Morgunn - 01.06.1979, Blaðsíða 33
MÆI.T MAI.
31
málfegrunar eftir fyrirmælum kennslumálasljórnarinnar",
eins og komist var að orði. Þetta var i fyrsta sinn, sem fé var
veitt til mállýskurannsókna á Tslandi.
Tveim árum síðar, eða 1941, eftir að rannsóknir voru hafn-
ar, kom í ljós, að frekari fjárveitingar væri þörf, en þáver-
andi forsætisráðherra, Hermann Jónasson, sem einnig fór
með kennslumálin, hljóp þá undir bagga og veitti aukinn
styrk til greiðslu ferðakostnaðar við mállýskurannsóknirnar,
og árið 1946 kom svo út fyrsta hindi dr. Björns um mállýsk-
ur, þar sem saman voru teknar niðurstöðurnar af rannsókn-
um hans.
Má segja að rit þetta hafi ekki verið byggt á sandi, því dr.
Björn og aðstoðarmenn hans rannsökuðu framburð um það
bil 10.000 manna, viðs vegar um landið, og var framburður
hvers hljóðhafa skráður á sérstakl spjald. Dr. Bjöiai hugsaði
sér þetta fyrsta hindi af tveim eða þrem, en hann var lengst
af heilsuveill maður og lést fyrir aldur fram, áður en hann
fengi lokið þessu mikla menningarstarfi.
Siðan hefur ekkert gerst í þessu máli. Ég hyrjaði að vísu
að skrifa um mælt mál og þessar rannsóknir fyrir þrettán
árum, cn viðbrögð manna voru engin. Mælt mál virlist ekki
skipla neinu máli o.g síðan hefur verið haldið áfram að kenna
mönnum móðurmálið, eins og jiað sé ekki talað, eða neinu
máli skipti hvernig það er talað.
En þegar ég nú í vor varð var við, að hópur mætra júng-
manna lýsir því yfir á aljtingi, að íslensk tunga eigi i vök að
verjast, og jtað eigi sérstaklega við um talað mál, framburð
og framsögn, verða menn að virða mér það til vorkunnar
þótl ég taki að hressast nokkuð og leyfi mér jafnvel að reyna
að leggja hér eitthvað sjálfur til mála.
II.
í þingsályktuninni, sem samþykkt var þann 5. mai sl. fel-
ur alþingi ríkisstjórninni að sjá svo um, að kennsla og fræðsla
i Bíkisútvarpinu í öllum greinum móSurmálsins verði elfd.
Þegar þess er einnig gætt, að flutningsmenn þingsályktunar-