Morgunn


Morgunn - 01.06.1984, Síða 55

Morgunn - 01.06.1984, Síða 55
ÁHRIF SPÍRITISMA . . . 53 I þessari ritgerð verður tekið tillit til ofangreindrar að- greiningar á spíritisma og dulsálarfræði og ennfremur þeirra skilgreiningaratriða sem þar koma fram á spíritism- anum. I handbókum má finna hnitmiðuð svör við spurningunni um hvað spíritismi sé og af þeim má ráða að meginatriðin séu að hann gerir ráð fyrir að andi manna lifi líkamsdauð- ann af og að jarðneskum mönnum sé mögulegt að ná sam- bandi við framliðna. 1 Psykologisk leksikon er spíritisminn skilgreindur á eftirfarandi hátt: en filosofisk religio teori, der hæver at mennesked bestár af et legeme og en ndelig sjæl, der kan frigore sig fra legemet ved doden. Den populære form for spiritisme er troen pá at mennesker kan kome i kon- takt með afdodes ánder, evt. v.h.a. et medium.9> I Britanica er spíritisti sagður vera a person who believes that communication with those who have passed into the higher life“ (have died) is possible and makes such communication the centre of his religiond0* Þegar hugað er að því hvaða skilning Einar H. Kvaran lagði í hugtakið spíritismi kemur í ljós að hann er í megin- atriðum sá sami og kemur fram í ofangreindum tilvitnun- um. 1 fyrirlestrinum Samband við framliðna menn gerir hann allskýra grein fyrir skilningi sinum á hugtakinu. Þar segir hann að „undirstaðan undir spiritismanum" sé þekk- ing á því ,,að atburðir sérstakrar tegundar hafi gerst á dög- um nútiðarmanna“.n> Þessa atburði nefnir hann dularfull fyrirbrigði. Þessi fyrirbrigði eru grundvöllur spíritismans/. . ./. En viðurkenning þeirra, sú þekking að þau reynist í raun og veru, er enginn spíritismi. /--------/ Spírit- isminn kemur ekki til greina, fyrren farið er að draga

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.