allt í allt munu
mynda hundrað bækur, - þykir honum vænst um kvæðin
sín. J þeim finnst honum hann vera allur sjálfur — sitt mesta
og besta. Enda hafa yfir 30 ljóðabækur verið gefnar út eftir
hann, og er það áreiðanlega meira en vér, Jslendingar, gætum
þolað einum manni — hversu vel sem hann orti.
Af þessu sést best hve mikilhæfur höfundur Rabindranatli
Tagore er. En hann er einnig mikill og djúpsær heimspeking-
ur og kennari, andlegur og þjóðræknislegur leiðtogi, sagna-
rannsakari, söngmaður og sönglagasmiður, dálítill málari, við-
sýnn fræðari, afbragðs stjórnari og dágóður ritstjóri. Hefur
haft ritstjórn fjögurra timarita á hendi og tekist vel. Skóla
stofnaði hann og starfrækti eftir eigin hugmynd, og er sá
skóli talinn fyrirmynd nær sem fjær. Tekur hann sárt hversu
einstaklingseðli barnanna er misboðið i nútiðarskólunum. -
Tagore segir sjálfur, að öllum disum listarinnar hafi hann
gefið glaður hönd sína, og orðið nauðugur að draga hana til
baka, frá einni til annarrar, en kærust sé sér Iðunn þeirra
allra.