Morgunn


Morgunn - 01.06.1984, Síða 24

Morgunn - 01.06.1984, Síða 24
22 MORGUNN eða gildi þeirra allra. Fram hjá þessu mikilvæga atriði horfa vísindatrúarmennirnir og halda því fram, sumir hverjir að áhugafólk án háskólagráðu geti ekki fengist við sálarrannsóknir, slíkt leiði af sér fúsk. Og þar með átti að afgreiða áratuga starf sálarrannsóknafélaga hér á landi, sem ráf áttavillts manns um eyðimörk. Ég gat þess í upphafi að það var fyrir starf sálarrann- sóknafélaga, sem vísinda- og fræðimenn hófu rannsóknir á duirænum fyrirbærum. Þessar rannsóknir beindust þá m.a. og gera enn, að hæfileikum miðla og sjáenda. Sálar- rannsóknafélögin hafa nú því mikilvæga hlutverki að gegna að stuðla að þroskun slíkra hæfileika og skapa þannig efni- við til rannsókna í góðu samstarfi við einlæga vísindamenn. Einnig að veita fræðslu um niðurstöður rannsókna á þessu sviði og gefa fólki kost á að kynnast hæfileikum þeirra sem náð hafa þroska í þessum efnum. Að slíkum verkefnum hefur Sálarrannsóknafélag Suður- nesja unnið í 15 ár og ég er þess fuilviss að hér verður ekki staðar numið. En við sem störfum að þessum málum verðum að vinna betur saman og samhæfa kraftana. Sam- eiginlega þurfum við að stíga skref: — Til fræðslustarfs sem nær langt út fyrir raðir félags- manna. — Til æskunnar sem hefur svo opinn huga og viija tii þekkingarleitar. — Til þeirra sem neita staðreyndum dulrænna fyrirbæra og einnig til hinna sem trúa á rannsóknarstofur, og bjóða þeim að ganga með okkur spölkorn um landið þar sem skiiningur og víðsýni ríkja í viðhorfum til mikiivægasta málsins. Ég óska Sálarrannsóknafélagi Suðurnesja velfarnaðar á þeirri leið.

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.