Morgunn


Morgunn - 01.06.1984, Side 27

Morgunn - 01.06.1984, Side 27
LESENDUR HAFA ORÐIÐ 25 aftur, hún tók teppið, spurði hvei'nig mér liði. Vel, svaraði ég, sem satt var, enda allur verkur horfinn. Bað hún mig að hugsa til sín. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, en segja það, að ég finn ekki til í bakinu. Er konan mín og skyldfólk undrandi yfir þessum bata, svona fljótt. Ég vil þakka miðlinum Unni Guðjónsdóttur, fyrir þessa hjáip og hennar stjórnendum hinummegin frá, og bið Guð að blessa þetta starf. Álfaskeiði 104, Hafnarfirði. Gumiar B. Valdimarsson. ☆ Hr. ritstjóri „Morguns“. Ég undirritaður fékk nýverið rukkun um greiðslu ár- gangsins 1984, sem vera bar. Ég hefi verið áskrifandi tíma- ritsins frá byrjun. Nú kom mér til hugar að gera nokkurn frest á greiðsl- unni, en senda ritinu smáfrásögn af gömlum atburði frá árinu 1929. Þá var ég heimilisfastur í Vestmannaeyjum. Það ár komu til Islands mæðgin, erlend, sem komu í land í Eyjum og dvöldust þar tvo sólarhringa. Sonurinn hét Florizel v. Reuter, heimskunnur fiðlusnillingur. Persónu- nafn móður hans man ég ekki. Þau voru bæði sálræn, héldu til hjá Kristjáni Linnet bæjarfógeta og frú hans. Annað kvöldið var ég boðinn á miðilsfund hjá þeim hjónum. Hvor gestanna var mikið þetta kvöld, man ég ekki lengur, og aðeins það, sem að mér sneri á þeim fundi. Ég er nú að verða 90 ára, lifi ég til 30. okt. þ. á. Ég er Skagfirðingur að ætt. Faðir minn dó 1906 á Fremrikotum í Skagafirði. Á fundinum í Vestmannaeyjum kvað erlenda

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.