Morgunn


Morgunn - 01.06.1979, Side 35

Morgunn - 01.06.1979, Side 35
MÆLT MÁL 33 ana fyrst með framburði nokkurra dæma, en ræðir síðan um þá með hliðsjón þess, að þeir gœtu hver um sig komið til greina við val samræmds framburðar. Dr. Björn velur fimm sjónarmið, sem hann telur mestu máli skipta við samræmingu framburðar: upprunasjónarmiS, útbreiSslusjónarmið, kennslusjónarmið, fegurðarsjónarmiS og slafsetningarsjánarmið. Þegar dr. Björn talar um uppruna eða upprunalegan fram- burð á hann við framburð fommálsins, en málfræðingar telja venjulega fornmál ríkja frá upphafi Islandsbyggðar og fram um 1300. Um útbreiðslu einstakra mállýskna nú á dögum studdist hann við rannsóknir sínar, og er þeim lýst í I. bindi rits hans um mállýskur. En rannsóknir dr. Björns tóku til um 10.000 manna eða hljóðhafa á landinu og voru framkvæmdar nálega i hverri sveit og hverjum kaupstað. I sambandi við kennslusjónarmið bendir hann á hve framburður sé misjafn- lega hæfur til kennslu og náms, auðveldur eða erfiður. Telur hann að þessu verði að gefa nokkurn gaum við samræmingu framburðar. Um kennsluhæfi fékk dr. Björn reynslu á tveim framburðarnámskeiðum, sem hann hélt í Beykjavík 1946. Annað var fyrir barnakennara og var þar bæði kennd almenn hljóðfræði nútíðarmálsins og framburður ýmissa mállýskna. Hitt var fyrir börn í Laugarnesskólanum, og var þar um hreina framburðarkennslu að ræða. Taldi dr. Björn þessi námskeið hafa sannað, að unnt sé að kenna bæði fullorðnu fólki og börnum allar helstu mállýskur í landinu á tiltölu- lega skömmum tíma, ef rétt er að farið. Tillögur dr. Björns Guðfinnssonar um samræmingu ís- lensks framburðar voru í stuttu máli þessar: I. Samræma skal í aðalatriðum íslenskan nútímaframburð, enda grundvallist samræmingin á úrvali úr lifandi mállýsk- um, en ekki endurlífgun forns framburðar, sem horfinn er með öllu úr málinu. II. Velja skal til samræmingar að svo stöddu 1) réttmœli sérhljöða, 3

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.