Morgunn


Morgunn - 01.06.1984, Side 10

Morgunn - 01.06.1984, Side 10
8 MORGUNN sinni eigin orku yfir i þeirra orkusvið og fá þannig hlut- deild í hugsunum og tilfinningum viðkomandi. 3. Skynjun utan líkama Eileen segir svo frá að í æsku hafi hún oft skynjað sig meðvitað utan líkamans og geti enn notað þann hæfileika til að fara á milli staða. Þannig hafi hún fengið vitneskju um aðstæður og atburði sem gerðust á sama tíma en allt öðrum stað en þar sem efnislíkami hennar var. //. Heyrnar- og sjónskyggni Við skyggnilýsingar eins og á fundunum sem hér verður sagt frá, notar hún hins vegar skynjun til framliðins fólks, sem hún sér eða heyrir til en sækir ekki upplýsingar í orku- svið viðkomandi fundarmanns. LAUSLEG FRÁSÖGN AF SKYGGNILÝSINGAFUNDUM Fundina sem haldnir voru í október 1983, sóttu um 280 manns eða 140 á hvorum fundi. Á fyrri fundinum var sam- band til 14 fundarmanna og á þeim síðari til 13 manna. 1 upphafi fundanna sagði Eileen örlítið frá sjálfri sér og hversvegna hún starfar á þessu sviði. Tilgangur hennar er að sýna fram á að framlíf á sér stað, með því að gera grein fyrir því sem hún sér og heyrir og færa þannig sína eigin í’eynslu og vissu til þeirra sem á vilja hlýða. Hún byrjaði skyggnilýsingu á því að segja til hvaða fundarmanns sambandið beindist frá framliðnum. í 3 tilvikum af 27 kom fljótlega í ljós að sambandið var til annars aðila en hún nefndi fyrst og þá var það alltaf til þess sem næstur var þeim sem hún benti fyrst á. Þetta skýrði Eileen svo að hún sæi þann framliðna í nánd við einstaklinginn. Rétt er að taka það fram að það eru ekki allir miðlar sem geta bent á þann aðila úr fjölmennum hópi, sem sambandið eða upplýsingarnar eru til.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.