Morgunn


Morgunn - 01.06.1984, Page 38

Morgunn - 01.06.1984, Page 38
36 MORGUNN EFTIRMÁLI Þegar ég hafði lokið við að taka saman þennan pistil, barst mér í hendur febrúarhefti Fréttabréfs H.l. Þar er að finna frekari orðaskipti ritstjórans og dr. Erlends Haralds- sonar um viðureign töframannsins Randi og rannsóknar- manna við McDonnell stofnunina í St. Louis. Dr. Erlendur leggur áherslu á, að starfsmenn stofnunarinnar hafi ekki eytt nema um 100 vinnustundum í viðkomandi rannsókn, og að þeir hafi aðeins birt „lítilfjörlegan útdrátt um stutt erindi“ um rannsóknina. Af þessu mætti ráða, að málið sé hið ómerkilegasta. Því miður er þetta ekki sú mynd sem fæst við að lesa lýsingu á málavöxtum.1- Starfsmenn Mc- Donnell virðast hafa verið furðulega trúgjarnir og látið hjá líða að gera sjálfsagðar varúðarráðstafanir gegn blekk- ingum, jafnvel þótt Randi hefði áður varað við slíku og sent yfirmanni stofnunarinnar lista yfir atriði sem taka þyrfti tillit til. Þessu var ekki sinnt, og rannsóknarmenn- irnir létu blekkjast af brögðum tveggja ungra manna. Hvort „margar lærðar ritgerðir“ hefðu verið skrifaðar um þessar rannsóknir, ef Randi hefði ekki komið upp um allt saman, er auðvitað umdeilanlegt. En hinn lítilfjörlegi útdráttur, sem dr. Erlendur minnist á, var, að sögn Randis, með ákveðnara orðalagi í upprunalegri mynd. Sú útgáfa var afturkölluð og breytingar gerðar, þegar rannsóknar- menn fengu pata af því, að maðkur væri í mysunni. Þ.8. TILVITNANIR: 1. Rudolf Thiel: „Universets erobring". Skriíola, Khöfn, 1958. 2. Martin Gardner: „Fads and Faliacies in the Name of Science“. Dover Publications, New York, 1957. 3. Isaac Asimov: „Biographical Encyclopedia of Science and Techno- logi“. Doubleday, Garden City, 1964. 4. John Palmer: „Extrasensory Perception: Research Findings". Aðvances in Parapsychological Research, 2. Plenum Press, New York & London. 1978.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.