Morgunn


Morgunn - 01.06.1984, Page 36

Morgunn - 01.06.1984, Page 36
34 MORGUNN eru auðfundnar. Annars er því haldið fram af mörgum, sem við dularsálfræði fást, að það hafi neikvæð áhrif á tiiraunir þeirra, ef þátttakendur nálgast þær með gagn- rýnu hugarfari eða slíkir menn eru viðstaddir. Ég tek dæmi af handahófi úr bók sem dr. Erlendur mælir með sem vönd- uðu yfirlitsriti í janúargrein sinni.io) Þar sem ég greip niður, er fjallað um rannsóknir á hugarafli og sagt frá því, hvernig borð hafi hreyfst á hinn dularfyllsta hátt. Höfundur segir: „The general thesis of Batcheldor and Brookes-Smith (þ.e. þeirra sem að tilrauninni stóðu) is that a lively, light- hearted atmosphere is conducive to these effects and that fear or „deadly doubt“ destroys them.“ Um rannsóknaaðferðina segir höfundur, að hún sé „clever and theoretically clean“, eins og það er orðað. Svik hafi að vísu ekki verið útilokuð, en það sé með vilja gert, því að rannsóknarmennirnir hafi þessa kenningu: „A trickproof method might awe the participants and therefore destroy the mood which these experimenters consider essential for authentic paranormal effects“. Hér bætir höfundur við: „For us to interpret the data as paranormal, however, demands that we have faith in the honesty of all participants.“ I yfirlitsriti um framfarir í einhverri annarri vísinda- grein myndi frásögn á borð við þessa vekja óskipta at- hygli, en hún undirstrikar hið mikla vandamál dularsál- fræðinga. 1 sömu grein er fjallað um reimleika (poltergeists) sem eru eitt af viðfangsefnum dularsálfræðinga. Þeir sem rann- sakað hafa slík fyrirbæri, hafa ótrúlega oft komist að þeirri niðurstöðu, að þau væru á einhvern hátt tengd unglingi innan við tvítugt. Er þessa getið í greininni. I sumum til- vikum (þ.á.m. hér á landÞ hefur beinlínis sannast, að um hrekkjabrögð hafi verið að ræða, en miklu oftar hafa rann- sóknarmenn komist að þeirri niðurstöðu, að svo geti ekki verið. En þá þarf að skýra, hvers vegna unglingarnir tengj-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.