Morgunn - 01.06.1984, Síða 17
HEFUR SPÍRITISMINN . . .
15
óþægilega við mig, vegna þess að mér fannst einhvern veg-
inn að það fólk, sem ég hafði kynnst hjá SRFl byndi sig
ekki við svo þröngan bás sem þennan, sem lýst er í þessari
skilgreiningu. Mér fannst afstaða fólksins sem ég hef kynnst
hjá SRFl ekki vera fyrst og fremst trúarleg heldur miklu
frekar heimspekileg. Mér sýnist að sálarrannsóknafólk hér
í þessu félagi sé leitendur, sem spyr spurninga og það leit-
ar í bókum, vísindaritum og það leitar líka svara hjá fólki
með dulræna hæfileika og ekki síst að það leitar í eigin
barm, eftir svari við sínum spurningum.
Spurningarnar ei'u um líf eftir dauðann, þær eru um
hvað það sé sem að lifir dauðann, hvaða hluti mannsins
það er sem lifir dauðann, og þær eru einnig um það hvernig
þetta líf er og hvert stefni. En það er einnig spurt um líf
fyrir fæðingu, og það koma fyrir spurningar um endur-
holdgun og spurningar um orsakasamhengi í lífi fólks. Það
er spurt um tilgang og það er jafnvel spurt um lífssam-
hengi alls mannkynsins. Út frá þessum hugleiðingum kom
upp spurningin, hvað það er sem mótar heimsmynd okkar.
Mér sýnist að fyrst og fremst sé það að sjálfsögðu bein
reynsla okkar af heiminum sem við lifum í, sem mótar
heimsmynd okkar. Nú, það er einnig að einhverju leyti
reynsla annars fólks af heiminum. Þá bæði reynsla vísinda-
mannsins, sem notar nákvæmar vísindalegar aðferðir og
það er líka reynsla fólks með óvenjulegt andlegt atgervi.
Það er reynsla sjáenda og trúarleiðtoga. Og hver er svo
mín niðurstaða úr þessari heimsskoðun. Mín niðurstaða er
sú, að maðurinn sé á þróunarbraut. Og það er annað sem
er ekki síður mikilvægt, að maðurinn er eina lifandi vera
þessarar plánetu, sem hefur vald til að stjórna sinni eigin
þróun. Hvað er það sem styður þetta? Hvar sjáum við
þetta? Við sjáum þetta með því að horfa á fólkið í kringum
okkur og það líf sem maðurinn iifir. Maðurinn þróast og
auðgar anda sinn á margvíslegum leiðum. Ég get talið upp
margar, ég ætla að nefna örfáar. Maðurinn stundar heim-
speki, trú og vísindi. Hann fæst við helgisiði og táknfræði.