Morgunn


Morgunn - 01.06.1979, Page 68

Morgunn - 01.06.1979, Page 68
66 MOKGUNN vitundarstiga. Og i þriðja hluta bókarinnar eru svo vanga- veltur höfundar sjálfs um hlutverk Innhverfrar íhugunar í heiminum í dag. Hverjum þeim sem telur sig skorta hugarró ráðlegg ég hiklaust að lesa þessa athyglisverðu bók og reyndar öllum, því hún á til okkar allra brýnt erindi. Þýðendur, Guðrún Andrésdóttir og Jón Halldór Hannesson, hafa leyst vandasama þýðingu af hendi með prýði. Það eykur mjög notagildi bókarinnar, að í lok hennar er ítarleg skrá yfir tilvitnanir, svo og nöfn og atriðisorð. Það eina sem ég sakna er að hvergi skuli vera gerð nánari grein fyrir höfundi þessarar bókar, því að hann er athyglisverður maður. Bókin er fsafoldarprentsmiðju til sóma. Harold Sherman: LÆKNINGAMÁTTUR ÞINN. Þýð. Ingólfur Árnason. Otg. Skuggsjá 1978. Harold Sherman hefur nú yfir fjörutíu ár helgað lif sitt rannsóknum þeirra fyrirbæra mannlegs lífs, sem visindin eiga engar skýringar á. Hann hefur getað skrifað um þessi efni á miklu persónulegri hátt en margir rithöfundar, sem lærðari kunna að vera í vísindum, en fátækari að sálrænum hæfileikum, þvi hann hefur sannað að hann býr yfir þeim í rikum mæli. Hann veit því um hvað hann er að tala, þegar hann ræðir um þessar andlegu gáfur annarra manna. Auð- vitað er til fjöldi fólks um víða veröld, sem býr yfir slikum hæfileikum, en flestir hafa talið ákjósanlegra að leyna þeim en segja frá þeim. Að vísu eru menn ekki brenndir á báli lengur, þótt upp komist, en kirkjunni hefur þó ekki farið meira fram síðan á miðöldum en það, að ennþá eru sumn’ hennar menn heitustu andstæðingar sálræns fólks og beita

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.